blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007
blaðift
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-16 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
yrir
þigí
tónheimar hafa þá
sérstöðu að nemendur læra
að spila á píanó og rafmagnsgítar
eftir eyranu og bókstafshljómum.
Inn í námið fléttast tón- og
hljómfræði. Skemmtílegt og
hagnýtt nám sem hentar fólki á
öllum aldri, jafnt byrjendum sem
lengra komnum.
Láttu drauminn rætast!
Vorönn tónheima hefs
MflMllfflMI |5.janúí
Píanó
• Byrjendur og framhald
• 4 ára og eldri
• Unglingar
• Fullorðnir
• Eldri borgarar
Rafmagnsgítar
• Byrjendur og framhald
• 10 ára og eldri
z
D
0-
Inglingar
• rullorðnir
JÍÍ^HNetstuðningur
i nami
Skráning á www.tonheimar.is
og í síma 846 8888 alla daga frá 9-18.
V
tónheimar
Tónhcimar Fakafcni 9 tonhcimar<ð'tonheimar.is v/v;v/.tonhcimar.is
Gæða sængur
og heilsukoddar.
Mm
BURT MEÐ KRONUNA!
Þegar umræður um þátttöku
fslands í evrópska efnahags-
svæðinu stóðu yfir síðla
árs 1991 (Jesús minn - eru
fimmtán ár síðan?!), þá flutti ég
pistla á Rás 2. Og ég var svona
frekar á móti EES þótt reyndar
væri það ekki af mikilli ástríðu. Ég
var veikur fyrir þeim röksemdum
að þátttakan myndi hafa góð efna-
hagsleg áhrif á íslandi og verða
til að nútímavæða efnahagskerfi
okkar (sem hvorttveggja kom á
daginn) en hafði áhyggjur af því
að fylgja myndu stórkostleg upp-
kaup ríkra útlendinga á íslenskum
gögnum og gæðum (sem hafa ekki
orðið raunin nema í litlum mæli).
Ennfremur var ég smeykur um
að reglugerðarfarganið frá Evr-
ópusambandinu, sem við yrðum
að taka upp, myndi auka hér
skriffinnsku og óþarfa stöðlun
allra hluta. „Báknið“ frá Brussel
myndi leggja sína dauðu hönd yfir
samfélagið allt. Það hefur ekki
gerst. Vissulega má benda á hina
og þessa lagasetningu sem kemur
að utan og orkar tvímælis en lít-
inn skaða höfum við samt borið af
þeim sendingum.
Er Evrópusambandið hið
nýja Habsborgararíki?
En þetta voru svona þær helstu
röksemdir sem vógust á í mínum
huga árið 1991. Og ég skrifaði pistil
þar sem ég varaði við þátttöku í
EES því það myndi óhjákvæmi-
lega færa okkur töluvert inn fyrir
dyrastafinn hjá Evrópusamband-
inu sjálfu - og þar vildi ég ekki
vera. Evrópusambandið væri upp-
rennandi skriffinnskuríki sem
bæri í sér stöðnun og doða - mjög
í ætt við Habsborgararíkið í Aust-
urríki, sem ég man að ég bar það
helst saman við. Og minnti á að
þótt Habsborgararíkið hefði á
sínum tíma fóstrað elegant lista-
menn eins og Mozart og Strauss,
þá hefði það endað á að framleiða
Franz Kafka. Og enginn hefur lýst
þrúgandi andrúmslofti þess betur
en hann.
Og ég spáði meira að segja dauða
Evrópusambandsins, einhvern
tíma í framtíðinni - það myndi tær-
ast upp innan frá, þegar íbúar Evr-
ópulandanna uppgötvuðu loks og
gerðu ráðamönnum sínum ljóst að
þeir hefðu bara engan áhuga á að
tilheyra þessu bákni. Loks mundi
það deyja úr eintómum leiðindum
en fjörbrot þess gætu orðið ströng
og við íslendingar ættum að hafa
vit á að vera víðsfjarri þegar sam-
bandið tæki að leysast upp.
Tóm vitleysa hjá mér
Ég man að mér fannst þetta allt
þó nokkuð snjallt hjá mér - en nú
er ég kominn á þá skoðun að þetta
hafi verið tóm vitleysa. Vissulega
verður Evrópusambandið áreiðan-
lega ekki eilíft en ég fæ samt ekki
betur séð en að í fyrirsjáanlegri
framtíð muni það bara eflast að
íþrótt og frægð. Það hefur ekki
stöðvað einstakar þjóðir í að ráða
sjálfar þeim málum sem þær kjósa
og efnahagslega virðist það hvar-
vetna hafa góð áhrif. Sem og félags-
lega og pólitískt.
