blaðið - 27.09.2006, Qupperneq 30
3 8 MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006
blaöiö
neytendur
neytendur@bladid.net
Hættulegar?
Undanfarið hafa nokkrir framleiðendur þurft aö afturkalla fartölvur
vegna mögulegrar brunahættu. Það er þvi ekki vitlaust að hafa auga
með fartölvunni og hafa samband við verslunina ef hún verður
óvenjulega heit.
Launum skipt
milli vikna
Fjölskyldur landsins eyða sífellt
meira fé á mánuði í matarinn-
kaup og Ijóst er að mörgum
þykir nóg um. Það eru ýmsar
góðar leiðir sem má nota til að
spara í matarinnkaupum og til
að mynda er gulls ígildi að skrifa
innkaupalista. Auk þess er gott
að ákveða í byrjun mánaðarins
hve miklu fé skal varið til matar-
innkaupa. Sú upphæð er tekin
út úr bankanum og skipt jafnt
í fjögur umslög. Eitt umslag er
samviskulega notað á viku og
ef einhver afgangur er þá færist
hann í næsta umslag. Ef það er
afgangur í lok mánaðarins má
verðlauna sig með því að kaupa
eitthvað sérstakt eða færa jafn-
vel peninginn í umslag næsta
mánaðar og spara þannig.
Rán í Rauðhettu
og úlfinum
Sá leiðinlegi atburður gerð-
ist aðfaranótt laugardags að
brotist var inn í hárgreiðslustof-
una Rauðhettu og úlfinn að
Tryggvagötu. Tölvu með öllum
tímapöntunum ásamt nöfnum
og símanúmerum viðskiptavina
var stolið sem kemur sér einkar
illa. Eigendur Rauðhettu biðja
því alla viðskiptavini sem eiga
bókaðan tíma á næstunni að
hafa samband til að bóka tímann
aftur í síma 511-4004.
Aðstöðumunur barna í Reykjavik
Frístundakort í haust? Iþróttafélag
hafa gefið eftir æfingagjöld i und-
antekningartilfellum en um þessar
mundir standa yfir viðræður um fri-
stundakort fyrir börnin iborginni.
Mynd/Ámi Torfoson
Efnaminni foreldrar reiða
sig á góðvild íþróttafélaga
Björn Ingi Hrafnsson
borgarfulltrúi segir að
þessa dagana standi
yfir viðræður um
frístundakortið sem
framsóknarmenn kynntu sem eitt
af sínum áherslumálum í kosn-
ingabaráttunni. Björn segist leggja
geysilega áherslu á þetta mál því
það sé ljóst að umtalsverður fjöldi
barna og unglinga geti ekki tekið
þátt í tómstundastarfi af efnahags-
legum ástæðum. Forsvarsmenn
tveggja íþróttafélaga í Reykjavík
telja að um stórt réttlætismál sé að
ræða því frístundakortið jafni að-
stöðumun barna en hins vegar hafa
íþróttafélög gefið eftir æfingagjöld
í undantekningartilfellum.
Tillögu að vænta í haust
I Morgunblaðinu í gær kom
fram að íþrótta- og æskulýðsráð
Seltjarnarness hefur lagt fram til-
lögu þess efnis að börn frá 6 til 18
HVAÐ KOSTA
TÓMSTUNDIR BARNA:
■ Sund
Árgjald frá um 28.000 til 32.000 krónur
■ Knattspyrna
Árgjald frá um 24.000-34.000 krónur
■ Ballett
Árgjald frá um 34.000 krónum
■ Hljóðfæralelkur
Árgjald í píanóleik, einkatímar um 84.500
krónur
■ Skátastarf
Árgjald að meðaltali 15 til 16.000 krónur
■ Lúðrasveitir
Árgjaldið er um 14.000 krónur
Dæmi um kostnað við tómstundir barna á
aldrinum 6 til 12 ára í Reykjavík.
ára muni eiga kost á svokölluðum
tómstundastyrkjum sem nema 25
þúsund krónum. „Þessa dagana
fara fram viðræður við íþrótta-
bandalag Reykjavíkur og fleiri að-
ila sem koma að frístundastarfi,"
segir Björn Ingi. „Ég á því von á því
að við getum lagt fram tillögu um
frístundakortið eigi síðar en í haust.
