blaðið - 15.11.2006, Síða 20
K°U&
Þaö er einungis ein leið til að vera
í hamingjusömu hjónabandi og um
leið og ég kemst að því hver hún er
geng ég aftur í hjónaband.
Clint Eastwood
Afmælisborn dagsms
ERWIN ROMMEL HERFORINGI, 1891
MARIANNE MOORE LJÓÐSKÁLD, 1887
blaöiö
36 MIÐVIKUDAGUR 15. NÓVEMBER 2006
kolbrun@bladid.net
Listhönnun úr
íslenskum leir
Listvinahús og leirmunagerð
Guðmundar Einarssonar frá
Miðdal og samverkafólks
hans, stofnuð 1927, eru löngu
orðnar kunnar stærðir í sögu
lista og hönnunar í landinu. í
nýrri og glæsilegri bók er birt
vandað yfirlit yfir rúmlega 170
styttur, líkneski, listgripi og
nytjahluti, ásamt samantekt á
sögu fyrirtækisins og leirmuna-
framleiðslunnar frá 1930 til
1956. Höfundar texta eru Eiríkur
Þorláksson listfræðingur og Ari
Trausti Guðmundsson, rithöf-
undur og jarðeðlisfræðingur,
sem ritstýrði einnig verkinu.
Myndgerð annaðist Ragnar Th.
Sigurðsson.
Bókin er 150 bls. í allstóru broti
með nálægt 200 hágæðalit-
myndum og enskum jafnt sem
íslenskum texta. Upplag bókar-
innar er aðeins 800 eintök.
Spennubók fyrir
alla aldurshópa
Út er komin bókin Skugganirðir
eftir G.P. Taylor. Sögusviðið er Eng-
land á 18. öld. Ob-
adiah Demurral er
sóknarprestur en
líka skuggahirðir
því hann talar við
hina dauðu. Hann
stjórnar íbúunum
í þorpunum Peak
og Thorpe af
mikilli hörku. Nú
er það ekki lengur nóg fyrir hann
heldur vill hann ná yfirráðum yfir
öllum heiminum. Demurrel svífst
einskís í þeirri baráttu og verður
sér úti um vopn sem getur fengið
Guð og englana til að hlýða
honum.
Vinirnir Tómas, Kata og Rapha
dragast inn í æsispennandi bar-
áttu milli góðs og ills. Furðulegar
verur eru á sveimi og dularfullir
atburðir gerast. Óvíst er hvort
smyglaranum Jakobi Crane sé
treystandi og hvort þau nái um
borð í skip hans í tæka tíð.
Þessi fyrsta bók G.P. Taylor er
spennubók fyrir alla aldurshópa.
Hún hefur selst í yfir milljón
eintökum og verið þýdd á 32
tungumál. Bókin var 20 vikur á
metsölulista í Lundúnum og í New
York fór hún í efsta sætið. Herdís
Hallvarðsdóttir þýddi. Útgefandi er
Hljóðbók.is.
Árbók
Ólafsfjarðar
Út er komin Árbók Ólafsfjarðar
2005 en það er 7. árgangur rits-
ins. Að venju er það veglegt og
fjölbreytt að efni, 158 blaðsíður í
stóru broti og prýtt fjölda Ijós-
mynda. Meginefnisflokkar ritsins
eru fjórir, greinar og viðtöl, annálar
félaga í Ólafsfirði, Ijósmyndaseríur
og greinar um Ólafsfirðinga sem
létust á árinu.