Ef Island gengi nú í Evrópusam-
bandið myndi það ekki hafa í för
með sér meira framsal á fullveldi
en þegar er orðið - og fullveldið er
nú hvort sem er allt annar hlutur
en var. Innganga í sambandið
myndi hins vegar óumdeilanlega
hafa mjög heppileg áhrif á pen-
ingalegan stöðugleika þegar við
losnum við hina bækluðu íslensku
krónu sem við höldum haldið úti af
vanefnum alltof lengi. Það er bein-
línis absúrd þegar menn reyna
að telja sér trú um að fyrirbærið
króna sé á einhvern hátt til marks
um sjálfstæði okkar - krónan var
jú upphaflega erlend mynt, kom
frá Danmörku, og nafnið þýðir
ekkert annað en „konungskóróna“.
Krónan er því jafn úrelt og kór-
ónan yfir durum Alþingishússins
- sem líka væri rétt að losna við og
setja á Þjóðminjasafnið.
Er krónan ígildi ísiands?
Nú þegar allar peningastofnanir
{landinu eru ýmist búnar eða biða
þess með óþreyju að fá að skipta
yfir í evru, þá eigum við ekki að
standa gegn hinu óhjákvæmilega
með því að ríghalda í krónuna
bara svo fáeinir hræddir menn
geti áfram ímyndað sér að þeir
ráði einhverju. Og raunar ráða
þeir ýmsu, því miður, þeir geta
aukið óstöðugleika og verðbólgu-
hættu í þjóðfélaginu með því að
telja sér trú um að krónan sé á ein-
hvern hátt ígildi Islands. Þó eru
þetta yfirleitt sömu mennirnir og
hika ekki við að ganga á íslenska
náttúru í gróðaskyni. En þessi ráð
á að taka af þeim og það sem fyrst.
Sækjum því um aðild að Evrópu-
sambandinu við fyrsta tækifæri.
Verum ekki að bíða með það - það
gerist hvort sem er fyrr en síðar. Ef
„Þeii telja séi trú um aö
kiónan sé áeinhverri
hétt ígildi Istands. Þó
eru þetta ynrleitt sömu
mennirnir ðp hika. ekki
víö aö ganga á íslenska
náttúru í gróöaskyni..."
við bíðum aukum við bara hætt-
una á skakkaföllum sem gætu gert
samningsstöðu okkar verri en ella.
Ef niðurstaða aðildarviðræðna
verður okkur ekki að skapi,.þá
höfnum við bara aðildinni í þjóðar-
atkvæðagreiðslu, en ég á nú varla
von á því. Hin margumtalaða „sér-
staða Islands" held ég sé meira og
minna blekking.
Sjávarútvegsstefnan:
Engey farin úr landi
Sjávarútvegsstefna Evrópusam-
bandsins? Hinn mikli Þrándur í
Götu? Við semjum bara um hana
og þó við fáum ekki „allt fyrir ekk-
ert“ (eins og sagt var í eina tið), þá
tökum við bara forystuna í sjávar-
útvegsmálum í sambandinu. Við
þurfum nefnilega ekki endilega að
láta hina alræmdu Spánverja valta
yfir okkur. (Skyldi spænska þjóðin
nokkuð fara í mál við mig yfir að
vera kölluð ,,alræmd“?)
Og altént fæ ég ekki séð að
sjávarútvegsforkólfar okkar séu
svo „þjóðhollir“ að við eigum að
láta framfaramál stranda á því
hvort þeim þóknast eitthvað. Nú
um hátíðarnar hefur mátt dást
að risatogaranum Engey þar sem
hann liggur í Reykjavíkurhöfn.
Glæsilegt fley. Gert út af Granda
frá Reykjavík. Þangað til í gær. Þá
var tilkynnt að Grandi ætlaði að
stofna dótturfyrirtæki í Hollandi
og gera skipið út þaðan í framtíð-
inni. Áhöfninni sagt upp. Þetta
glæsta skip fer að veiða sardínur
út af Afríkuströndum. Gott og vel
- en ef fyrirtæki á borð við Granda
hafa ekki hagsmuni Islendinga
ofar í huga en svo að þau stökkva
úr landi með sín flottustu skip
þegar það hentar, hví skyldum við
þá yfirleitt leiða hugann að hags-
munum Granda?
„Krónan er því jafn
úrelt og kórónan yfir
durum Alþingishússins
- sem líka vœri rétt aö
losna við og setja á
Þjóðminjasafnið."