blaðið - 11.10.2006, Qupperneq 22
22 I FJÁRMÁL HEIMILANNA
MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006 bladió
Vinsældir árshátíðarferða að aukast
Fyrirtækið GB ferðir sérhæfir
sig í borgarferðum ásamtgolf- og
skíðaferðum en áfangastaðir fyrir-
tækisins eru meðal þeirra bestu í
heiminum.
GB ferðir bjóða fyrirtækjum upp
á skipulagningu árshátíðarferða til
helstu stórborga Evrópu en það er
sífellt að færast í aukana að bæði
stór og smá fyrirtæki bjóði starfs-
mönnum sín út. „Við tökum að
okkur að skipuleggja árshátíðir fyrir
allt að 350 manna hópa erlendis
segir Jóhann Pétur Guðjónsson hjá
GB ferðum.
„Fyrirtæki hafa í auknum mæli
verið að hafa samband við okkur
og biðja okkur um að skipuleggja
svokallaðar árshátíðarferðir eða
hópferðir til þessara áfangastaða
sem við erum að bjóða upp á. Þá
er um ferðir að ræða sem þarfnast
mikillar skipulagningar. Fyrir utan
flug og gistingu bætast við ferðir til
og frá flugvelli, skoðunarferðir og
þess háttar. Svo erum við í því að
bóka veitingastaði fyrir suma hópa
en yfirleitt er einn galakvöldverður
á hótelinu.“ Að sögn Jóhanns eru
hóparnir misstórir, allt frá 40-250
manns. „Stærsti hópur sem við
höfum tekið telur um 270 manns.
Þá þarf til dæmis að útvega stóran
sal með dansgólfi og sviði og svo er
bókuð hljómsveit þaniiig að þetta
er gífurlega mikið ferli þegar um
svona marga er að ræða. Það er því
mun þægilegra fyrir fyrirtæki að
geta leitað á einn stað til þess að
fá alla þessa þjónustu þar sem það
er gríðarleg vinna að skipuleggja
svona ferð svo að vel sé.“
Þjónusta alla leið
Eigendur GB ferða taka sjálfir út
öll þau hótel sem viðskiptavinum
er boðið upp á. „Við þekkjum alla
okkar áfangastaði mjög vel og gerum
miklar kröfur sjálfir þannig að
fyrirtæki geta treyst því að ef þetta
fer í gegnum síuna hjá okkur þá er
þetta mjög gott en við erum yfirleitt
að bjóða upp á fjögurra og fimm
stjörnu hótel. Síðan er þetta líka
bara spurning um fyrirtækin. Það
er oftast skipulögð árshátíðarnefnd á
vinnustöðunum sem á að sjá um árs-
hátíðirnar og til þess að starfsmenn-
irnir í nefndinni geti líka slappað
eitthvað af úti þá er miklu betra að
láta sjá um svona hluti fyrir sig. Við
eigendurnir förum svo með í stóru
ferðirnar þar sem okkur finnst nauð-
synlegt að tryggja góða þjónustu alla
leið og erum til staðar ef eitthvað
kemur upp á. Þegar ferðin er farin
að telja 150-200 manns þá viljum við
ekki láta einhvern fararstjóra sjá um
þetta vegna þess að maður veit aldrei
hvaða ábyrgð fararstjórar hafa á end-
anum,“ segir Jóhann.
Spennandi áfangastaðir
GB ferðir bjóða upp á ferðir til vin-
sælla áfangastaða. „Þetta eru mjög
skemmtilegar borgir sem við erum
að bjóða upp á. Við erum með þessar
hefðbundnu borgir eins og London,
París, Amsterdam, Kaupmannahöfn
og Frankfurt og komum til með að
bæta nokkrum borgum við á næsta
ári eins og til dæmis Berlin og hugs-
anlega einni til tveimur borgum í
Bandaríkjunum, þannig að við erum
stöðugt að bæta við úrvalið okkar
enda vill fólk sífellt fara til nýrra og
spennandi áfangastaðá'.
Að sögn Jóhanns hafa London og
Kaupmannahöfn verið vinsælustu
borgirnar hingað til. „Þessar borgir
eru alltaf vinsælar hjá Islendingum
en við höfum fundið fyrir auknum
áhuga á Frankfurt til dæmis en sú
borg hefur í raun upp á allt það sama
að bjóða og London svo dæmi sé tekið.
