blaðið - 09.11.2006, Síða 1
227. tölublað 2. árgangur
fimmtudagur
9. nóvember 2006
FRJÁLST,
KOLLA OG KULTURINN
„Ég segi að þetta sé saga
um sögu," segir Bubbi
& um bók Jóns Atla Jónas-
m sonarumhann Isiða32
■ HEILSA
Berglind var með dóttur
sína í blóðgjöfum og
rannsóknum í um
tveggja ára skeið | síða37
Fréttaúttekt um óhefðbundnar og vafasamar aðferðir lögreglunnar:
Lögðu stór mál til hliðar
■ Fjörutíu lögreglumenn voru grunaðir ■ Greiningardeild fær að beita óhefðbundnum aðferðum
Eftir Trausta Hafsteinsson trausti@bladid.net
„Mjög algengt var að skýrslur sem innihéldu upp-
lýsingar um alvarleg brot, jafnvel stóran innflutn-
ing eða dreifingu fíkniefna, hafi verið lagðar í
skjalaskáp án nokkurrar rannsóknar vegna
anna við aðrar rannsóknir, fjárskorts eða mann-
fæðar.“ Þetta kom meðal annars fram í bréfi sem
Arnar Jensson skrifaði vegna rannsóknar á hvort
lögreglan hefði brotið lög þegar hún beitti óhefð-
bundnum aðferðum við rannsóknir alvarlegra
sakamála. Fullyrt er að sakir hafi sannast um
brot lögreglumanna í starfi. Enginn var ákærður.
Ný greiningardeild, sem hefur heimild til
óhefðbundinna lögreglustarfa, tekur til starfa
um áramót við embætti ríkisslögreglustjóra.
Hún mun meðal annars rannsaka landráð, grun
um hryðjuverk og skipulagða glæpastarfsemi.
Fyrir tíu árum fór fram ítarleg rannsókn á starf-
semi lögreglunnar í Reykjavík þar sem fjörutíu
lögreglumenn fengu stöðu grunaðra. Talið var að
þeir hefðu gerst sekir um brot í opinberu starfi
og brotlegir við refsilög.
„Brotin voru framin og vitað hverjir tengdust
þeim. Sönnun fyrir þessum tengslum við Frank-
lín Steiner var fyrir hendi. í ljós komu tilvik sem
gáfu til kynna að svo væri, meðal annars mál er
vörðuðu Ííkniefnabrot, en ekkert meira varð úr.
Síðan höfðu horfið frumskjöl úr gagnabönkum,
sem aldrei hafa fundist þrátt fyrir ítarlega leit,“
segir heimildarmaður Blaðsins. „f mörgum trún-
aðarsamtölum við vitni málsins fékkst þetta sam-
starf staðfest en þegar á hólminn var komið þorðu
menn ekki að koma fram undir nafni. Af þeim
sökum þóttu ekki nægar sannanir fyrir hendi.“
Gunnleifur Kjartansson, fyrrverandi rann-
sóknarlögreglumaður, segist varla trúa að verið
sé að stofna greiningardeild. „Lögreglan hefur
áður legið undir grun um að hafa beitt aðferðum
á vægast sagt gráu svæði og því spyr maður hver
muni fylgjast með starfsemi og aðferðum þess-
arar greiningardeildar,“ segir Gunnleifur. „Rann-
sóknin sýndi að lögreglan fór út fyrir það sem
lög heimiluðu á þeim tíma. Ég er hræddur um
að greiningardeildin endi uppi sem eftirlitslaust
ríki í ríkinu.“
Sjá einnig síður 20 og 29
‘MYND/FRIKKI
Snjór í borginni Ekki gefst oft tækifæri til að kasta snjóboltum í höfuðborginni. Guðbrandur, Kristinn og Gylfi létu sér það ekki úr greipum ganga og grýttu hver annan í leik í Breiðholt-
inu í gær. Kalt var í borginni, einungis 1,3 gráður klukkan f imm síðdegis og slydduél.
» síða 30
Brugga meira
Agnes Anna Sigurðardóttir,
segir að í bruggverk-
smiðju komi upp
vandamál dag
hvern en þau séu
leyst jafnóðum.
VEÐUR
» síða 2 I SÉRBLAO
Vindasamt
Tíu til tuttugu metrar á
sekúndu, hvassast norðvest-
antil. Slydda og síðar rigning,
en úrkomulítið á Norðaustur-
og Austurlandi. Hlýnandi,
hiti 2 til 8 stig síðdegis.
Sérblaö um
vetrarlíf fylgir
Blaöinu í dag
» siður 21-28
Ódýrt til Noregs
í vetur!
Reykjavík ->Osio
"Kr. 7.420.«.-
Reykjavík ->Kristiansand
Kr. 12.350 aðra leið
Aðrir áfangastaðir í Noregi
einnig á frábæru verði!
Skattar og flugvallargjöld innifaiiö
www.flysas.is
Sími fjarsölu: 588 3600
S4S
A STAR ALUANCE MEMBER
Veldu 5 stjörnu
öryggi lífsins vegna!
Renault Laguna II
Nýskr. 05.2003,
5 dyra, ssk., ekinn 55 þ.
Verð kr. 1.730.000
Renault Megane II
Nýskr. 08.2003,
5 dyra, bsk., ekinn 30 þ.
Verð kr. 1.360.000
Renault Scenic II
Nýskr. 07.2005,
5 dyra, ssk., ekinn 17 þ.
Verð kr. 2.560.000
Renault SCENIC II
Nýskr. 10.2003,
5 dyra, bsk., ekinn 56 þ.
Verð kr. 1.660.000
,575 1230,
„ . Kringlunni
Smaralind 568 9400
554 7760