blaðið - 11.10.2006, Qupperneq 27
blaöið MIÐVIKUDAGUR 11. OKTÓBER 2006
FJÁRMÁL HEIMILANNA I 27
Lög um uppfinn-
ingar starfsmanna
Vinnuveitandi á hagnýtingarrétt á
uppfinningum starfsmanna
Uppfinningar starfsmanna
geta verið gullnáma fyrirtækja.
Ágúst H. Ingþórsson, forstöðu-
maður rannsóknarþjónustu Há-
skóla Islands, segir ný lög um upp-
finningar starfsmanna vera einföld.
Ekki séu lengur tvenn lög, ein sem
gilda um starfsmenn einkafyrir-
tækja og ein um starfsmenn opin-
berra fyrirtækja heldur ein löggjöf
sem gangi yfir alla starfsmenn.
„Starfsmanni er skylt að tilkynna
vinnuveitanda sínum ef vinna
hans leiðir af sér einkaleyfatæka
uppfinningu,” segir Ágúst. „Vinnu-
veitandinn á síðan hagnýtingarrétt
á uppfinningunni og má sækja um
einkaleyfi og ráðstafa einkaleyfinu
að vild. Það er hins vegar skýrt í
lögunum að umbun verður að vera
sanngjörn til starfsmanns. Ein-
hvers konar verklag þarf að vera til
fyrirmyndar um hvernig umbun-
inni skal háttað. Til dæmis fer Land-
spítali - háskólasjúkrahús þá leið
að þriðjungur fari til starfsmanns,
þriðjungur til deildar og þriðjungur
„Áöur var það þannig
aö starfsmenn í opin-
bera geiranum sáu
sjálfir um hagnýtingu
hugverka sinna eða
uppfinninga."
til fyrirtækisins.”
Ágúst segir skyldu starfsmanna
vera einfalda á pappírum en ekki í
framkvæmd. „Það hlýtur alltaf að
vera matsatriði hvað sé einkaleyfa-
tæk uppfinning,“ bendir hann á.
„Auk þess verður uppfinningin að
tengjast starfssviði starfsmannsins.
Ef þú færð bráðsnjalla hugmynd í
kaffitímanum sem tengist ekki fyrir-
tækinu þá á vinnuveitandinn ekkert
tilkall til hagnýtingarréttar og þú
færð allan ágóða af hugmyndinni.”
„Áður var það þannig að starfs-
menn í opinbera geiranum sáu sjálfir
um hagnýtingu hugverka sinna eða
uppfinninga. En nú, með einni lög-
gjöf, standa opinberar stofnanir
jafnfætis einkafyrirtækjum sem
lengi hafa haft ákvæði um uppfinn-
ingar starfsmanna í starfsmanna-
samningum sínum.”
Ágúst telur lagasetninguna eðli-
lega þróun og að þetta fyrirkomulag
stuðli frekar að því að þekking sé
hagnýtt. „Meginhagsmunir vísinda-
manna eru að uppgötva nýja þekk-
ingu og miðla henni en ekki að verja
þekkinguna og gera úr henni mark-
aðsleg verðmæti. Það er ekki þeirra
styrkur,” segir Ágúst og vill meina
að starfskröftum þeirra sem vinna
að vísindum sé betur varið við rann-
sóknir en markaðsstörf.
Lögin breyta verulega lagalegu
umhverfi um hugverkaréttindi frá
SM AAUGLY SIN
XÆKI
FÆRI
blaðiðsi
SMAAUGt.YSINGAR@BUDID.NET
því sem áður var, sérstaklega hvað
varðar einkaleyfi. Allar opinberar
stofnanir og fyrirtæki eiga nú laga-
legt tilkall til uppfinninga starfs-
manna eða nemenda við skóla. Um
leið eru skyldur háskólans við hina
síðastnefndu auknar.
dista@bladid.net
Allt til alls!
Á góðu verði fyrir alla - alltaf
rm
SERPO 261
Múrkerfi
Steyptur veggur
- Plasteinangrun eóa
PAROC harópressuð steinull
SERPO 261 trefjamúr
Glertrefjanet
- SERPO 261 trefjamúr
Steining/ málning
/ filtmúr
DEKA Sílan
MAXITIP22 gifshúð
Dekaflex flísalím
DEKATOPP inndælingarefni
maxil COMBI 4040
viðgerðarefni
CHEMFIX boltalím
DEKA SEALER
DALAPRO Spartl
DEKA TOPP rakagrunnur
HEYTií þéttiefni
Málning, múr- og þéttiefni
fyrir húsið
Við bjóðum þig velkominn nýja verslun Múrbúðarinnar á nýjum stað að
Kletthálsi 7. Þar bjóðum við glæsilegt úrval afhvers kyns byggingavörum,
verkfærum og tækjum á góðu verði fyrir alla - alltaf.
MURBUÐIN
Byggingavöruverslunin íÁrbænum
Kletthálsi 7 ■ Sfmi: 544-5470 ■ sala@murbudin.is ■ www.murbudin.is
Akureyri - Húsavík