blaðið - 06.01.2007, Page 2
2 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007
blaðiö
VEÐRIÐ í DAG AM0RGUN VÍÐA UM HEIM
Hægviðri
Hægviðri víðast hvar, hvassast á
Vestfjörðum, norðaustan 10 til 15
metrar á sekúndu. Snjóar á Vest-
fjörðum en annars úrkomulítið. Hiti
víðast um og yfir frostmarki.
Kólnandi veður
Norðan 10 til 15 metrará
sekúndu, él norðantil en
bjart að mestu sunnantil.
Kólnandi veður.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlín
Chicago
Dublin
Frankfurt
17
m
13
s
13
9
7
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
9 New York
9 Orlando
2 Osló
B Palma
w París
9 Stokkhólmur
4 Þórshöfn
7
19
7
21
11
6
4
England:
Kristnir
nemar ósáttir
Félag kristilegra stúdenta
við Exeter-háskóla í Englandi
hefur höfðað mál gegn stúd-
entaráði skólans og sakar
það um mannréttindabrot.
Félaginu var úthýst úr ráðinu
og bankareikningur þess frystur.
Ástæðan er að sögn talsmanna
stúdentaráðsins sú að félögin
eiga að vera opin öllum og
mega ekki mismuna nemend-
um, en þetta félag krefst þess
af öllum sínum meðlimum að
þeir skrifi undir yfirlýsingu
þess efnis að þeir trúi á Guð
og frelsarann. Svipuð mál hafa
komið upp í fleiri háskólum í
Bretlandi og fari svo að félagið
vinni málið er talið að fleiri
málssóknir fylgi í kjölfarið.
Kópavogur:
Innbrotsþjófar
handteknir
Lögreglan handtók þrjá menn
í gærmorgun sem höfðu brotist
inn í hús í vesturbæ Kópavogs.
Tóku þjófarnir til
fótanna þegar
lögreglu
bar að
garði en
lögfeglan
fann þá í
fjöru þar
sem þeir
reyndu að
fela sig. Þeir eru
einnig grunaðir um
innbrot í Hafnarfirði. Mennirnir
voru allir á tvftugsaldri og er
talið að þeir hafi ætlað að afla
sér tekna fýrir kaup á fíkniefn-
um. Málið er til rannsóknar.
blaði
Blaðið kemur næst út
þriðjudaginn 9. janúar.
Kærleiksverk hjóna í Krónunni um áramótin:
Borguðu matinn
fyrir aldraða konu
■ Ekki nóq inni á kortinu ■ Þakkaði í qeqnum Óskastundina
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég á ekki orð yfir elskusemi hjón-
anna sem borguðu matinn fyrir mig.
Ég vil meina að þetta hafi verið send-
ing frá Guði og ég bið fyrir þessum
hjónum á hverju kvöldi," segir Að-
alheiður Samsonardóttir. Þegar Að-
alheiður, sem er áttræð og býr ein,
ætlaði að greiða fyrir matvörurnar
sem hún keypti í Krónunni laugar-
daginn fyrir áramótin kom í ljós að
ekki var næg innistæða á debetkort-
inu hennar.
„Ég var búin að sjá að Landsbank-
inn var opinn þannig að mér datt í
hug að hringja í íslandsbanka til að
athuga hvort hann væri ekki opinn
líka, en það svaraði enginn. Ég
kalla hann nú alltaf íslandsbanka
þótt hann heiti nú Glitnir. Ég bað
þá afgreiðslumanninn að kanna
hversu mikið væri inni á kortinu og
svo fór hann að tína vörur upp úr
pokanum. Þá sögðu hjón sem voru
að baki mér að þetta tækju þau ekki
í mál og sögðust þau vilja borga fyrir
mig. Það skein svo mikill kærleikur
frá þeim,“ segir Aðalheiður.
H Vann líka mat í bingói
Hún kveðst borða hádegismat
nokkrum sinnum í viku í félagsmið-
stöðvum fyrir aldraða en fá sendan
mat heim í hádeginu um helgar í
gegnum félagsþjónustuna. „Ég var
að kaupa ýmislegt til að eiga þar að
auki um áramótin. Þetta var enginn
óþarfi, heldur ávextir og svoleiðis."
Þar sem Aðalheiður veit ekki deili
á hjónunum sem greiddu matvælin
fyrir hana ákvað hún að senda
þeim þakklætiskveðju í gegnum
Óskastundina í Ríkisútvarpinu.
„Gerður G. Bjarklind, sem sér um
þáttinn, kom í félagsmiðstöðina úti
á Aflagranda til að lesa fyrir jólin
en þangað fer ég oft. Ég ákvað þess
vegna að hringja í hána og biðja
hana að senda hjónunum lagið
Hvað boðar nýárs blessuð sól. Mér
finnst það svo ofboðslega fallegt. Ég
vona svo sannarlega að hjónin hafi
heyrt kveðjuna.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem lánið
leikur við Aðalheiði. „Guð er svo
góður við mig að ég er tvisvar búin
að fá góða vinninga í bingóí. Núna
fyrir jólin fékk ég kofareykta hangi-
kjötsrúllu sem kostaði 3.000 krónur.
