blaðið - 06.10.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 6. OKTÓBER 2006
blaðið
Helgarferðir
Um helgar er tilvaliö að breyta aðeins til og þá er um að gera að
skella sér í helgarferð. Stórborgir heimsins hafa
upp á svo óendanlega margt að bjóða og hvað er
betra en eyða þremur dögum í verslunum og á
veitingastöðum í góðum félagsskap?
Hlýtt og gott
Nú er farið að kólna og þá er um að gera að
kíkja í verslanir bæjarins og finna sér hlýjan
og góðan fatnað. Góð peysa, vettlingar og
trefill er eitthvað sem allir þurfa að eiga svo
að þeir verði ekki úti í vetur.
Draumahelgin er
ferð til Indlands
Pórdís Björnsdóttir
sendi á dögunum
frá sér Ijóðabókina
Vera og Linus með
Jesse Ball
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Ég er að hugsa um að skella mér á kvikmyndahátíð og
sjá einhverja góða mynd en annars hef ég ekkert plan-
að hvaða mynd það ætti að vera. Mig langaði mjög mik-
ið til þess að sjá Rússnesku örkina en það var víst síð-
asti dagurinn í gær til að sjá hana þannig að ég næ því
víst ekki. Annars er ég ekki búin að sjá neinar myndir
á hátíðinni þannig að nú verð ég að drífa mig og finna
einhverja áhugaverða mynd til að fara á.
Hvernig eyðir þú yfirleitt helgunum þínum?
Týpísk helgi hjá mér er voðalega misjöfn. Ég fer oft
út að borða en það er misjafnt hvert ég fer, það fer
bara eftir því hvers konar mat mig langar í og hvern-
ig stemningin er. En svo er ég mjög mikið heima að
drekka te og lesa og skrifa og fæ mér kannski smá
viskí og hef það huggulegt og fæ þá jafnvel vini í heim-
sókn.
V__________________________________________________
Hvernig er draumahelgin þín?
Ef ég gæti gert hvað sem er þá held ég að ég myndi vilja
fara til Indlands og vera þar í sveitinni en ekki í borgun-
um. Það er að vísu enginn sérstakur staður sem ég hef
í huga þar sem ég veit ekki nógu mikið um landið. Ég
þekki þó manneskju sem er í sveit á Indlandi og það er
víst alveg æðislegt.
Mælir þú með einhverju sérstöku um helgar?
Það er svo margt sem hægt er að gera. En ætli ég mæli
ekki með því að fólk fari í fjöruferð og taki með sér
nesti. Það geri ég stundum yfir daginn um helgar. Svo
á kvöldin þá finnst mér yfirleitt bara voðalega gott að
vera heima í rólegheitum með kerti og bók. Maður end-
urnærist svo mikið á því að vera í rólegheitum. Annars
held ég að það sé misjafnt hvað fólk ætti að nota tím-
ann í. Það fer bara eftir aðstæðum, hvað er að gerast
hverju sinni og svoleiðis.
Myndir þú klæðast þessu?
ÞVERRÖNDÓTT
Þær Joy Bryant, Heather Graham og Sotia
Coppola hafa greínilega ekki hlustað á
tískulöggurnar og alla þá sem predika það
að maður eigi ekki að klæðast þverröndóttu
frá toppi til táar. Myndir þú fara út í svona
kjól?
BLÓMARÓSIR
Ofurskvísurnar Kate Beckinsale, Sienna
Miller og Diane Kruger mega vart á sig
blómum bæta á meðan þær klæðast
þessum kjólum. Og spurningin er kannski,
eiga blómin frekar heima í vasa á stofuborð-
inu en framan á barmi þessara blómarósa?
HLÉBARÐAMUNSTUR
Það liggur við að maður verði hræddur
þegar maður sér þær Kylíe Minogue, Nicky
Hilton og Ditu Von Teese i þessum kjólum!
Hlébarðamunstur eru heit um þessar
mundir en er þetta ekki einum of?
SLAUFAUM HALSINN
„Tískutröllið" Kelly Osbourne, Zooey Des-
chanel og Aisha Tyier eru greinilega mikið
fyrir það að binda slaufur um hálsinn á sér,
hvort sem það er við boli eða stutta kjóla.
Sitt sýnist hverjum um það hvort þetta
komi vei út en spurningin er, myndir þú ná
þér í svarta slaufu í skápnum hjá afa þínum
og skella henni um hálsinn á þér?
Brad og Jolie vilja fleiri börn
Brad Pitt og Angelina Jolie hafa hug
á að stækka fjölskylduna sína á
næsta ári og vilja ættleiða þrjú
börn til viöbótar en fyrir eiga
þau börnin Maddox, Zahöru
og Shilou Nouvel sem fæddist
í maí. Brad segist ekkert vera að
grínast með þetta þar sem hann
stefni á að geta haldið úti heilu
fótboltaliði innan fjölskyldunnar og langar
að keppa með fjölskyldunni á heimsmeistara-
mótinu í knattspyrnu.