blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006
blaöi6
ÁMORGUN VÍÐAUMHEIM ]
VEÐRIÐ I DAG
Sunnanátt
Hvöss sunnanátt, 10 til 20 metrar
á sekúndu, hvassast norövestantil.
Slydda og síðar rigning en úrkomulítiö
norðaustan- og austantil. Hiti 2 til 8 stig.
Vindasamt
Búast má við umhleypingaveðri
næstu daga og ansi vindasömu.
Hiti víðast aðeins yfir
frostmarki.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
20
9
19
9
14
8
11
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
9
9
0
9
10
15
n
New York
Orlando
Osló
Palma
París
Stokkhólmur
Þórshöfn
16
18
0
21
12
2
7
Enn er hart barist á Srí Lanka:
Nær fimmtíu féllu
Tamílsku tígrarnir saka stjórn-
arherinn á Srí Lanka um að hafa
myrt 45 óbreytta borgara og sært
125 í árásum á flóttamannabúðir
í Batticaloa-héraði í austurhluta
landsins.
Talsmenn hersins segja að
tígrarnir hafi gert árásir á bæki-
stöðvar hans í héraðinu og þeim
hafi verið svarað með stórskota-
liðsárásum. Þeir segjast ekki vita
til þess að mannfall hafi orðið
meðal óbreyttra borgara. Ríkis-
stjórn Srí Lanka hefur hvatt fólk
til þess að flýja þau svæði sem
eru undir yfirráðum uppreisn-
armanna tígranna en uppreisn-
armennirnir eru sakaðir um að
skýla sér fyrir árásum með því
að leynast á meðal óbreyttra
borgara.
Dæmdur fyrir umferðarlagabrot:
Sá ekki lögguna
Karlmaður á þrítugsaldri var
í gær dæmdur í Héraðsdómi Suð-
urlands til að greiða 70 þúsund
krónur í sekt vegna hraðaksturs
og fyrir að sinna ekki stöðvunar-
merkjum lögreglu.
Það var í lok siðastliðins júlí-
mánaðar að lögreglan veitti bif-
reið mannsins eftirför eftir að
hann hafði ekið henni of hratt og
óvarlega á hringtorgi á Selfossi.
Við eftirför lögreglu ók maðurinn
á tvö boðskilti á umferðareyju,
yfir göngustíg og endaði loks í
garði við heimili sitt.
Maðurinn játaði að hafa keyrt
á skiltin en neitaði að hafa
ekki sinnt stöðvunarmerki lög-
reglu eða ekið of hratt. Sagðist
hann ekki hafa séð lögreglu í
baksýnisspeglinum.
PRÓFKJÖR 2006:
Aðeins tveir af tíu efstu frambjóðendum sjálfstæðismanna í
Reykjavík hafa gefið upp hversu mikið prófkjörsbarátta þeirra
kostaði. Það eru þau Pétur Blöndal og Sigríður Andersen. Einn
háði enga formlega kosningabaráttu og var því ekki spurður
um kostnað. Það er Geir H. Haarde, forsætisráðherra og for-
maður Sjálfstæðisflokksins, sem var óumdeildur í fyrsta sætið.
GUÐFINNA BJARNADÓTTIR
REKT0R 4. SÆTI
Hver var kostnaður þinn við próf kjörsbaráttuna?
Hann er ekki orðinn Ijós ennþá.
Hverjir voru helstu styrktaraðilar þinir i baráttunni?
Þeir voru margir, bæði fyrirtæki og einstaklingar. Ég veit sjálf
ekki hverjir þeir eru.
Hefur verið gerð grein fyrir launum starf smanna á þínum
vegum?
Nei, það er ekki búið. Það er ennþá í vinnslu.
Útlendingar í íslensku-
námi Samfélaginu til hags-
bóta að útlendingar læri
islensku Myml/Eyþár
Skipa tugi nefnda
en gera ekkert
■ Aðgerðaleysi stjórnvalda ■ Á annan tug nefnda ■ Algjör farsi
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Jnnflytjendaráð, sem á að sjá um
stefnumótun í málefnum innflytj-
enda, var stofnað fyrir rétt tæpu ári
og fékk enga fjárveitingu þá fyrir
þetta ár. Á fjárlögunum sem eru
fyrir þingi núna er ekki gert ráð
fyrir neinum fjármunum í ráðið.”
Þetta segir Gerður Gestsdóttir,
verkefnastjóri hjá fræðsludeild Al-
þjóðahússins, sem dregur í efa vilja
stjórnvalda til framkvæmda í mála-
flokknum. Árum saman hafi verið
skipaðar nefndir sem skili álitum
sem ekki sé svo farið eftir. Málið
snúist um allt frá komu útlendinga
til landsins til aðlögunar þeirra að ís-
lensku samfélagi en stjórnvöld hafi
ekkert gert.
„Við komuna til landsins treysta
flestir útlendinganna á að atvinnu-
veitandinn veiti þeim upplýsingar.