Allar rannsóknir sýna að þeim mun
lengur sem hægt er að gera börnum
kleift að taka þátt í þessu starfi
þeim mun minni líkur eru á að
þau leiðist út í óæskilega iðju, eins
og neyslu vímuefna. Við skoðum
líka hvaða aldur frístundakortið á
við. Þær rannsóknir sem við höfum
stuðst við benda til að brottfallsald-
urinn sé upp úr 12 til 15 ára og það
sé hættulegasti aldurinn. En það
segir sig vitanlega sjálft að því fleiri
árgangar sem bætast við því meiri
kostnaður."
Gefa eftir æfingagjöld
Guðjón Guðmundsson, formað-
ur KR, segir félagið í gegnum árin
hafa gefið eftir æfingagjöld I und-
antekningartilfellum. Það geri þau
vegna tregðu í kerfi félagsmála. Þór
Björnsson, íþróttafulltrúi Fram,
tekur undir þetta og bætir við að
þetta geri íþróttafélögin þrátt fyrir
að vera að öllu jöfnu illa fjárhags-
lega stæð.
„Það eru ekki margir á hverju ári
sem þurfa á þvi að halda. Félagsþjón-
ustan aðstoðar suma en það eru
ekki allir sem vilja það.“ Aðspurður
hvort frístundakortið geti orðið til
þess að íþróttafélög hækki árgjöld-
in segir Björn Ingi að það komi jafn-
vel til greina að gera samkomulag
við íþróttahreyfingúna um að þetta
leiði ekki til hækkunar á árgjöldum.
„Þetta á eingöngu að nýtast börn-
unum. Hins vegar er ekki búið að
ákveða upphæðina en það segir sig
sjálft að þetta verður að vera ákveð-
in upphæð til að það muni eitthvað
um frístundakortið og til þess að
þetta hafi einhver áhrif.“
svanhvit@bladid.net
dista@bladid.net
Hverji
Sprengisandur
117,40 kr.
eru ódýrastir?
Samanburður á verði 95 oktana benslns
Kópavogsbraut
117,40 kr.
Óseyrarbraut
117,40 kr.
6G0
Vatnagarðar
117,40 kr.
Fellsmúli
117,40 kr.
Salavegur
117,40 kr.
'r.: t.
olís
Álfheimar
118,40 kr.
Ánanaust
118,90 kr.
Gullinbrú
118,40 kr.
Eiðistorg
117,30 kr.
Arnarsmári
117,40 kr.
Ananaustum
117,30 kr.
Skemmuvegur
117,30 kr.
Starengi
117,40 kr.
Snorrabraut
117,40 kr.
Bæjarbraut
118,90 kr.
Bústaðarvegur
118,40 kr.
Fyllsta öryggis gætt
Það er nauðsynlegt að gæta fyllsta
öryggis í tækniumhverfi nútímans.
Sífellt oftar heyrast fregnir af því að
óprúttnum aðilum takist að komast
yfir kreditkortanúmer, skilríki og
jafnvel vegabréf og nota það sér til
framdráttar. Sumt er vitanlega aldr-
ei hægt að koma í veg fyrir en sem
betur fer er hægt að minnka líkur
á að verða fyrir glæp. Hér eru nokk-
ur ráð sem gott er að hafa í huga í
amstri hversdagsins.
■ Ekki gefa upp persónulegar
upplýsingar nema þú vitir í hvað
þær verða notaðar og hvort þeim
verður dreift til annarra fyrirtækja.
■ Skoðaðu banka- eða kredit-
kortayfirlit til að vera viss um að
allar færslur tilheyri þér.
■ Notaðu leyninúmer sem ekki er
auðvelt að giska á, helst ekkert
sem tengist þér, fjölskyldumeð-
limum eða heimili þínu.
■ Skýldu þér þegar þú slærð inn
PIN-númer í hraðbönkum.
■ Vertu aðeins með þau skilríki á
þér sem þú nauðsynlega þarft á
að halda. Geymdu vegabréf og
annað heima fyrir.
■ Ekki gefa upp persónulegar
upplýsingar í gegnum síma, tölvu-
póst eða á Netinu nema þú hafir
frumkvæði að samtalinu og vitir
við hvern þú talar.
■ Passaðu upp á tölvupóstinn
þinn og mundu að auðvelt er
fyrir tölvufróða menn að komast
í hann.
■ í stað þess að henda persónu-
legum og fjárhagslegum upplýs-
ingum, eins og bankayfirlitum,
kortaumsóknum, kvittunum og
tryggingaupplýsingum, skaltu
tæta þær eða koma því þannig
fyrir að ekki sé hægt að lesa af
þeim.