blaðið - 09.11.2006, Blaðsíða 32
40 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006
blaðiö
Wenger og Pardew kæróir
Stjórar Arsenal og West Ham, þeir Alan Pardew og Arsene Wenger, hafa
verið ákærðir af enska knattspyrnusambandinu fyrir ósæmilega hegðun i
leik liðanna um siðustu helgi. Stjórunum lenti saman á hliðarlinunni eftir
að West Ham skoraði og gætu þeir átt yfir höfði sér sekt og leikbann.
Skeytin inn
Fabio Capello, stjóri Real
Madrid, sagði við spænska
fjölmiðla í gær að það hafi
tekið tíma fyrir David Beck-
ham að jafna sig eftir að vera
settur út úr enska landsliðinu
þegar Steve McClaren tók við
liðinu í sumar. „Þessi erfiði
tími hefur valdið Beckham
sálfræðilegum
erfiðleikum, en
hann er allur
að ná sér á strik
aftur,” sagði
Capello. David
Beckham hefur
enn ekki náð að
festa sig í sessi
í byrjunarliði
Madrídarliðsins
og hefur ekki
skrifað undir
nýjan samning
við félagið.
Capello sá einnig ástæðu
til að tjá sig um slakt
líkamlegt form brasil-
íska snillingsins Ronaldos við
spænska fjölmiðla í gær. „Ron-
aldo skortir snerpu og hraða,
ég skil ekki hvernig menn
hyggjast ná árangri
, í spænsku deildinni
efvantaruppá
það,“sagðiCapello.
([{' Stjórinn ítalski við-
urkenndi að hann
væri að íhuga að
setja Ronaldo í B-lið
Real Madrid þar
til hann kemur sér í
nægilega gott form
til að spila með
aðalliðinu.
Sögulegur leikur Southend vann
sinn fyrsta titil í hundrað ára sögu fé-
lagsins þegar liðið sigraði aðra deild-
ina. Um leið var Southend ífyrsta
sinn að vinna sér sæti i fyrstu deild.
■ ■ '»1
rm
Southend leikur í fyrsta sinn í fyrstu deild:
Fyrsti titill Southend
vannst eftir 100 ár
Alex Ferguson, stjóri
Manchester Utd., sagði
á þriðjudagskvöld að
engin ástæða væri til að
örvænta þrátt fyrir
skammarlega tap.
„ Það er ekkert að
því að tapa ef
maður getur
lært af því.“
ABO PHARMA
Gefur virkni allan daginn!
Tilson reif liðið
Eftir Reyni Hjálmarsson
reynir@bladid.net
adoPharma
VITAMÍNC
„+ZINK
0 PEPOT
hýsk gæði á góðu verði
Fæst í: Árbæiarapótekl, Garðsapótckl.
Lyfjavall Álftamýrl, Lyfjavali Hæðasmára,
Lyfjavali Mjódd, Lyfjaver og Rimaapóteki.
Óvæntustu úrslitin í sextán liða
úrslitum enska deildabikarsins
voru án vafa 1-0 sigur Southend
United á Manchester United. Sout-
hend, sem er í neðsta sæti fyrstu
deildar hefur ekki unnið deildar-
leik síðan í ágúst, en er nú búið að
tryggja sér sæti í átta liða úrslitum
deildabikarsins.
Um 160.000 búa í Southend sem
staðsett er á austurströnd Englands,
65 kílómetrum fyrir austan London.
Bærinn er helst þekktur sem vinsæll
ferðamannastaður en hefur ekki
verið þekktur fyrir afrek í íþróttum
þar til nýlega.
Tilson þakkað veigengnin
Knattspyrnufélagið Southend Un-
ited hafði frá stofnun félagsins árið
1906 til ársins 2005 allt tíð leikið i
neðstu eða næstneðstu deild í Eng-
landi og ekki unnið einn einasta
titil. í fyrra komst félagið loksins
naumlega upp í aðra deild eftir um-
spil. Southend kláraði síðasta tíma-
bil í fyrsta sæti annarrar deildar og
vann því sinn fyrsta titil í 100 ára
upp ■ Komnir í átta liða úrslit eftir sigur á Manchester United
sögu félagsins um leið og félagið
vann sér í fyrsta skipti sæti í fyrstu
deild. Stjóra félagsins, Steve Tilson,
sem tók við liði Southend árið 2004
þegar hann hætti sem leikmaður hjá
félaginu, er að miklu leyti þakkað
velgengni félagsins síðustu tvö árin,
en margir stjórar höfðu staldrað
við hjá félaginu árin á undan með
litlum árangri. Stuttu eftir að Til-
son tók við stjórnartaumunum hjá
Southend komst félagið í fyrsta
bikarúrslitaleik í sögu félagsins og
vann sig upp um tvær deildar á jafn-
mörgum árum. Það þarf þá vart að
taka fram að þetta er í fyrsta sinn
sem félagið kemst í átta liða úrslit
deildabikarsins.
