blaðið - 27.09.2006, Síða 33
blaöiö
MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 2006 41
jaðarsport
jadarsport@bladid.net
&
Fyrsta fallhlifin
Slóvakinn Stefan Banic fann upp fallhlífina og
prófaði hana fyrstur manna þegar hann stökk
fram af rúmlega 40 hæða byggingu í Washington
árið 1913.
Stefan Everts Belgíski mótókross-
kappinn sigraði tvöfalt ÍMotocross
des nations-keppninni um helgina.
Bandaríkjamenn
sigurvegarar
Bandaríkjamenn fóru meö sigur
af hólmi í alþjóðlegu mótókross-
keppninni Motocross des
nations sem fram fór í Matterley
Basin á Englandi um helgina.
Bandaríkjamenn fengu 15 stig
í keppninni en lið Belgíu lenti í
öðru sæti með 22 stig og Nýsjá-
lendingar í því þriðja með 35.
Um 85.000 áhorfendur fylgdust
með keppninni sem haldin var í
60. skipti og hefur sjaldan þótt
jafnspennandi.
Þó að belgíska liðið hafi lent í
öðru .sæti var Belginn Stefan
Everts hetja helgarinnar en hann
var sá eini sem sigraði tvöfalt.
Kajakróður losar um streitu og spennu
Kútvelst í adrenalíni
möguleika sem ísland hefur upp á
að bjóða í afþreyingar-, íþrótta- og
ferðamannaiðnaði og kajakróður-
inn sé gott dæmi um það. I ferðum
Kayakldúbbsins fái fólk jafnframt
tækifæri til að kynnast landinu sínu
í alveg nýju ljósi.
„Ég gleymi ekki minni fyrstu löngu
ferð austur á fjörðum. Að róa undir
Blábjörgin, hæsta stuðlabergshamar
á íslandi, sem ég hafði aðeins séð á
mynd áður var alveg yfirþyrmandi í
orðsins fyllstu merkingu. Maður átti
hreinlega erfitt með andardrátt.“
Róðurinn losar um streitu
Ásta segir jafnframt að kajakróður
losi einnig um streitu og fái fólk til
að gleyma áhyggjum hversdagsins
sem sé nauðsynlegt í nútímasamfé-
lagi. Ekki þarf heldur að leita langt
yfir skammt til að stunda íþróttina.
Margir staðir eru í grennd við höf-
uðborgarsvæðið og kajakræðarar í
Reykjavík eru með vikulegan félags-
róður frá Geldinganesi og út á sund-
in. „Það er hægt að róa innan um seli
þó að maður sé í hátæknihöfuðborg.
Það eru náttúrlega frábær lífsgæði
sem margir átta sig ekki á,“ segir
Ásta Þorleifsdóttir að lokum.
einar.jonson@bladid.net
Vinsældir kajakróðurs hafa
aukist veruíega hér á landi
á undanförnum árum að
sögn Ástu Þorleifsdóttur,
félaga í Kayakklúbbnum,
sem stundað hefur íþróttina um
langt skeið.
„Það er hreinlega veldisvöxtur. Ég
held að það sé ekki hægt að orða það
neitt öðruvisi. Það merki ég mest á
umferðinni í Reykjavík og hversu
margir eru komnir með kajakfesting-
ar á þakið,“ segir Ásta og hlær. „Það
er mikið af miðaldra pakki í þessu.
Annars er þetta mjög breiður aldurs-
hópur sem er mjög ánægjulegt, allt
frá unglingum upp í ríflega áttrætt
fólk.“
Róa í stað þess að skokka
Kajakíþróttin býður upp á ýmsa
möguleika og hentar því jafnt þeim
sem sækja í spennu og átök sem og
hinum sem kjósa að taka því rólegar.
„Maður tekur á en stýrir því svo-
lítið sjálfur. Þetta er eins og maður
getur verið annað hvort í gönguhóp
eða skokkhóp," segir Ásta og bætir
við að æ fleiri séu farnir að nota róð-
urinn til líkamsræktar og rói jafnvel
daglega í stað þess að skokka. „Við
róum mjög misjafnlega hratt eftir
aðstæðum. Maður getur valið hvort
Asta Þorleifsdottir kajakræðari
Kajakróður gefur fólki tækifæri
til að kynnast landinu sínu og sjá
það i nýju Ijósi að sögn Ástu.
Mynd/Eyþir
PLO
straumabátum þar sem spennan er
meiri. Maður þarf engin fíkniefni
þegar maður fer í straumabát. Mað-
ur fær ekki meira kikk út úr neinu
öðru. Þetta er afskaplega spennu- og
streitulosandi sport,“ segir Ásta og
bætir við að unga fólkið komist oft
á bragðið í straumkajakróðri en færi
sig síðan oft yfir í sjókajakróður þeg-
ar árin færast yfxr.