Ef um er að ræða fólk utan Evrópska
efnahagssvæðisins ber atvinnurek-
anda skylda til að veita því upplýs-
ingar. Ef um er ræða fólk frá Evr-
ópska efnahagssvæðinu ber engum
skylda til að upplýsa það,” bendir
Gerður á.
Stjórnvöld hafa
ekkert gert
Gerður Gestsdóttir,
verkefnastjóri fræðslu-
deildar Alþjóðahússins
„Þegar útlendingar eru komnir
með vinnu verður einhver stofnun
að sækja um kennitölu fyrir þá. Það
er þá atvinnurekandinn eða í ein-
hverjum tilfellum Alþjóðahús. Til
að fá dvalarleyfi verður viðkomandi
að fá samning sem getur reynst tor-
sótt því sumir vinnuveitendur kæra
sig ekki um skrifa upp á samning.”
Gerður segir að þegar dvalarleyfi
sé fengið verði útlendingar að skrá
lögheimili hjá Þjóðskrá. „Til að það
sé hægt verða þeir að búa í löglegu
húsnæði. Sumir búa jafnvel í upp-
gerðu atvinnuhúsnæði eða gámum
og þá stoppar kerfið því að til að kom-
ast inn í sjúkratryggingakerfið þurfa
menn að vera með skráð lögheimili.”
Það er mat Gerðar að það sé hlut-
verk ríkisins að veita útlendingum
upplýsingar um hvað þeir eigi að
gera til að þeir geti uppfyllt skyldur
sínar og öðlast fullgild réttindi hér á
landi. í öðru lagi eigi íslenskukennsla
að vera ókeypis.
„Það er öllu samfélaginu til hags-
bóta að innflytjendur læri sem fyrst
íslensku svo að þeir hafi einhvern
aðgang að því. Þetta er ekki gert.
Ríkið leggur einhvern smápening í
íslenskukennslu. Sú upphæð hefur
hækkað eitthvað undanfarin ár en
hún er ekki í neinu samhengi við
fjölgun innflytjenda.”
Ingibjörg Hafstað, kennslustjóri í
Alþjóðahúsinu, segir markvissar að-
gerðir alltaf hafa vantað. Ekkert hafi
breyst frá því að fyrsta nefndin hafi
verið sett á laggirnar í byrjun tíunda
áratugar síðustu aldar. Ingibjörg sat
sjálf í þeirri nefnd. „Þá vorum við
aðallega að hugsa um hvað þyrfti að
gera í grunnskólunum. Það var út-
tekt á því sem gert hafði verið á Norð-
urlöndunum, hvað hefði heppnast og
hvað ekki.”
Að sögn Ingibjargar hafa á annan
tug nefnda starfað síðan þá. Hún
hefur setið í nokkrum nefndanna
eða verið kölluð til sem sérfræðingur.
„Ályktanir allra hafa verið af sama
meiði en hlutirnir hafa ekkert breyst.
Við höfum enga stefnu. Þetta er í
raun algjör farsi.”
Kostnaður vegna endurskoðunar stjórnarskrárinnar:
19 milljónir í nefndastörf
Heildarkostnaður vegna starfa
stjórnarskrárnefndarinnar og
sérfræðinganefndar hennar, sem
skipaðar voru í ársbyrjun 2005, er
orðinn rúmar 19 milljónir króna.
Samkvæmt upplýsingum frá for-
sætisráðuneytinu fá nefndarmenn
28.280 krónur í fasta þóknun 28.820
krónur nema formaður sem fær
43.230 krónur.
Nefndarmenn í sérfræðinga-
nefnd hafa þar að auki fengið greitt
sérstaklega fyrir ítarlegri skriflegar
greinargerðir sem þeir hafa samið.
Að því er kemur fram í upplýs-
ingum forsætisráðuneytisins eru
stærstu liðir heildarkostnaðarins
laun og launatengd gjöld, kostn-
aður við fundi og ráðstefnuhald. I
aukafjárlögum 2005 var gert ráð
Miðar lítið áfram Útlit er fyrirað
stjórnarskrárnefnd nái ekki saman
um tillögur.
fyrir 22 milljóna króna í kostnað
vegna nefndanna beggja en í fjár-
lögum 2006 aðeins lægri upphæð
eða 20 milljónum og 900 þúsund
krónum.
Munurinn á kostnaðaráætlun
og raunkostnaði er meðal annars
sagður helgast af því að gert var
ráð fyrir samningu frumvarps til
nýrra stjórnskipunarlaga á þessu
ári en af því hefur ekki orðið.
Stjórnarskrárnefndinni, sem í
sitja níu manns, var falið að end-
urskoða stjórnarskrána í heild.
Nefndin telur sig ekki geta afhent
forsætisráðherra tillögur um breyt-
ingar á stjórnskipunarlögum fyrir
árslok eins og kveðið var á um.
Nefndarmenn í sérfræðinganefnd-
inni eru fjórir.