blaðið - 06.10.2006, Síða 4

blaðið - 06.10.2006, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 blaöi6 Varnir íslands eitt símanúmer Leyndin um varnir íslands stafar sennilega af því að stjórnin hefur aðeins eitt númer til að hringja í komi eitthvað upp á, segir Steingrímur J. Sigfús- son, formaður Vinstri grænna. Ríki sem bindi sitt trúss við Bandaríkin séu í meiri hættu en hin. Eldflaug skotið í Grindavík Þrír piltar með óbilandi áhuga á eldflaugagerð hafa fengið leyfi frá Grindavíkurbæ til þess að skjóta uþþ heimasmíðaðri eld- flaug úr bænum. Piltarnir eru í félagi sem þeir kalla Amateur lcelandic Rocketry. Markmið þeirra er að komast yfir hljóð- hraða en flauginni verður skotið á loft um þarnæstu helgi. í Lögregluembætti sameinuð Lögregluembætti á höfuðborgarsvæðinu voru sameinuð formlega í gær. Það er gert til þess að nýta betur krafta allra embættanna. Stefán Eiríksson verður lögreglustjóri og Hörður Jóhannesson, fyrrum yfirlögregluþjónn, verður aðstoðarlögreglu- stjóri og gegnir embættinu í fjarveru lögreglustjóra. Skerðing vaxtabóta: Condoleezza Rice: Heimsótti óvænt írak Condoleezza Rice, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, fór í óvænta heimsókn til Iraks í gær. Utanríkisráðherrann, sem hefur verið á ferðalagi um Mið-Austur- lönd undanfarna daga, fundaði með Nouri al-Maliki forsætisráð- herra og öðrum valdamönnum. Skilaboð Rice til íraskra stjórn- málamanna voru meðal annars þau að stjórnmálamenn landsins hafi nauman tíma til þess að leysa úr deilumálum sín á milli vegna blóðbaðsins sem geisar á milli trúarhópa í landinu. Nemur einum og hálfum milljarði á fjórum árum ■ Kemur á versta tíma ■ Verður bætt á næsta ári ■ Vill afnema vaxtabætur ^piheilsa aJl li -htfóuþaógott LIÐ-AKTÍN eXTRA Glucosamine & Chondroitin 60 töf lur Heldur liðunum liðugum! I heilsa '+OamO' -hafðu það gott Katrín Júlíusdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og nefndar- maður í fjárlaganefnd, segir að það sem af sé kjörtímabilinu hafi vaxtabætur verið skertar um tæp- lega einn og hálfan milljarð að raunvirði. Birkir Jón Jónsson, þing- maður Framsóknarflokks, bendir á að verið sé að auka bæturnar í nýju fjárlagafrumvarpi. Rosaleg kjaraskerðing „Vaxtabæturnar hafa lækkað um fjór- tán hundruð millj- ónir það sem af er kjörtímabilinu," segir Katrín. „Ríkisstjórnin er aðeins að laga stöðuna í þessu fjár- lagafrumvarpi sem verið er að leggja fram núna, en skerð- ing bótanna mun samt nema rúmum milljarði þegar kjörtímabil- inu lýkur.“ Katrín segir að þessum tölum sé mikilvægt að halda til haga. „Menn hér í þinginu hafa haldið því fram að vaxta- bætur hafi ekki skerst. Það hafa þær svo sannarlega gert.“ Katrín segir þessa stefnu ríkisstjórnar- innar vera vægast sagt sérkenni- lega. „Ekki síst í ljósi þess að hús- næðisverð er í sögulegu hámarki og verðbólgan á fleygiferð.“ Verið að vinna að tillögum Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks, bendir á að í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2007 sé verið að bæta við vaxtabæturnar. „Vaxtabæturnar eru að aukast núna á milli ára um fjögur hundruð millj- ónir og ríkisstjórnin er að vinna að tillögum um endurálagn- MJÓLKURVÖRUR I SÉRFLOKKl w úörur Bjf m FLOKKI Er mikið álag í skólanum? LCG+ erfyrirbyggjandi vörn! Streita og kvíði, skyndibitafæði, sætindi, stopular máltiðir - allt þetta dregur úr innri styrk og einbeitingu, veldur þróttleysi og getur raskað bæði ónæmiskerfinu og meltingunni. LGG+ er sérstaklega þróað til að vinna gegn