blaðið - 11.10.2006, Side 2
blaöið
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
VEÐRIÐ I DAG
Rok og rigning
Hvöss austanátt og búast má við stormi
suðaustanlands. Rigning víðast hvar en
mest á Suðausturlandi. Hiti 5 til 12 stig,
hlýjast suðaustantil.
Á MORGUN
Milt veður
Suðaustlæg átt og rigning
með köflum, minnst þó norðan-
lands. Hiti 5 til 10 stig, hlýjast
sunnantil.
VÍÐA UM HEIM
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
24
19
23
18
09
14
19
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
16
17
11
15
18
20
08
New York
Orlando
Osló
Palma
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
16
17
11
24 .
19
11
13
Srí Lanka:
Innflutt leik-
föng bönnuð
Stjórnvöld á Srí Lanka hafa
bannað innflutning á fjar-
stýrðum leikfangabílum, bátum
og flugvélum af ótta við að
tamílsku tígrariir muni útbúa
leikföngin meö sprengjum. Haft
er eftir háttsettum manni í
stjórnarhernum ao auðvelt sé að
útbúa fjarstýrðan leikfangabíl
með sprengju og koma honum
á áfangastað þannig að hann
valdi miklum skaða. Stjórnvöld
segja að tamílsku tígrarnir heyi
örvæntingarfulla baráttu og
ómögulegt sé að spá fyrir um
hverju þeir taki upp á í baráttu
sinni.
Lögreglumenn:
í sífellt
meiri hættu
Landssamband lögreglu-
manna telur starfsumhverfi
lögreglumanna verða sífellt
hættulegra. í yfirlýsingu frá
sambandinu segir að á síðustu
vikum hafi komið upp tvö tilvik
þar sem lögregla hafi þurft að
hafa afskipti af hættulegum
brotamönnum með hlaðin
skotvopn.
Landssamband lögreglu-
manna hefur lengi barist fyrir
bættu starfsumhverfi lögreglu-
manna. Sambandið fagnar því
að dómsmálaráðherra leggi til
að refsingar vegna ofbeldis í
garð lögreglumanna og samsvar-
andi stétta verði hertar verulega.
Við Elliðaárnar Ásta segir
um 50 rúmmetra af vatni á
sekúndu, eða sem samsvarar
10 Elliðaám, ónýtta af þvi
vatni sem rennurinn í Hálslón.
Ásta Þorleifsdóttir jarðfræðingur:
Mynd/Frikki
Næg orka þótt
lónið verði lækkað
■ Hálslón gæti minnkað um 35 prósent ■ Öryggið eykst
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Lækkun lónhæðar í Hálslóni getur
aukið öryggi til muna án þess að
hafa áhrif á orkugetu. Hreindýrin
geta gengið áfram um Kringilsárr-
ana og gæsir verpt þar, að því er
Ásta Þorleifsdóttir, jarðfræðingur
og jarðverkfræðingur, telur. Hún
segir tímabært að koma með tillögu
sem gefur mönnum færi á að koma
með nokkrum sóma upp úr skotgröf-
unum, eins og hún orðar það.
Vegna vaxandi gróðurhúsaáhrifa
hefur bráðnun Vatnajökuls orðið
hraðari en áður og rennslið í Jökulsá
þess vegna vaxið gífurlega. Þetta
vatn vill Ásta nota.
„Hagsýn húsmóðir myndi aldrei
láta renna 140 lítra af vatni í baðker
sem 90 lítrar rynnu út úr. Síðustu
fimm árin hafa um 140 rúmmetrar
á sekúndu runnið inn í Hálslón.
Það renna hins vegar að meðaltali
90 rúmmetrar á sekúndu út um
inntakið niður til virkjunarinnar,”
bendir Ásta á.
„Þetta þýðir einfaldlega að þriðj-
ungurinn af vatninu rennur yfir
stífluna, um yfirfallið og niður í
gljúfrið án þess að nýtast. Það verða
50 rúmmetrar á sekúndu í afgang
sem samsvarar 10 Elliðaám. Af þessu
aukavatni er engu að síður álag á
mannvirkin og jafnframt hætta á að
sprungur gliðni. Með því að lækka
vatnsborðið má tryggja mun betur
öryggi stíflnanna.”
Ásta segir hugsanlega hægt að
lækka lónhæðina um allt að 20 metra
án þess að skerða orkuframleiðslu og
minnka þá lónið samtímis um 35 pró-
sent að flatarmáli. Þar með eyðilegg-
ist ekki stór gróðursvæði sem menn
hafa áhyggjur af. Einnig dragi veru-
lega úr hættunni á uppblæstri.
