blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 4

blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 blaðið Eitt ár fyrir hvert kíló Povilas Akelaítis var í gær dæmdiir í tveggja og hálfs árs óskilorðsbundið fangelsi fyrir að flytja tvö og hálft kíló af amfetamíni til landsins. Efnin uppgötvuðust í drifskafti bíls sem hann var á við tollskoðun í Norrænu 31. ágúst síðastliðinn. FIKNIEFNASMYGL Par dæmt Herbjörn Sigmarsson og Selma Björk Gunnarsdóttir voru fundin sek um fikniefnasmygl. Herbjörn fékk 18 mánaða dóm en Selma 9 mánuði skilorðsbundna. Her- björn skipulagði smyglið og naut aðstoðar Selmu sem misnotaði aðstöðu sína hjá Póstinum við smyglið. Farþegum fjölgar mikið Rúmlega tvær milljónir farpega fóru um Keflavíkurflugvöll á nýliðnu ári og hafa aldrei verið fleiri samkvæmt samantekt Ferða- málaráðs (slands. Árið 2005 fór um 1,8 milljón farþega um flug- völlinn og fjölgaði þeim þvi um 200 þúsund milli ára. Farþegum sem skipta um vélar í Keflavík fækkar þó. Viðgerð forsetabílsins enn ógreidd: Verður boðinn upp fljótlega „Bílinn er vel varðveittur hjá mér og geymdur í sérstökum við- hafnarsal. Það hefur enginn talað við mig og enginn sáttavilji sýni- legur. Það er því ekkert að ske í málinu,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri Bilréttinga og bílasprautunar Sævars. Sævar sá um að koma fyrstu forsetabifreið landsins í uppruna- legt form og reikningurinn er vel á annan tug milljóna. Hann hefur staðið í stappi við að fá viðgerðina greidda og stefnir á að setja bílinn á uppboð. Garðar Briem, lögmaður Sævars, segir frest hafa verið gefinn til að ná sáttum og að eina tilboðið sem hafi borist hafi verið alltof lágt. „Það vantaði mikið upp á síðast. Hvíta flaggið hefur verið á lofti af okkar hálfu og af góðvilja hef Seldur á næstunni? Fyrsti for- setabíll þjóöarinnar stendur enn á verkstæðinu þar sem honum var komið í upprunaiega mynd. ég beðið fram yfir gefinn frest,“ segir Garðar. „Það er ekki nema klukkutíma verk að fylla út upp- boðsbeiðnina og það verður gert á næstu dögum.“ Aðspurður segist Sævar ekki munu gefa þessu lengri tíma en út þennan mánuð. ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á árinu 2007 Þjóöhátíöarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 meö áorðnum breytingum, var stofnaöur í tilefni af 1100 ára búsetu á íslandi 1974. Tilgangur sjóösins er: • að veita styrki til stofnana og annarra aöila, er hafa þaö verk- efni að vinna að varöveislu og vernd þeirra verömæta lands og menningar, sem núverandi kynslóö hefur tekiö í arf. Viö það skal miöaö, að styrkir úr sjóönum veröi viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka önnur opinber framlög til þeirra eöa draga úr stuðningi annarra viö þau. Á næstu fimm árum, frá og meö árinu 2007, mun sjóöurinn hafa um 20 m.kr. á ári til úthlutunar styrkja. Úthlutunum úr sjóðnum lýkur aö þeim tíma liönum, þ.e. árið 2011 og er þá reiknaó meó að sjóöurinn hafi þegar úthlutaö öllu fé slnu í samræmi við tilgang hans. Umsóknlr Geróar eru skýrar faglegar og fræöilegar kröfur til umsækjenda. For- gang hafa verkefni sem undirbúin hafa veriö svo að vinna við þau geti hafist innan árs frá úthlutun. Einungis verður tekið við umsóknum á þar til gerðum eyðublöðum. Þau má finna á vefsíðu Seölabanka íslands wvyw.sedlabanki.is (sjá Seölabanki íslands - Þjóóhátíöarsjóöur). Ennfremur má nálgast eyðu- blöð í afgreióslu Seölabankans, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Umsóknarfrestur er til og meö 28. febrúar 2007 og veröur úthlutaö úr sjóönum í ofanverðum maí 2007. Umsóknir skal senda