Tímabilið hjá Southend í fyrstu
deildinni hefur hins vegar ekki
farið vel af stað, en liðið er í neðsta
sæti deildarinnar með tíu stig eftir
sextán leiki og hefur ekki sigrað í
deildinni síðan í ágúst.
Eastwood og Flahavan stjörnurnar
Helstu stjörnur Southend eru
sóknarmaðurinn Freddy Eastwood
og markmaðurinn Darryl Flahavan.
Eastwood er alinn upp hjá Southend
og gekk til liðs við félagið að nýju
SOUTHEND:
Stofnár: 1906
Leikvangur: Roots Hall
Pláss: 12.306
Titlar: 2005-2006:
Sigurvegarar 2. deildar
w saa
árið 2004, eftir eins árs dvöl hjá West
Ham. Síðan Eastwood sneri aftur
hefur hann skorað grimmt fyrir
félagið og varð til að mynda marka-
hæsti leikmaður annarrar deildar á
síðasta tímabili. Þótt Eastwood hafi
á sínum stutta ferli skorað mörg mik-
ilvæg mörk fyrir Southend í baráttu
liðsins við að vinna sig upp um deild
var stærsta stund ferils hans án efa
þegar hann skoraði beint úr auka-
spyrnu gegn Manchester United á
þriðjudagskvöld. Úrvalsdeildarfélög
hafa enn ekki sýnt Eastwood áhuga
en fyrstu deildar liðin Norwich og
Derby hafa borið víurnar i hann.
Tímabilið fyrir Eastwood hefur
farið ágætlega af stað, en hann hefur
skorað sex mörk í sextán leikjum liðs-
ins á tímabilinu.
Darryl Flahavan, markmaður
Southend, er 27 ára gamall og kom
til Southend árið 2000. Hann hefur
S0UTHEND - MAN. UTD.
Maöur leiksins:
Nafn: Darryl Flahavan
Fæðingardagur:
28. nóv 1978
Staða: Markmaður
Ferill:
Tímabil Félag Leikir
1996-1998 Southampton 0
1998-2000 Woking 33
2000- Southend 229
Markaskorari Southend:
Nafn: Freddy Eastwood
Fæðingardagur:
29. okt. 1983
Staða: Framherji
Ferill:
2002- 2003 West Ham 0 (0)
2003- 2004 Grays Athletic (utandeild. ekklskfSÖ)
2004- Southend 83(45)
átt stóran þátt í velgengni félagsins
undanfarin ár og var valinn besti
leikmaður annarrar deildar í fyrra.
Flahavan þykir bæta upp smæð
sína með áræðni, fimi og skjótum
viðbrögðum. Flahavan var valinn
maður leiksins í leiknum gegn Manc-
hester United á þriðjudag.
SÉRSMÍÐUM SÓFA EFTIR MÁLI
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA
OPIÐ
Mán-fös: 8-18
Laugard. 10-14
| Sími: 553-9595 www.gahusgogn.is Ármúli 19]
n u s s m |
Björgólfur aðalfjárfestir Eggerts:
Byggt á vináttu og ást á boltanum
Fréttatilkynning frá íjárfestahópi
Eggerts Magnússonar staðfesti í gær
að Björgólfur Guðmundsson væri
stærsti fjárfestingaraðilinn á bak
við tilboð Eggerts í úrvalsdeildarlið
West Ham United.
I fréttatilkynningunni kemur
fram að Eggert og Björgólfur
hafi verið vinir í mörg ár og
deili ástríðu fyrir enskri
knattspyrnu. Þá kemur
fram að Björgólfur muni
styðja Eggert að fullu og alla
leið í samningaumleitunum
við West Ham. Eggert er talinn
hafa yfirhöndina yfir íranann
Kia Joorabchian sem átti í
viðræðum við forráðamenn
West Ham í síðustu viku,
en ekkert tilboð barst frá
honum að loknum viðræðum.