blaðið - 09.11.2006, Qupperneq 13
blaðið
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 13
Vatnið hækkar í Hálslóni:
Hundrað metra djúpt
„Lónshæð Hálslóns er nú 556,5
metrar yfir sjávarmál, sem þýðir að
vatnsdýpið næst stíflunni er rúmir
hundrað metrar,“ segir Sigurður
Arnalds, kynningarstjóri Kára-
hnjúkavirkjunar. „Enn á eftir að
fylla tæpa sjötíu metra. Þá er flatar-
mál lónsins nú tólf ferkílómetrar en
verður að lokum 57 ferkílómetrar.
Nú mun hægja verulega á rennslinu
í vetur og verður aðalfylling lónsins
að rúmmáli næsta sumar.“
Sigurður segir að Kárahnjúka-
stífla hafi staðið sig mjög vel og að
lekinn fyrir neðan stífluna sé óveru-
legur. „Það segir okkur enn sem
komið er að allur frágangur neðst
á stíflunni og undir henni virðist
hafa tekist með afbrigðum vel. Lek-
inn sem kemur undan stíflunni er
minni en tíu lítrar á sekúndu."
Rennsli Jöklu hefur verið nokkuð
umfram það sem gerist \ meðalári.
,Það sést best á því að upphaflega
var búist við að lónið næði núver-
andi hæð í byrjun desember. Hlý-
indi í síðasta mánuði gerðu það hins
vegar að verkum að fylling lónsins
er eitthvað á undan áætlun,“ segir
Sigurður og bætir við að ís sé kom-
inn á lónið, allt sé hvítt og mjög vetr-
arlegt um að litast.
Kárahnjúkastífla Þessi mynd var
tekin fyrr íhaust áður en vatninu var
hleypt á stífluna.
Vatn hækkar við stífluna Enn á eftir
að fylla tæpa sjötíu metra Lóniö verður
að lokum 57 ferkílómetrar.
Invent Farma
Kaupir í
Lyfjaveri
Lyfjafyrirtækið Invent Farma
hefur keypt meirihluta hlutafjár
í lyfsölufyrirtækinu Lyíjaveri,
sem rekur apótek og tölvustýrða
lyfjaskömmtun fyrir sjúkra-
stofnanir og einstaklinga.
Aðalsteinn Steinþórsson,
stjórnarformaður I.yíjavers,
segir að með innkomu Invent
Farma í fyrirtækið verði á
næstu misserum lögð áhersla
á útrás á erlenda markaði með
tölvustýrða lyfjaskömmtun.
Invent Farma er í eigu íslenskra
fjárfesta og með meginstarf-
semi í Barcelona á Spáni.
Þýskaland:
Jólaljósin
sett upp
Jólin eru farin að setja svip
sinn á umhverfi fólks þó enn
sé hálfur annar mánuður til
jóla. Á breiðgötunni Unter
den Linden í Berlín er búið að
hengja jólaljós á trén. Þar átti
þessi kona leið um þegar tekið
var að dimma. Heldur bjartara
var þó en allajafna vegna
hinna miklu ljósa á trjánum.
Súgandafjörður:
Sluppu vel
úr bílveltu
Betur fór en á horfðist þegar
jeppi valt við bæinn Botn í
Súgandafirði. Fernt var í jepp-
anum þegar óhappið varð og
þykir mesta mildi að þau hafi
sloppið án teljandi meiðsla því
bifreiðin er talin gjörónýt.
Lögreglan á ísafirði segir
að hálka hafi líklega verið
orsökin fyrir slysinu.
■■■I ■ | | ^pr jr ■ ■ | ■ ■
Fjor 1 profkjori
- kosningahóf Kristrúnar
Kosningahófið er í kvöld 9. nóvember klukkan 20:00 á splunkunýjum
veislustað sem heitir PikkNikk og er í Héðinshúsinu.
Djasstríó Sunnu Gunnlaugs spilar
Léttar veitingar
Lesið www.kristrun.is
pistill á hverjum degi
Prófkjörið í Reykjavík er opið stuðningsfólki.
Þú þarft ekki að vera í flokknum til að kjósa!
Samfylkingin
Hvað ef þau réðu öllu á íslandi - hvað gerðu þau fyrst?
Mínúta á mann!
Guðmundur Steingrímsson, frambjóðandi
Elísabet Jökulsdóttir, skáld
Agnar Freyr Helgason, ritstjóri Vefritsins
Katrín Anna Guðmundsdóttir, talskona
Stefán Benediktsson, arkítekt \
Margrét Sigurðardóttir, knattspyfnukona
Karl Th. Birgisson, útvarpsmaður
Eva María Jónsdóttir, sjónvarpskona