Þjóöhátíöar- sjóði, Seólabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavík. Nánari upplýslngar veltir ritarl sjóðslns í síma 569 9622 eða á netfanginu: thjodhatldarsjodur@sedlabankl.ls. Stjórn Þjóðhátíðarsjóós Norska varnarmálaráðuneytið um íslenska leyniþjónustu: Svarar engu um nám íslendinga ■ Neitar aö svara til um hag af samvinnu ■ Vísar á íslensk yfirvöld Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@bladid.net Norska varnarmálaráðuneytið treystir sér ekki til að svara til um samvinnu íslenskrar leyniþjón- ustu, Icelandic Intelligence Serv- ice (IIS), þeirrar norsku og norska varnarmálaráðuneytisins. Talsmaður norska varnarmála- ráðuneytisins, Christian 0verli, vísaði spurningum Blaðsins á bug og beindi til íslenskra yfirvalda. „Við verðum því miður að beina spurn- ingum af þessum meiði til íslenskra yfirvalda,“ ritaði hann í tölvupósti. Sýslumaðurinn á Kefla- víkurflugvelli, Jóhann R. Benediktsson, sendi þakk- arbréf til Torgeirs Hagen, undirhershöfðingja hjá norsku leyniþjónustunni (NoDiss), og Sverre Diesen, yfirmanns hins konung- lega varnarmálaráðuney tis Noregs, 29. nóvember og þakkaði fyrir námskeið sem norsku stofnanirnar héldu fyrir islenska starfsmenn sýslumannsembættisins, sem sinna greiningarvinnu fyrir utan- ríkisráðuneytið. Bréfið bar íslenska skjaldamerkið, merki NATO og var merkt Icelandic Intelligence Serv- ice. Jóhann ritaði undir sem fram- kvæmdastjóri IIS. Jóhann sagði í viðtali við Blaðið að það væri vinnuheiti til að auðvelda samskipti á er- lendri gund við hern- Blaðið 21. des 2006 aðarveldi. Þegar hann var spurður hvað fram hefði farið á námskeið- inu sagði hann það trúnaðarmál. Eftir að Blaðið upplýsti vinnuheitið ákvað sýslumaðurinn að það yrði ekki notað aftur. Óskað var eftir svörum Hagen og Diesen. Var meðal annars spurt af hvaða tilefni námskeiðið var haldið, hve margir hafi setið það, hvort það hafi verið haldið fyrir IIS og hvort þeir vissu að Jóhannhygðist ekki nota starfs- titillinn fram- kvæmdastjóri IIS áfram. Einnig hvert væri mark- mið samvinn- unnar og hver hagur norskra yf- irvalda væri afhenni. Bréf sýslumanns til Noregs Jóhann R. Benediktsson ætlar ekki að rita fleiri bréfí nafni lcelandic Intelligence Service, eða íslenskrar leyniþjónustu. Endurskoðiin samkeppnislaga: Refsiábyrgð einstaklinga skýr „Okkur líst vel á þessar tillögur og gangi þær eftir munu þær styrkja eftirfylgni við samkeppnislögin,“ segir Páll GunnarPálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Skýrsla nefndar forsætisráðherra um viðurlög við efnhagsbrotum var kynntáfimmtudaginn. ískýrslunni er gerðar fjölmargar tillögur að breytingum á samkeppnislögum er lúta að refsiábyrgð vegna brota og rannsókn þeirra. Haft var eftir Ragnari H. Hall, hæstarréttarlögmanni og lögmanni Kristins Björnssonar, í Blaðinu í gær að með tillögunum sé nefndin ef til vill að viðurkenna að núverandi samkeppnislög séu ekki eins skýr og áður hefur verið haldið fram. Páll segir refsiábyrgð einstaklinga í samráðsbrotum vera skýra í núverandi lögum og með tillögunum sé nefndin einungis að styrkja refsirammann. „Skýrslan ber með sér að höfundar „TWögurnar styrkja eftir- pT'I fylgni við sam- keppnislögin Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins hennar hafi verið sammála um að brot einstaklinga á 10. grein samkeppnislaga er snúa að samráðsbrotum er refsivert samkvæmt gildandi rétti.“ m Skrifborös Mottur 1.158.-kr Vinnustofa SÍBS Betra skiputag á nýju árí! **** með skrífstofuvörum frá Mú/a/undi 1*! Lausb/aðabækur úr plasti eda sérprentaðar y Hátúni Wc • S:562-8500 • Fax:552-8819 • www.mulalundur.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.