■jiun^^ihirhir
Var Þórbergur
með Asperger?
dag kemur út hjá JPV forlagi
bókin Skáldalíf eftir Halldór
Guðmundsson en þar er fjallað
um líf, störf og hugmyndaheim
tveggja rithöfunda, Þórbergs
Þórðarsonar og Gunnars Gunnars-
sonar. Einn rastakafli bókarinnar
nefnist Þórbergur og Aspergerheil-
kennið. Þar færir Halldór rök fyrir
því að Þórbergur Þórðarson hafi ver-
ið með Aspergerheilkennið. Halldór
vitnar í merkilega bók sálfræðings-
ins Michael Fitzgerald um uppruna
listrænnar sköpunar og tengsl henn-
ar við Aspergerheilkenni. Meðal
einkenna Aspergerheilkennis eru:
skortur á hæfni til félagslegra sam-
skipta, sérkennileg áhugamál og
áráttukennd hegðun, tilbreytingar-
laus og oft klifandi talandi, sérkenni-
legt málfar, líkamstjáning sem er
ábótavant og klunnalegar hreyfing-
ar með óvenjulegu göngulagi. Sam-
kvæmt þessum kenningum greinir
Fitzgerald Aspergerheilkennið til
dæmis hjá nokkrum snillingum
bókmenntasögunnar eins og Jonat-
han Swift, Herman Melville, H.C.
Andersen og Arthur Conan Doyle.
Halldór Guðmundsson mátar
þessi einkenni við Þórberg Þórðar-
son og niðurstaðan er sláandi og
ótvíræð: Þórbergur var með Asper-
gerheilkennið. Halldór segir í bók
sinni:
„Þórbergur hefur samkvæmt
þessu haft ýmis einkenni Asperger-
heilkennis: sérvisku og áráttuhegð-
un, vissa erfiðleika í félagslegum
samskiptum, sérkennilega líkams-
tjáningu og göngulag auk þess sem
hann átti í vanda með sjálfsmynd
sína. En það var einmitt glíman við
sjálfsmyndina sem reyndist honum
einstaklega gjöful sem rithöfundi
því svo margar bækur hans eru ekki
bara ævisögulegar frásagnir held-
ur eins konar hugsunarsaga hans
sjálfs. Þá sögu var hann að skrifa
upp aftur og aftur með ýmsum til-
brigðum, rétt einsog H.C. Andersen
endurritaði ævisögu sína hvað eftir
annað. Sumir drættir í sjálfslýsingu
Þórbergs vekja athygli lesandans
einmitt vegna einkenna sem tengja
má Asperger. Þórbergur vissi vel af
því að hann var ekki einsog fólk er
flest enda skrifaði hann hjá sér í dag-
bók í ársbyrjun 1913: „I dag hóf ég
umhugsun um það, hvað sérviska
væri, í hverju hún væri fólgin, af
hverju hún stafaði og hvernig ætti
að skilgreina hana í stuttu máli. Ég
hefi ásett mér að hugsa atriði þetta
eins ítarlega og mér frekast er unnt
og rita hjá mér niðurstöðu þá, er ég
kemst að.“ En framan af ævi hefur
þessi sérstaða oft verið honum erf-
ið.“
I lok kaflans segir Halldór Guð-
mundsson: „Loks má nefna eitt at-
riði sem Fitzgerald víkur að og ekki
fer á milli mála: „Þegar karlmenn
með Asperger kvænast tekur eigin-
konan oft að sér móðurhlutverk og
annast öll praktisk mál á heimilinu.“
Það gerði Margrét Jónsdóttir sann-
arlega."
birtast
Á þessum degi árið 1859 birtust
lokakaflarnir í skáldsögu Charl-
es Dickens, A Tale of Two Cities, í
dreifiriti höfundarins.
Dickens var afkastamikill og
gríðarlega vinsæll rithöfundur. Ár-
ið 1950 hóf hann að gefa út dreifi-
ritið Household Words sem kom út
vikulega og þar birtist skáldskapur,
ljóð og ritgerðir. Hann stofnaði
annað dreifirit All the Year Round
menningarmolinn
árið 1859 og þar birtist A Tale of
Two Cities sem framhaldssaga.
Skáldsagan er talin meðal hans
merkari verka ásamt Oliver Twist,
David Copperfield og Great Expect-
ations.
Dickens lést árið 1870, 58 ára
gamall, og skildi eftir sig skáldsög-
una The Mystery of Edwin Drood
sem honum vannst ekki tími til að
ljúka við.