blaðið - 09.11.2006, Page 29

blaðið - 09.11.2006, Page 29
blaði FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 2006 37 heilsa Lúsabaninn Bandarískir vísindamenn hafa þróað tæki sem drepur hárlús og nit á skilvirkari hátt en þær aðferðir sem fyrir eru. Tækið sem kallast Lúsabaninn minnir helst á hárblásara og drepur nit- ina og lýsnar og með því að þurrka þær í um hálftíma. Sterar og andfélagsleg hegðun Tengsl eru á milli notkunar anabólískra stera og andfélagslegrar hegðunar svo sem ólöglegrar vopnaeignar og svikastarfsemi samkvæmt nýrri sænskri rannsókn. Vísindamennirnir segja þó að þeir sem nota stera séu ekki lík- legri en aðrir til að fremja ofbeldisglæpi á borð við morð og líkamsárásir. heilsa@bladid.net Helgin 9.-13. nóv. ABO PHARMA Gefur vlrknl allan daginn! ADOPHARMA ZINK-BIOTIN KAPSELN Börn með langvinna sjúkdóma Fær góðan stuðning För Hout. Hoore. Nögel Berglind og Arna. Kiúklingaveisla frá ísfugli Grillaður kjúklingur, franskar og 2ja lítra Coca Cola 1/1 ferskur kjúklingur 30% afsláttur kr. 468,- -fcn66flk Úrbeinaðar bringur án skinns 30% afsláttur kr. 1.686,- kr&4Q8^ Kjúklingalæri/leggir magnbakki 30% afsláttur kr. 484,- «ki^692^ henni í leikskólanum. Hún tekur ekki þátt í hlaupaleikjum heldur vill hún sitja kyrr og ekki eyða orkunni," segir Berglind en bætir við að sem betur fer sýni starfsfólk leikskólans veikindum hennar skilning og hún fái þann stuðning sem hún þurfi á að halda. Fannst við eiga bágt Veikindin höfðu mikil áhrif á dag- legt líf þeirra hjóna og þurfti Berg- lind að vera heima með Örnu í tvö ár. „Það var enginn tími til að fara út á vinnumarkaðinn. Þegar hún var tveggja ára fór ég í mastersnám og það gekk ágætlega, enda var hún þá komin á leikskóla. Núna er ég farin að vinna en Arna er alltaf undir reglu- bundnu eftirliti á spítalanum, þó ekk- ert í líkingu við það sem áður var,“ segir Berglind. Það reynir ekki síður mikið á fólk andlega að eignast langveikt barn og þurfa að takast á við breyttar aðstæð- ur. „Stundum var þetta rosalega erfitt og mér fannst við eiga ofboðslega bágt. Þess á milli var maður í góðum gír. Maðurinn minn er alger Pollý- anna. Hann hafði meiri styrk til að takast á við þetta og hefur verið stoð mín og stytta í gegnum þetta allt saman. Við eigum líka rosalega góða fjölskyldu og erum með net í kring- um okkur. Eg sé ekki hvernig þetta hefði gengið upp án hennar. Við vor- um náttúrlega með annað lítið barn og það voru alltaf allir tilbúnir til að veita hvaða stuðning sem er og eru enn,“ segir Berglind. Það hefur mikil áhrif á daglegt líf fólks og störf að eignast barn sem á við langvinnan sjúkdóm að stríða. Berglind Ósk Kjartans- dóttir og Tryggvi Sigurðsson, eig- inmaður hennar, þekkja það af eigin raun en dóttir þeirra Arna er haldin langvinnum blóðsjúk- dómi. Strax við fæðingu kom í ljós að Arna ætti við blóðvandamál að stríða og þurfti hún þegar á fyrsta sólarhringnum að gangast undir fyrstu blóðgjöfina af mörgum. „Síðan tóku við tvö ár þar sem við vorum meira og minna með hana í blóðgjöfum og rannsóknum uppi á spítala. Það koma upp margir auka- kvillar þegar barnið er viðkvæmt og veikt. Læknarnir voru stöðugt í tvö og hálft ár að reyna að komast að því hvað væri að henni og þeir eru ekki enn búnir að komast að því. Við erum enn þá í óvissu um hvað er að henni en staðan í dag er miklu betri,“ segir Berglind og bætir við að Arna hafi ekki þurft á blóðgjöf að halda í um eitt ár en sé undir reglulegu eftirliti. Félagsleg einangrun barnanna Foreldrum sem eiga langveik börn þykir oft mikill stuðningur í því að hitta aðra foreldra sem standa í sömu sporum en þar sem ekki var ljóst hvað gengi að Örnu vissu Berglind og eiginmaður hennar ekki hvert væri best að leita. Þau ákváðu fljótlega að leita til Einstakra barna, stuðnings- félags barna með sjaldgæfa og alvar- lega sjúkdóma, og segir Berglind að það hafi verið mikið gæfuspor. „Það hefur svo mikið gildi að hitta foreldra sem standa í sömu sporum, eru kannski með ógreind börn eða börn sem eru haldin sjaldgæfum sjúkdómum því að maður getur sam- samað sig við þá. Þetta er fólk sem er að ganga i gegnum reynslu sem eng- inn gerir ráð fyrir að þurfa að ganga í gegnum. Ég held að það séu oft svip- uð vandamál sem foreldrar þurfa að takast á við þó að sjúkdómarnir séu ólíkir,“ segir Berglind ogbætirvið að oft upplifi til dæmis langveik börn vissa félagslega einangrun vegna veikinda sinna. Sú hefur verið raun- in með Örnu sem er nú á leikskóla- aldri. „Hún er lítil og úthaldslaus og eng- an veginn með sama kraft og önnur börn. Það kemur svolítið niður á

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.