blaðið

Ulloq

blaðið - 11.10.2006, Qupperneq 33

blaðið - 11.10.2006, Qupperneq 33
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 33 Fyrstu háskólatónleikar vetrarins: Lög fyrir fólkið Fyrstu háskólatónleikar vetrarins verða haldnir í hátíðarsal Háskóla ís- lands í dag klukkan 12.30. Á tónleik- unum munu Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona og Jónas Ingimund- arson flytja íslensk sönglög eftir nú- lifandi tónskáld. Á efnisskránni eru sönglög eft- ir Hjálmar H. Ragnarsson, Jónas Ingimundarson, Jón Ásgeirsson og Tryggva I. Baldvinsson. Auður segir að áherslan sé lögð á þessi tónskáld vegna þess að þau séu svo dugleg að semja og eigi skilið að vera haldið á lofti. „Mörg af þessum lögum eru svo góð að það er sjálfsagt að halda þeim að fólki þannig að þau verði þjóðareign þegar frá líður,“ segir Áuður og bætir við að hún og Jónas hyggist senn taka upp disk með lög- um núlifandi íslenskra tónskálda. Jónas perla af manni Auður og Jónas hafa áður gefið út disk saman og ber sópransöngkon- an samstarfinu við píanóleikarann vel söguna. „Jónas er náttúrlega bara perla af manni. Hann er svo ljúfur og þægi- legur maður og með afskaplega langa reynslu af því að vinna með söngvurum. Það er ekkert nema gott um hann að segja og gaman að vinna með honum,“ segir hún. Auður er með ýmis önnur járn í eldinum þessa dagana því að um miðjan næsta mánuð kemur út geisladiskur með sönglögum Sig- valda Kaldalóns sem hún tekur þátt í og í lok þessa mánaðar kemur hún fram á óperutónleikum í Tíbrárröð- inni í Salnum. Hark að lifa af listinni Auður er nýflutt heim eftir að hafa búið og starfað erlendis og seg- ir hún talsvert hark að lifa af listinni hér á landi. „Ef þú ert til dæmis að syngja við óperuhús erlendis er dagatalið oft þéttskrifað og þú ferð úr einni sýningunni yfir í aðra. Þá ertu að vinna við þetta allan ársins hring og syngur mörg hlutverk yfir árið. Hér höfum við bara eina óperu sem er kannski leikin tíu sinnum annað hvort að hausti eða vori og ef þú ert heppin færðu að vera með og ef ekki verðurðu bara að fara og horfa á,“ segir hún. Meiri gróska í tónlistarlífinu Þegar Auður er spurð um hvort Is- lendingar sýni klassískri tónlist og óperutónlist mikinn áhuga nú á dög- um segir hún að mikið hafi breyst á undanförnum árum. „Fyrir nokkrum árum var auðveld- ara að fylla hús en það er sennilega vegna þess að það er orðið svo of- boðslega mikið framboð og gróska i þessari litlu borg að fólk þarf að velja á milli. Núna keppa kannski þrjár uppá- komur um áhorfendur sama kvöld- ið.“ Þrátt fyrir áhuga almennings á klassískri tónlist gengur ekki nógu vel að fá unga fólkið til að mæta á þess háttar tónleika að mati Auðar. „Krakkar sem kynnast þessu bíta íslensk tónskáld í öndvegi Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona og Jónas Ingimundarson píanóleikari flytja sönglög eftir núlifandi íslensk tónskáld á fyrstu háskólatónleikum vetrarins sem fram fara i dag. Bim/frikki flest á agnið en það þarf náttúrlega að kenna þeim að hlusta á þetta fyrst eða bægja burt óttanum. Það er eins og margir séu svo hræddir við þessa tónlist og það er eins og það sé einhvers konar ótti sem heldur fólki frá henni sem er mikil synd því að manni opnast náttúrlega heill heim- ur við að fara inn á þetta svið,“ segir Auður Gunnarsdóttir. Fullbúinn alvörujeppi á einstöku verdi 3.395.000 kr. m HEKLA* Pajero sport Sjálfskiptur medV6 bensínvél, 177 hestöfl 3.395.000 kr. Aflmeiri 136 hestafla dísilvél 3.595.000 kr. i 35.539 kr. á mánudi Miöaö við 30% útborgun og gengistryggöan bíiasamning SP til 84 mánaöa. Stadalbúnadur: ■ Hátt og lágt drif ■ Álfelgur • Stigbretti • Vindskeid • Skyggdar rúdur • ABS hemlalæsivörn Umboösmenn um land allt: Höldur hf., Akureyri, sími 461 6020 • HEKLA, Borgamesi, sími 437 2100 • HEKLA, ísafiröi, sími 456 4666 I HEKLA, Laugavegi 174, sími 590 5000 HEKLA, Reyöarfiröi, sími 470 5100 • HEKLA, Reykjanesbæ, sími 420 5000 • HEKLA, Selfossi, sími 482 1416 I www.hekla.is, hekla@hekla.is

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.