„Það er samt alltaf rosalega gaman
að þeysa niður Eystri-Jökulsá. Það
hverfur ekkert þó að maður sé orðin
kerling á fimmtugsaldri," segir Ásta.
Að sögn Ástu hefur verið mikil
vakning meðal almennings um þá
maður fari bara við bestu aðstæður
eða reyni svolítið meira á sig og tak-
ist á við örlitlar öldur og svolítinn
vind. Mér finnst þetta ekki síður
vera fyrir sálina en líkamann og það
er náttúrlega best þegar það er fyrir
hvorttveggja," segir Ásta.
Þarf engin fíkniefni
„Þeir sem vilja mikið adrenalín
fara í sörf og geta til dæmis leikið
sér í briminu fyrir utan Þorlákshöfn.
Þar er tiltölulega örugg sandströnd
og stórar öldur og þeir kútveltast þar
í adrenalíninu.
Yngri krakkarnir eru gjarnan í
Fjölbreytt sýning Sýning fjöllista-
hópsins Extreme Team þykir óvenju-
fjölbreytt og þar er meðal annars
blandað saman körfubolta, BMX-
þrautum, breikdansi og tónlist.
Gúmmídrengurinn
og körfuboltadvergar
Það verður svo sannarlega kátt
i Laugardalshöllinni þann 18. nóv-
ember þegar Extreme Team og
Mini Hoops leika þar listir sínar.
Extreme Team er þekktur fjöl-
listahópur frá Bandaríkjunum
sem hóf feril sinn með því að koma
fram í hálfleik í NBA-körfuboItan-
um. Upphaflega lagði hópurinn að-
allega áherslu á að sýna færni sfna
í loftfimleikum og knattleikni en
með árunum hafa sýningar þeirra
orðið enn fjölbreyttari.
„Þessi fjöllistahópur er alltaf að
stækka meira og meira og inn í
hann eru líka komnir BMX-reið-
jólakappar sem gera alls kyns listir
á hjólum á hjólarömpum og gríðar-
lega öflugir breikdansarar þannig
að þetta er mjög fjölbreytt sýning,“
segir Birgir Nielsen sem flytur
flokkinn til landsins ásamt Björg-
vini Rúnarssyni.
Að auki kemur Gúmmídrengur-
inn svokallaði fram með hópnum
en hann þykir óvenjuliðugur eins
og nafnið gefur til kynna.
„Hann kemur inn á svið í lítilli
tösku og fer svo úr lið á alla vegu
og er síðan borinn út af sviðinu í
enn minni kassa. Þetta er alveg
magnaður náungi.“
Auk Extreme Team kemur fram á
sýningunni í Laugardalshöll Mini
Hoops sem er minnsta og fyndn-
asta körfuboltalið í heimi. Liðið
kemur frá Kanada og samanstend-
ur af sex dvergum. „Hugmyndin
er sú að þeir mæti úrvali íslenskra
poppara. Það er ekki búið að velja
liðið en Jón „góði“ Ólafsson pfanó-
leikari er mjög heitur fyrir þvi að
fá að taka þátt,“ segir Birgir og
bætir við að einnig hafi komið
upp sú hugmynd að dvergarnir
mættu íslenska kvennalandsliðinu
í körfubolta. „Það hefur ekkert ver-
ið ákveðið en það er alveg á hreinu
að þeir koma til með að mæta mjög
skemmtilegu liði frá lslandi.“
Extreme Team og Mini Hoops
verða með tvær sýningar og má
nálgast miða og frekari upplýsing-
ar á www.midi.is
Militec-1
Stilling
til öryggis
á vélina
lyrir veturirm
• Á gírkassan, drifið,
sjálfskiptinguna og vökvastýrið.
• Léttir kaldræsi. minnkar eyðslu og
tryggir betri smurningu.
Fæst á öllum smur- og bensínstöðvum
ADALNÚMER SfMI S20 8000 Bl I 3 V 3 rð tl 1111 11'
SKEIFUNNI 1 1 RVlK. SÍMI 520 8001 SMI0JUVEGI 68 KÓP. • SlMI 520 8004
DRAUPNISGATA 1 AK • SlMI 520 8002 BIlDSHÖFÐA 12 RVlK. • SlMI 520 8005
DALSHRAUN113 HFN. ■ SlMI 520 8003 EYRARVEGI 9 SELF. • SlMI 520 8006
www.stilllng.is