Ásta hefur löngum haft áhuga
á Kárahnjúkasvæðinu en faðir
hennar, Þorleifur Einarsson jarð-
fræðingur, fór fyrstur íslenskra
jarðvísindamanna í Kringilsárrana
til að vinna, árið 1963. Hún var ein
fárra einstaklinga sem sendu inn
athugasemdir f matsferlinu. Hún
velti því fyrir sér hvort til væru ein-
hverjar mótvægisaðgerðir gagnvart
þeim gríðarlega uppblæstri og áfoki
sem menn eiga von á þar sem Jökla
er aurugasta á íslands. „I júlímánuði
einum getur framburður Jöklu verið
upp undir 3 milljónir tonna eða 100
þúsund tonn af aur á einum degi.
Það þyrfti 10 þúsund vörubíla á dag
til að flytja magnið. Eðlilega hefur
maður sem jarðvísindamaður hrein-
ræktaðan áhuga á þessu. Það hefur
ekkert með skoðanir manns á virkj-
unum að gera. Það er einfaldlega
heillandi að velta því fyrir sér hvort
eitthvað sé hægt að gera.”
Fylla á Hálslón hægt svo sjá megi
hvort misgengin í sprungnu berg-
inu hreyfist. Tvær botnrásir eru í
gegnum Kárahnjúkastíflu. Uppá-
stunga Ástu gengur út á að halda lón-
hæðinni niðri með því að nota efri
botnrásina. Þessa rás á að nota næsta
sumar til að tempra hraðann á vatns-
söfnun. „Það verður nóg vatn til að
fullnægja allri orkuþörfinni. Ef þetta
virkar ekki og ekki fæst nóg vatn, má
alltaf loka rásinni. Við höfum allt að
vinna með því að prófa þetta.”
Frakkar og Tyrkir:
Deila hart um
þjóðarmorð
Tyrknesk stjórnvöld íhuga
að setja viðskiptaþvinganir á
frönsk fyrirtæki ef franska
þingið samþykkir lög sem
heimila yfirvöldum að fangelsa
og sekta þá sem neita að viður-
kenna að Tyrkir hafi framið
þjóðarmorð á Armenum í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Tyrkneskir stjórnmálamenn
eru æfir vegna málsins. Fjölda-
morð Tyrkja á Armenum f fyrri
heimsstyrjöldinni eru einn
umdeildasti atbjurðurinn í sögu
þjóðarinnar. Táið er að hálf
önnur milljón Ármena hafi
látið lífið í skipnlögðum fjölda-
morðum Tyrkjl.
Argentina:
Refsað fyrir
að fagna
Argentínskur lögreglumaður
hefur verið leystur frá störfum
í tíu daga í refsingarskyni fyrir
að fagna marki á knattspyrnu-
leik sem hann var að vakta.
Lögreglumaðurinn fagnaði gríð-
arlega þegar liðið Estudiantes
de La Plata skoraði þriðja mark
sitt gegn Lanus og innsiglaði þar
með góðan útisigur.
Áhangendur Lanus voru ekki
ánægðir með hlutdrægni lög-
reglumannsins og grýttu hann
með ýmsu lauslegu. Hann var
síðar fjarlægður af vellinum af
starfsbræðrum sínum til þess að
koma í veg fyrir frekari óeirðir.
11W*
ÍSLANDS
NAUT
ÁS°/o alvl.ilI ur al Ivlandvniiiilvuiiriini í iiervlununi llóniiv |i('.vvíi uiloi
Verjendur í Baugsmálinu boða kæru til Mannréttindadómstóls
Kæra íslenska ríkið
Óréttlát málsmeðferð Varnaraðilar íBaugsmálinu hafa boðað ákæru til
Mannréttindadómstóls Evrópu og segja málsmeðferð óréttláta.
„Við erum búin að senda frá okkur
tilkynningu um kæru til Mannrétt-
indadómstóls Evrópu. Með kærunni
erum við f raun að kvarta yfir máls-
meðferðinni og teljum hana ekki
standast ákvæði mannréttindasátt-
mála Evrópu,” segir Gestur Jónsson,
hæstaréttarlögmaður og verjandi
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Meginatriði kærunnar snúa að
óréttlátri málsmeðferð fyrir vil-
höllum dómstóli og óeðlilegum
ummælum opinberra aðila. í þeim
ummælum hafi settur ríkissaksókn-
ari, Sigurður Tómas Magnússon, og
dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason,
brotið gegn varnaraðilum á þeim for-
sendum að allir teljist saklausir uns
sekt sé sönnuð.
Sigurður Tómas telur kæru til
Mannréttindadómstóls Evrópu ekki
hafa nein áhrif á málsframvindu fyrir
íslenskum dómstólum. „Að mfnu
mati snertir þessi kæra ekki það mál
sem er fyrir íslenskum dómstólum
og þetta hefur ekki nein áhrif á gang
þess máls,“ segir Sigurður Tómas.
.Innlend úrræði fyrir dómstólum
hafa ekki verið tæmd og þvf tel ég
fljótt á litið þessa kæru ótímabæra."
Gestur segir ljóst að vankantar séu
í íslenskri löggjöf þegar kemur að end-
urútgáfu kæruatriða eftir að þeim
hefur verið vísað frá dómi.