blaðið - 06.10.2006, Síða 12

blaðið - 06.10.2006, Síða 12
12 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006 blaðiö UTAN ÚR HEIMI IL BRETLAND S| Múslíma meinað að gæta sendiráðs Lögregluyfirvöld í Bretlandi hafa leyst lögreglumann, sem er múslími, frá þeirri skyldu að standa vörð um ísraelska sendiráðið í London. Hann sinnir öðrum verkefnum. Ákvörðunin var tekin í öryggisskyni en maðurinn hafði mótmælt hernaði Israela í Líbanon. Öryggisgæsla hert Öryggisgæsla við höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í Evrópu í Genfarborg í Sviss hefur verið hert til muna þar sem yfirvöld segja hugs- anlegt að ráðist verði á skrifstofurnar. Um 1.600 vinna á skrifstofu SÞ í borginni. Nýr forsætisráðherra í Svíþjóð: Reinfeldt tekinn við Fredrik Reinfeldt, formaður Hægri flokksins, tók við embætti forsætisráðherra Svíþjóðar í gær. Sænska þingið samþykkti Reinfeldt sem nýjan forsætisráðherra með 175 atkvæðum gegn 169. „Mikil ábyrgð fylgir forsætisráð- herraembættinu og tilfinningin er að vissu leyti óraunveruleg,“ sagði Reinfeldt, sem er 41 árs og yngsti forsætisráðherra landsins frá árinu 1926. Hann tekur við embættinu af Göran Persson, formanni Jafnaðar- mannaflokksins, sem hefur gegnt embættinu í tíu ár. Reinfeldt mun birta ráðherralista sinn og flytja stefnuræðu nýrrar ríkisstjórnar í þinginu í dag. Að nýrri ríkisstjórn Svíþjóðar standa Hægri flokkurinn, Miðflokkurinn, Þjóðarflokkurinn og Kristilegir demókratar, en flokkarnir mynd- uðu með sér kosningabandalag í að- draganda þingkosninganna þann 17. september síðastliðinn, þar sem bandalag borgaraflokkanna hafði nauman sigur. Hllllllll 2jjj-40%afsl Grensásvegi s:5686668 Skútuvogi 16 s:5680020 - Akureyri s:4612540 - www.dyrarikid.is Vextir hækkaðir Stjórn evróþska seðlabankans ákvað á fundi sínum í gær að hækka stýrivexti um 0,25 prósent og eru stýrivextir því komnir í 3,25 prósent á evrusvæðinu. Seðlabankinn hefur hækkað vexti fimm sinnum siðan í desember. Ýmis merki eru um aukinn hagvöxt í stærstu hagkerfum evrusvæðisins. Ragnar Aðalstelnsson: Nefnd sem gagnast ekki ■ Óttast að vinna nefndar um öryggismál skili litlu Ragnari Aðalsteinssyni hæstarétt- arlögmanni finnst ólíklegt að niður- stöður nefndarinnar sem ætlað er að fjalla um aðgang að opinberum gögnum um öryggismál á árunum 1945 til 1991 komi að miklu gagni. Hann segir mikilvægast að almenn- ingur og fjölmiðlar fái að kynna sér málið. Frumvarp um rétt nefnd- arinnar til aðgangs að gögnunum hefur verið samþykkt á Alþingi. „Mér finnst nefndina skorta nægi- Iegt sjálfstæði," segir Ragnar. Hann bendir einnig á að nefndinni sé ætlað að gera tillögur um aðgang fræðimanna að gögnunum. „Þeir eiga sem sagt ekki að fjalla um að- gang almennings. Fjölmiðlar eiga ekki að fá aðgang að þessu heldur að- eins einhverjir valdir menn.“ Ragnar segir að sífellt sé verið að hamra á því í lögunum að nauðsynlegt sé að vernda persónur þeirra sem njósn- irnar beindust að. „En þetta er auð- vitað bara yfirvarp." Hann segir að starf nefndarinnar hafi engin áhrif Hefðuáttað fylgja fordæmi Norðmanna Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður á málarekstur hans en Ragnar hefur krafist aðgangs að þeim gögnum sem Guðni Th. Jóhannesson fékk að- gang að á sínum tíma. Aðspurður hvernig yfirvöld hefðu frekar átt að standa að þessu máli segir Ragnar að fara hefði átt að for- dæmi Norðmanna þegar þeir gerðu upp svipuð mál. „Þar var formaður nefndarinnar til dæmis lögmaður sem var algörlega óháður stjórn- völdum. Hún skrifaði síðan ítarlega skýrslu um rannsóknina sem var síðan gefin út og gerð öllum almenn- ingi aðgengileg. Hlutverkþessarar ís- lensku nefndar er mjög takmarkað og mun þar af leiðandi ekki verða að miklu gagni.“ Opnunartimi: Virka daga 16-22 Um helgar 12-22 Hækkaðu þig upp um einn PRPINOS Núpalind 1 Kópavogi Hverafold 1-5 Grafarvogi Reykjavikurvegi 62 Hafnarfirði

x

blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.