blaðið - 06.10.2006, Qupperneq 26
26 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
x
blaöiö
i
í dýragarði í Póllandi Þessi ungi ídýragarði ÍPóllandi varð þess heiðurs aðnjótandi í
sumar að fá heimsókn frá fegurstu konu heims.
Unnur á fslandi Þó að Unnur Birna hafí varið árinu að mestu leyti erlendis gaf hún sér
tima öðru hvoru til að koma heim. Hér er hún i heimsókn á Barnaspítala Hringsins í des-
ember í fyrra skömmu eftir að hún var krýnd ungfrú heimur.
Unnur á HM Unnur Birna brá sér meðal
annars á Heimsmeistaramótið í fótbolta
ísumar og sést hérásamt litnkum stuðn-
ingsmanni brasilíska landsliðsins.
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir lifir venjulegu lífi á ný
er ævintýri
Stórstjömulif fegurðardrottning
ar Unnur Birna Vilhjálmsdóttir segir
að það hafi verið skrýtið að takast á
við það stórstjörnulif sem fylgdi þvi
aö vera ungfrú heimur.
i-'
Uti
Unnur Birna V ilhj álmsdótt-
ir krýndi arftaka sinn í
keppninni Ungfrú heim-
ur sem fram fór i Varsjá
í Póllandi á laugardag. Sú sem tók
við kórónunni eftirsóttu var 18 ára
stúlka frá Tékklandi sem heitir Tat-
ana Kucharova en alls tóku 103 stúlk-
ur hvaðanæva úr heiminum þátt í
keppninni að þessu sinni.
Um leið lauk viðburðaríku og
óvenjulegu ári í ævi fegurðardrottn-
ingarinnar íslensku sem hún býr án
efa að það sem hún á eftir ólifað.
„Þetta var mikil lífsreynsla og
mikil upplifun út af fyrir sig að ferð-
ast um heiminn í hlutverki fegurð-
ardrottningar," segir Unnur Birna
og bætir við að þau störf sem fylgi
titlinum séu mjög þörf og mikilvæg.
,Það var mikils virði fyrir mig að vita
að við vorum virkilega að gera gott
og hjálpa til alls staðar í heiminum,"
segir Unnur Birna.
Hasar og stórstjörnulíf
Því fylgir mikil ábyrgð og vinna að
vera ungfrú heimur, að ekki sé talað
um öll ferðalögin.
„Vinnan fólst í því að ég ferðaðist í
raun og veru allt árið og fór úr einni
heimsálfu í aðra. 1 hverju landi sem
ég heimsótti unnum við með mis-
munandi góðgerðasamtökum sem
stóðu fyrir alls kyns fjársöfnunum.
Ég kom á svæðið og aðstoðaði þau
við fjársöfnunina og sýndi þar með
stuðning minn í verki," segir Unnur
Birna og bætir við að hún hafi hlotið
rosalega athygli bæði almennings og
fjölmiðla hvert sem hún hafi farið.
„Það var svolítið súrrealiskt að tak-
ast á við það. Ég hélt að það myndi
venjast en það er alltaf skrýtið að
upplifa þetta. Það voru kannski tugir
þúsunda manna komnir til að taka
á móti manni á flugvellinum, bara
til þess að sjá mann rétt i svip stíga
út úr flugvélinni og svo beint inn í
bil. Maður fékk að upplifa svolítinn
hasar í kringum þetta og eins konar
stórstjörnulíf,“ segir Unnur Birna.
Átti ekki von á að vinna
Hlutverk fegurðardrottningar er
vandasamt og engin leið að undirbúa
sig til fullnustu fyrir það. Sjálf segist
Unnur Birna í raun og veru ekki hafa
gert sér grein fyrir hverju hún ætti
von á þegar hún lagðí út í þetta ævin-
týri í upphafi.
„Ég átti nú í fyrsta lagi ekki von á
að vinna þessa keppni og var því ekk-
ert komin svona langt í huganum.
Ég tók bara hverja og eina ferð fyrir
sig og gerði mitt besta og reyndi að
skila þeirri vinnu sem ætlast var til
af mér. Þó að þetta hafi oft verið alve
g hörkupúl þá átti maður alveg æðis-
leg augnablik líka sem maður á eftir
að eiga í minningunni það sem eftir
er,“ segir hún.