Þá á ég við verslun, veitingastaði og
skoðunarferðir. Það eru gríðarlega
mikil vínhéruð þar og við bjóðum
til dæmis upp á vínsmökkunarferðir.
Síðan eru borgir eins og Berlín sem
við höfum mjög mikla trú á og okkar
tilfinning er að hún verði New York-
borg Evrópu innan fárra ára.“
Árshátíðarferðirnar eru yfirleitt
frá fimmtudegi til sunnudags. „Það
er svona dæmigerður ferðatími í
þessum borgarferðum en þegar hóp-
urinn er orðinn stærri en 100 manns
þá er hópnum oft skipt í tvennt.
Annar hópurinn fer þá á fimmtu-
degi og kemur heim á sunnudegi en
hinn kemur á föstudegi og fer heim
á mánudegi. Síðan erum við alltaf
með sameiginlegan kvöldverð á laug-
ardagskvöldinu sem er árshátíðar-
kvöldið. Þá eru til dæmis fordrykkir
og kvöldverður, ræðuhöld, skemmti-
atriði og tónlist. Þá er bara slegið upp
flottu balli. 1 þessum ferðum vill fólk
líka oftast versla eitthvað og svo er
hægt að fara í skoðunarferðir, á fót-
boltaleik eða í leikhús eftir því sem
hópurinn óskar sér,“ segir Jóhann.
Mikil fagmennska
„Eftirspurnin er alltaf að aukast hjá
okkur og er orðið gríðarlega mikið
um það að fyrirtæki fari í svona ferðir,
bæði lítil og stór. Svo höfum við líka
heyrt af því að fyrirtæki eru að fara
í skemmtisiglingar og taka þetta þá
ennþá lengra og fara kannski í viku-
siglingu. Það eru þá oft fyrirtæki sem
eru kannski með árstíðabundnari
rekstur. Það má eiginlega segja að
möguleikarnir séu óþrjótandi þar
sem ferðir til og frá íslandi eru auð-
vitað orðnar svo tíðar og mikið (boði
í venjulegu áætlunarflugi.“ Jóhann
segir það algengast að fyrirtæki séu
að fara annað hvert ár til útlanda með
starfsmenn sína. „Ég veit ekki um
neitt fyrirtæki sem gerir þetta árlega.
Það tekur líka tíma að skipuleggja
svona og til þess að þetta sé vel gert,
sérstaklega ef um stærri fyrirtæki er
að ræða, þá þarf alveg 12 mánaða und-
irbúningstíma. Það er ekkert hlaupið
að því að fá hundrað herbergi á hót-
elum og við höfum það þannig að
allir gisti á sama hóteli. Við vinnum
líka bara með hótelum sem geta tekið
alveg upp í 250 manna hópa.“
Starfsmenn GB ferða vinna náið
með þeim hótelum sem viðskipta-
vinum er boðið upp á. „Við þekkjum
hvert hótel mjög vel og erum með
samninga á hverjum áfangastað. Á
þessum hótelum sem við bjóðum upp
á í árshátíðarferðunum þá þekkjum
við alla stjórnendur vel og eigum í
góðum samskiptum við starfsfólkið
þannig að við fáum mjög góða þjón-
ustu. Við höfum árshátíðarkvöld-
verðinn oftast á hótelinu þar sem við
treystum hótelunum best fyrir þessu.
Sum þeirra eru með Michelin-veitinga-
staði þannig að gæði veitinganna eru
mjög mikil. Það er mikil fagmennska
í gangi enda eru þetta góð viðskipti
fyrir hótelin.“
GB ferðir skipuleggja aðallega
styttri ferðir en bjóða einnig upp á allt
að tveggja vikna borgarferðir. „Borg-
arferðirnar eru í eðli sínu styttri en
síðan erum við að bjóða upp á lengri
skíðaferðir og golfferðir sem eru allt
frá tveimur dögum til tveggja vikna.
Við erum bæði með tilbúnar pakka-
ferðir og síðan sníðum við ferðirnar
að þörfum hvers og eins. Annars
gerum við bara það sem hentar kúnn-
anum best hverju sinni,“ segir Jóhann
að lokum.
í>ROSENGRENS
Stálslegið öryggi
Einfaldlega betri
| gg ; * -
BEDCO & MATHIESEN EHF
Bæjarhrauni 10 Sími 565 1000 Netfang: bedco@bedco.is
220 Hafnarfirði | Fax 565 1001 | www.bedco.is
Oryggisskápar • Peningaskápar • Skjalaskápar • Skrifstofuskápar