blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 8

blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 blaöið UTAN UR HEIMI Viljja slíta efnahagstengsl við Dani Mikill meirihluti þingmanna í íranska þinginu hvatti í gær Mahmoud Ahmadinejad forseta til að slíta öll viðskiptatengsl við Dani sökum þess hve iðnir þeir eru við að vanvirða spámanninn Múhameð. Dæmd fyrir kynlíf í mosku Kenískt par sem var staðið að verki við kynlífsat- hafnir í mosku hefur verið dæmt í átján mánaða fangelsi. Dómarinn sagði athæfið svivirðilega móðgun við íslam, sérstaklega í helgum mánuði múslíma. Hvorki maðurinn né konan eru múslíma Bandaríkjamenn skortir sýn Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, segir Bandaríkjamenn skorta bæði sýn og vilja til að koma á varanlegum friði fyrir botni Miðjarðarhafs. í viðtali við breska ríkisútvarpið sagði forsetinn að Sýrlendingar væru reiðubúnir til friðarviðræðna við ísraela en þörf væri á aðkomu þriðja aðila. Hann teldi bandarísk stjórnvöld ekki reiðubúin að gegna því hlutverki. Flugslys í Stord suður af Bergen í Noregi: Náðu ekki að hemla Lögreglan: Afbrotum fækkar Afbrotum sem varða við hegningarlög hefur fækkað um 13 prósent í Hafnarfirði síðan árið 2000 samkvæmt bráða- birgðaskýrslu lögreglunnar í Hafnarfirði. Síðan á síðasta ári hefur innbrotum þó fjölgað lítillega og það sama á við um þjófnaði. Þá hefur hraðakstur aukist nokkuð en á siðasta ári voru hraðakstursmálin 1.563 á meðan þau eru 1603 það sem af er þessu ári. Árið 2000 voru þau 1489. Að sama skapi hefur umferðarslysum fjölgað um 16 prósent síðan árið 2002. Mesta athygli vekur að fíkni- efnamál nær þrefaldast síðan árið 2000 en það ár voru þau 62 á meðan þau eru 192 alls í ár. Þrír létust þegar flugvél rann út af flugbraut við lendingu á eyj- unni Stord, suður af Bergen, i gær- morgun. f vélinni voru tólf starfs- menn norsks gasvinnslufyrirtækis á svæðinu og fjögurra manna áhöfn. Vélin var á leiðinni frá Stafangri til Molde, en var að millilenda á Stord. Talið er að flugmennirnir hafi ekki náð að hemla í tæka tíð fyrir lend- ingu. Við lendingu heyrðust miklir hvellir og gaus mikill eldur upp í vélinni auk þess sem mikill reyk- mökkur steig til himins. Fjölmennt Brotlenti Björgunarlið kom fljótt á vettvang og leitaði mannanna. björgunarlið kom fljótt á vettvang og hófst leit að þremur sem saknað var. Leitað var að þeim bæði á landi og sjó og fundust líkin fáum klukkustundum síðar. Flugvélin var af gerðinni British Aerospace 146 og tekur 89 farþega. Hún var í eigu færeyska flugfé- lagsins Atlantsflog, en flugfélagið hefur áður lent í vanda með vélar sínar af sömu gerð. í síðasta mánuði kom það tvisvar fyrir að vélarnar þurftu að nauðlenda á Fleslands-flugvelli í Bergen eftir að bilun kom upp í lendingarbúnaði. írak: Myrtu bróður varaforseta Vígamenn klæddir í einkenn- isbúninga lögreglumanna myrtu Amir al-Hashimi, herforingja í íraska hernum og bróður vara- forsetans, Tariq al-Hashimi, í Bagdad. Vígamennirnir komu á tíu lögreglubílum og réðust inn á heimili herforingjans og myrtu hann og rændu syni hans. Her- foringinn var einnig hernaðar- ráðgjafi núverandi ríkisstjórnar. Bróðir fórnarlambsins er einn af leiðtogum stærstu fylkingar súnníta á íraska þinginu. Fyrr á þessu ári myrtu vígamenn aðra ættmenn hans í árás. Átökin á milli trúarhópa í írak fara harðnandi með degi hverjum. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum falla að meðaltali hundrað manns í árásum í landinu á degi hverjum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.