Og það voru gular og grænar baunir
Góðvild þökkuð
i Óskastundinni
Gerður G. Bjarklind
útvarpskona
með og einnig rauðkál, súpupakki,
kaffipakki, ávaxtadós og handklæði.
Þetta var allt í einum vinningi og
kortið kostar ekki nema 100 krónur.“
Fyrir utan að spila bingó sér
til afþreyingar tekur Aðalheiður
stundum í saumavél. „Ég saumaði
mikið í akkorði í Sjóklæðagerðinni
og Belgjagerðinni áður fyrr. En núna
tek ég bara í vélina fyrir mig. Það er
þá helst þegar ég þarf að þrengja sem
betur fer.“
Gerður G. Bjarklind, umsjónar-
maður Óskastundarinnar, segir
þetta ekki vera í fyrsta skipti sem
hún er beðin um að koma þakklæti
á framfæri. „Það hefur reyndar ekki
verið í þessu formi áður en tvisvar
hefur fólk beðið fyrir kveðju til veg-
farenda sem hafa aðstoðað þegar
það hefur sprungið á bílnum hjá því.
Fólk hefur einnig þakkað fyrir ýmsa
Svíþjóð:
Lítið áfengi
á Netinu
Flestar þær heimasíður sem
hafa boðið Svíum ódýrt áfengi
til sölu lögðu niður starfsemi
sína í lok síðasta árs.
Tollayfirvöld
gerðu sérstakt
átak og gerðu .
258.000 lítra af
internetalkó- j
hóli upptæka
á árinu en til
samanburðar
voru 41.000 lítrar gerðir upp-
tækir árið áður. Fólk sem kaupir
áfengi á Netinu getur verið sótt
til saka fyrir smygl og skattalaga-
brot og því hefur markaðurinn
fyrir þetta áfengi minnkað svo
mikið að einungis örfáar slíkar
síður eru enn starfræktar.
Hafrannsóknastofnun:
Loðnan horfin
sporlaust
„x'íivj vuuui uivivui diiyggjuiii
við höfum ekki séð þann árgang
sem á að halda uppi veiðunum,"
segir Þorstei|n Sigurðsson,
sviðsstjóri nýtjastofnasviðs
hjá Hafrann^knastofnun.
Skip stofnúnarinnar hafa
ítrekað leitað að loðnu í haust en
án árangurs. Rannsóknaskipin
Bjarni Sæmundsson og Árni
Friðriksson héldu í þriðju leitina
skömmu eftir áramót og eru nú
stödd við norðanverða Vestfirði.
Þorsteinn segir erfiðlega hafa
gengið að ná stofnmælingum
á undanfórnum árum.„Það
hefur gengið illa og var sýnu
verst á siðasta ári. Ef nýliðun-
arbrestur hefur átt sér stað
hjá stofninum þá gætum við
verið í slæmum málum.“
20-50 % AFSLATTUR
Opið:
LAUGARDAG 10-16
SUNNUDAG 12-16
Mörkinni 6, sími 588 5518
Viðskiptanefnd til Kasakstans:
I fræðsluferð heim til Borats
f júní næstkomandi fer viðskipta-
sendinefnd á vegum Útflutnings-
ráðs til Kasakstans, heimkynna
Borats, fréttamannsins fræga sem
grínistinn Sacha Baron Cohen
leikur. „Menn voru reyndar búnir
að koma auga á Kasakstan áður en
myndin um Borat var sýnd en hann
opnar augun bara enn betur. Ef ég
ynni fyrir þetta land myndi ég nýta
hann í botn,“ segir Guðjón Svans-
son, forstöðumaður nýrra markaða
hjá Útflutningsráði. Hann segir
íslenska fjárfesta og fyrirtæki sem
tengjast þeim reyndar þegar í við-
skiptum í og við Kasakstan.
Efntertilfræðsluferðarinnaríjúní
í kjölfar ábendinga frá íslenskum fyr-
irtækjum og hafa um ío fyrirtæki til-
kynnt þátttöku enn sem komið er.
„Þetta eru fjárfestar, verkfræði-
stofur og fyrirtæki í orkugeiranum
og ferðaþjónustu. Kasakstan er gríð-
Myndi nýta
Borat í botn
Guðjón Svansson
Forstöðumaður
Útflutningsráði
arlega stórt land og möguleikarnir
eru miklir. fslensk fyrirtæki þora
að taka áhættu og stökkva á tæki-
færin þegar þau eru svona mikil.
Lykilatriðið er að íslensk fyrirtæki
hafa *áhuga á löndum þar pólitíska
ástandið er ótryggt og viðskiptaum-
hverfið aftarlega á merinni. En þar
geta möguleikarnir verið miklir,“
greinir Guðjón frá og bætir því við
að í Úkraínu sé starfsemi íslenskra
fyrirtækja talsverð.