Á þessu ári ferðaðist Unnur Birna
til um 20 landa í nokkrum heims-
álfum, aðallega í Asíu og Evrópu en
einnig fór hún til Bandaríkjanna
og Brasilíu. „Maður fékk að sjá fal-
legustu staðina í hverju landi fyrir
sig. Ég fékk að sjá æðislega hella,
garða og lokaða staði sem maður
hefði ekki gert sem venjulegur
ferðamaður.“
Viðtökur mismunandi eftir löndum
Að sögn Unnarvoru viðtökur fólks
nokkuð mismunandi eftir því hvert
hún fer. „Evrópubúar voru tiltölu-
lega rólegir yfir þessu en þótti þetta
samt sem áður spennandi. I Asíu var
þettabara toppurinn á tilverunni og
maður var nánast í guða tölu hvert
sem maður fór,“ segir Unnur Birna
og hlær að tilhugsuninni.
Á þessu ári var Unnur Birna nán-
ast stanslaust á ferðalagi erlendis
og lítið var um frí. Hún segist öðru
fremur hafa lært að temja sér sjálf-
saga á þessum tíma enda sé það nauð-
synlegt til að standa í þessu. „Maður
hefur líka lært af því að hafa svona
mikil samskipti við fólk á ólíkum
stöðum. Þetta var mikill skóli lífs-
ins og á hiklaust eftir að nýtast mér
í framtíðinni,“ segir Unnur Birna.
Búin að fá ýmis tilboð
Fegurðardrottningar njóta
gjarnan góðs af allri þeirri athygli
sem þær fá og oftar en ekki bjóðast
þeim góðir samningar í fyrirsætu-
bransanum eða fjölmiðlum eftir
að þær leggja veldissprotann á hill-
una eða krýna arftaka sinn. Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir er engin und-
antekning þar á.
Hún segist hafa fengið nóg af til-
boðum eftir árið, meðal annars um
störf í fyrirsætuheiminum, skemmt-
anaiðnaðinum og í sjónvarpi.
Ljóst er að Unnur Birna myndi
sóma sér vel á skjánum enda hefur
hún nú þegar nokkra reynslu á því
sviði. Áður en hún var krýnd ung-
frú heimur var hún um tíma umsjón-
armaður sjónvarpsþáttar hér heima
og einnig var hún fengin til að taka
að sér hlutverk kynnis í sérstökum
kynningarþáttum fyrir Miss World-
keppnina í síðasta mánuði.
Ógerningur reynist þó að fá upp
úr fegurðardrottningunni hvers
konar tilboð hún hefur fengið enda
telur hún of snemmt að tjá sig um
þau að svo stöddu.
„Það er ýmislegt í bígerð en það er
allt svo mikið leyndarmál í þessum
bransa að ég get ekkert gefið upp
með það,“ segir Unnur Birna sposk.
Brosir hringinn
Þó að árið sem ungfrú heimur
hafi verið viðburðaríkt og skemmti-
legt segir Unnur Birna að hún hafi
verið búin að fá sinn skammt og hún
myndi ekki treysta sér til að endur-
taka leikinn. Það er því á vissan hátt
mikill léttir fyrir hana að árinu
skuli vera lokið og hún geti snúið
sér aftur að hinu venjulega lífi.
„Ég held að ég sé búin að vera bros-
andi hringinn frá því að ég gekk út
af sviðinu á laugardagskvöld eftir
að ég var búin að losa mig við kór-
ónuna,“ segir hún og hlær.
„Ég hefði alls ekki viljað missa af
þessu en þetta er orðið gott. Ég sé alls
ekki eftir að hafa farið út í þetta.“
Unnur Birna er nú sest aftur á
skólabekk en hún stundar laganám
við Háskólann í Reykjavík.
„Það er svolítið spennufall nú þegar
þetta er búið en mér finnst það ofsal-
ega ljúft og frábært að vera komin
heim og geta skipulagt líf mitt sjálf,“
segir Unnur Birna Vilhjálmsdóttir
að lokum.
einar.jonsson@bladid.net
\