þessum neikvæðu áhrifum og dagleg neysla þess tryggir fulla virkni. ingu fyrir árið í ár á vaxtagjöldum. Þannig verður þeim sem báru skarðan hlut frá borði bætt upp sú skerðing,“ segir hann. Katrín segir hins vegar að líta verði til alls kjörtímabilsins. „Það er sú tala sem skiptir máli. Menn verða að horfa á heildarmyndina. Afnema kerfið Ingólfur H. Ingólfsson hjá Fjár- málum heimilanna segir að þegar fólk taki lán geri það ráð fyrir því að fá vaxtabæturnar. Það komi sér því vitaskuld illa þegar þær skerðast. „Fyrsti ágúst er svona ákveðið kennimerki fyrir þetta kerfi þegar fólk fær bæturnar." Ingólfur bendir á að vaxtabæturnar mið- ist við greidda vexti og eignir. „Þegar eignaverðið hefur hækkað eins og gerst hefur undanfarið þá „ skerðist réttur- inn til vaxta- bóta.“ Hann segir að stóra vandamálið sé hinsvegar verðbólgan. „Verðbólgan er ekkert annað en vextir, það er alveg sama hvernig menn snúa því. Égerfrekaráþví að best væri að leggja niður vaxtabótakerfið. Tökum frekar þessar duldu vaxtahækkanir sem felast í verðbólgunni í burtu og höfum bara nafnvexti. Það er bara leikara- skapur að vera með nafnvexti annars vegar og raunvexti hins vegar,” segir Ing- ólfur og bætir við: „Þetta Kjaraskerðing fyrir heimilin í landinu Katrín Júlíusdóttir, þing- maður Samfylkingar Gert ráð fyrir aukningu í nýju frumvarpi Birkir Jón Jóns- son, þingmaður Framsóknarflokks VHi leggja niður vaxtabótakerfið Ingólfur H. Ingólfsson, félagsfræðingur kerfi gefur enga möguleika á því að gera áætlanir fram í tímann vegna þess að allt er tengt verðbólg- unni og enginn veit hvernig hún verður. “ Sjóðurinn Blind börn á íslandi Sjóðurinn Blind börn á íslandi veitir styrki til blindra og sjónskertra barna á íslandi allt aö 16 ára aldri. Úthlutað verður styrkjum úr sjóðnum á fyrsta vetrardag sem er 21.október næst- komandi. Umsóknir um styrki þurfa að hafa borist eigi síöar en 20.október 2006. Umsóknir skal senda til Blindrafélagsins, Hamrahlíð 17, skulu vera skriflegar og þeim fylgja kostnaóaráætlun vegna þess sem sótt er um. Úttekt KPMG á fjármálum borgarinnar: 90 milljörðum fátækari Peningaleg staða borgarinnar hefur versnað um tæpa 90 millj- arða síðustu 12 árin og áætlanir um hagræðingu hafa ekki náð fram að ganga. Þriggja ára fjárhagsáætl- anir hafa ekki staðist síðustu fögur árin. Tekjur aðalsjóðs borgarinnar hafa aldrei dugað fyrir almennum rekstrargjöldum. Niðurstöður úttektar KPMG á fjjár- hagsstöðu Reykjavíkurborgar sem borgarráð hafði falið fyrirtækinu að gera voru kynntar í gær. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmssonborgar- stjóri segir að tölurnar tali sínu máli. „Þetta er áfellidómur yfir fjármála- stjórn síðasta meirihluta. Eytt hefur verið um efni fram árum saman, skuldum safnað og þar með gengið á eignir borgarbúa," segir Vilhjálmur og bætir því við að nú bíði nýs meiri- hluta að snúa þróuninni við. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, fyrr- verandi borgarstjóri, segir að verið sé að snúa út úr tölum og talar hún um Fjármálin oft höfuðverkur Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,borgarstjóri og Björn Ingi Hrafnsson, forseti borgarráðs, kynntu niðurstöður KPMG. BlaDiD/Frlkki pólitíska orðaleiki. „Besti mælikvarð- inn á fjármálastjórn er álit markaðar- ins og borginni bjóðast lægstu vextir á honum." Hún segir að bera verði saman sambærilega hluti. „Berum saman fjárlög og útkomu. Þegar það er gert þá standast áætlanir borgarinnar.“

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.