blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 32
V
32 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007
blaöiö
*
Landsmenn eru orðnir vanir
því að hafa Jóhannes Felix-
son bakara í stofunni heima
hjá sér enda er þáttur hans
Eldsnöggt með Jóa Fel vin-
sæll. Jói stendur á tímamótum um
þessar mundir, hann verður fertugur
í næstu viku, er að skrifa handrit að
næstu þáttaröð Eldsnöggt ásamt
því að færa enn frekar út kvíarnar á
næstunni. Sjálfur segist hann alltaf
hafa ætlað að verða kokkur eða
bakari. „í einhverju viðtali sagði ég
að ég væri fæddur bakari en ég hef
verið í bransanum í næstum því 25
ár og finnst ennþá gaman að þessu.
Það er meira að segja skemmtilegra
núna heldur en það var því framþró-
unin hefur verið mikil. Það eru níu
ár síðan ég opnaði fyrsta bakaríið á
Kleppsvegi og ég var búinn að vera
með það í kollinum lengi. Við opn-
uðum útibú í Smáralindinni fyrir
nokkrum árum og svo er á döfinni
að opna meira en það kemur í ljós
fljótlega á þessu ári. Sérstaða okícar
felst i því að við bökum öll brauð
á steini þannig að bragðið verður
miklu meira og skorpan verður betri.
Auk þess notum við engan sykur,
enga fitu, lítið ger, lífrænt ræktaðan
súr og látum brauðið hefast yfir nótt
þannig að það súrni.“
Legg mikið upp úr góðri vöru
Jói segist alltaf hafa verið staðráð-
inn í því að opna sitt eigið bakarí.
„Þegar ég var búinn að læra um tví-
tugt ákvað ég að ég myndi opna mitt
eigið bakarí einhvern tímann. Ég
sankaði að mér mikilli reynslu, fór
til dæmis erlendis að læra og í koll-
nu oori
ilurdu?