blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 9

blaðið - 11.10.2006, Blaðsíða 9
blaðið MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 9 Yfirlæknir á Sogni vill betri eftirmeðferðarúrræði: Geðfatlaðir á götunni „Það er stundum talsvert áhyggju- efni að finna viðeigandi búsetu fyrir sjúklinga sem fara héðan,“ segir Magnús Skúlason, yfirlæknir á rétt- argeðdeildinni Sogni í Árborg, en hann telur að það þurfi fleiri eftir- meðferðarúrræði fyrir geðsjúka. Fyrir helgi losnaði maður af Sogni sem er ákærður fyrir hrottalega líkamsárás en hann býr núna hjá móður sinni og þarf að láta vita af sér einu sinni á dag, annars er ekki virkt eftirlit með honum þó að hann sé í umsjá Sogns. Hann hefur þegar sent konu, sem hefur áður fengið nálgunarbann á hann, afmæliskort Stundum eru starfsmenn í því að heimsækja sjúklinga Magnús Skúlason, yfirlæknlr á Sogni og blóm. „Stundum eru starfsmenn í því að heimsækja sjúklinga og reyndar eru alltaf einhver eftirmeð- ferðarúrræði í dómum sem kveðnir eru upp þegar fólk losnar af deild- inni,“ segir Magnús sem vill sjá fleiri sambýli fyrir geðfatlaða þar sem er sólarhringsgæsla og aðbún- Þarna er neyðin mest og það þarfað bregðast skjótt við Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar aður góður. Slík sambýli eru þegar til staðar í landinu en ljóst er að það þarf fleiri. „Helst vildi ég sjá þau hér í grennd- inni og það getur líka verið gott fyrir geðfatlaða að sleppa við skark- alann og hraðann í borginni,“ segir Magnús. Vill eftirmeðferðarúrræði Sárlega vantar húsnæði og úrræði fyrir geðfatlaða eftir að þeir koma af Sogni að mati Magnúsar Skúiasonar, yfirlæknis á Sogni. „Sigursteinn Másson, formaður Geðhjálpar, segir dæmi um að þrír til fjórir búi saman í íbúð og bætir við að sennilega búi um 170 annars vegar á stofnunum og hins vegar við óviðunandi aðstæður. „Þarna er neyðin mest og það þarf að bregðast skjótt við.“ Hann vonar að þau verkefni sem félagsmálaráðu- neytið kynnti á mánudag skili sér í fleiri sambýlum fyrir geðfatlaða. fsland sé talsvert á eftir öðrum nor- rænum ríkjum varðandi aðbúnað geðfatlaðra. Því verði að breyta. Rússland: Reka fólk til Georgíu Rússnesk stjórnvöld héldu áfram að vísa Georgíumönnum úr landi í gær. Senda átti 119 manns aftur til Georgíu eftir að rússneskir dómstólar höfðu kveðið upp úrskurð um að þeir hefðu ekki dvalarleyfi. Á mánudag átti að senda um 270 manns aftur til síns heima en hætta varð við þá fyrirætlan þar sem stjórnvöld í Georgíu veittu flugvélinni ekki lending- arleyfi. Mikhail Saakashvili, forseti Georgíu, sagði ástæðuna þá að stjórnvöld gætu ekki liðið að farið væri með fólkið eins og klaufdýr en flugvélin sem átti að nota til fararinnar er fraktflutningavél. Nota átti venjulega farþegaflugvél til far- arinnar í gær. Frakkland: Banna reyk- ingar í febrúar Dominique de Villepin, for- sætisráðherra Frakklands, hefur lýst því yfir að reykingabann taki gildi í landinu næstkom- andi febrúar. Bannað verður að nota tóbak á opinberum stöðum eins og lestarstöðvum og í háskólum og að ári liðnu mun bannið einnig ná yfir öldurhús, næturklúbba og veitingahús. Talið er að um tólf milljón Frakkar reyki að staðaldri og hátt í sjötíu þúsund látast vegna sjúkdóma sem eru raktir til reyk- inga á ári hverju. Leiðtogafundurinn íHöfða 20 ára afmælisdagskrá Upphaf endaloka kalda stríðsins eru rakin til fundar Ronald Reagan, fyrrum Bandaríkjaforseta og Mikhail Gorbachev, fyrrum aðalritara sovéska Kommúnistaflokksins, í Höfða 11. og 12. október 1986. í tilefni þess að 20 ár eru liðin frá þessum merka viðburði standa Reykjavíkurborg, Háskóli íslands og lcelandair fyrir fjölbreyttri dagskrá um Höfðafundinn og áhrif hans á alþjóðastjórnmál og friðarmál í heiminum. Meðal dagskrárliða má nefna: Þriðjudagur 10. okt. kl. 17.00 Leifttogafundurlnn f Reykjavík 1986. Opnun Ijósmyndasýningar í Ráðhúsi Reykjavíkur. Sýning verður opin almenningi frá og með miðvikudeginum 11. október. Miðvikudagur 11. okt. Leiðtogafundurinn í Reykjavík 1986 - Ijósmyndasýníng f Ráðhúsi Reykjavíkur. kl. 20.00 Áhrif leiötogafundarins á íslenska blaöa- og fréttamennsku. Málþing Blaðamannafélags íslands í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fimmtudagur 12. okt. kl. 17.00 Fyrirlestur Mikhail Gorbachev f Háskólabfói. Miðasala í síma 511 2255. Föstudagur 13. okt. kl. 13.30 Áhrif leiötogafundarins í Höföa áriö 1986 á lok kaida stríösins. Ný skjöl um fundinn úr bandarískum og rússneskum ríkisskjalasöfnum. Málþing í samstarfi við Háskóla íslands og lcelandair, í Tjarnarsal Ráðhússins. Föstudagur 13. okt. Höföi til sýnis fyrir almenning frá klukkan 13.30 - 17.00 Sunnudagur 15. okt. Höföi til sýnis fyrir almenning frá klukkan 13.30 - 17.00 HÁSKÓLI ÍSLANDS Reykjavíkurborg WWW.ICELANDAlR.tS

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.