blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 10

blaðið - 06.01.2007, Blaðsíða 10
blaði Útgáfufélag: Stjórnarformaður: Ritstjóri: Fréttastjórar: Ritstjórnarfulltrúi: Ár og dagurehf. Sigurður G. Guðjónsson Trausti Hafliðason Brynjólfur Þór Guðmundsson og Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir Elfn Albertsdóttir Offituvandi heimsins Offituvandamál er heimsvandamál. Svo staðfestu ráðherrar og sendi- fulltrúar á ráðherrastefnu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem fram fór í Istanbúl í Tyrklandi í nóvember sl. þar sem gerður var sérstakur Evrópusáttmáli um baráttu gegn offituvanda. Vandinn mun einkum ógnvekjandi meðal barna og unglinga. íslendingar eru engir eftirbátar annarra þjóða í þessum efnum og í nýlegri könnun sem gerð var meðal barna og ungmenna hér á landi kom í ljós veruleg aukning á ofþyngd. Starfsmenn heilbrigðisþjónustunnar hafa af þessu vaxandi áhyggjur, enda eru margir alvarlegir sjúkdómar sem fylgja offitu. Þáþykir það sannað að of feit börn verða frekar fyrir einelti en þau sem eru í kjör- þyngd. fslensk börn hreyfa sig of lítið og innbyrða allt of mikið af sykri. í könnuninni kom í ljós að 9 ára börn drekka að meðaltali hálfan lítra af sykruðum drykkjum á dag. Það er ógnvekjandi staðreynd. Búast má við að unglingar drekki enn meira en það. Oft er talað um að janúar sé heilsumánuðurinn og flest blöð og tímarit eru uppfull af ýmsum upplýsingum fyrir þá sem vilja létta sig og auka hreyfingu. Janúar er líka dimmur mánuður og kannski erfiðast í þessum mánuði að taka sér tak. Það er þó nauðsynlegt allra vegna, jafnt barna sem fullorðinna, að stjórnvöld fari í jákvætt almennt heilsuátak þar sem á skipulagðan hátt er dregin upp sú staðreynd að offita er hættuleg. Um- ræða um fisk-, grænmetis- og ávaxtaneyslu mætti vera miklu meiri. Kenn- arar ættu að taka þessa umræðu inn í menntakerfið og atvinnurekendur ættu að ýta undir hreyfingu starfsmanna sinna, t.d. með því að taka þátt í kostnaði í líkamsræktarstöðvar. Stundum vill fólk blanda saman umræðu um heilsu og líkamsrækt og umræðu um útlitsdýrkun. Það er algjör fjar- stæða að blöð sem fjalla um heilsurækt séu þar með að ýta undir útlits- dýrkun því um óskyld mál er þar að ræða. Ofþyngd er gríðarlega stórt vandamál sem á eftir að vaxa á næstu árum verði ekkert að gert. Hvað mun það kosta heilbrigðiskerfið? Munum við standa undir þeim aukna kostnaði í framtíðinni? „Það er þegar ljóst að offita meðal barna hefur aukist með hverju árinu sem liðið hefur og er sem stendur allt að tíu sinnum algengari en árið 1970. Allt að 6% útgjalda til heilbrigðismála í Evrópu má rekja til offitu og yfirþyngdar meðal full- orðinna en einnig er um óbeinan kostnað að ræða af sömu völdum,“ segir í Evrópusáttmálanum. „Yfirvigt og offita er algengust meðal fólks í efna- minni samfélagshópum og eykur þannig á ójöfnuð í heilbrigðismálum sem öðru.“ Foreldrar vinna mikið og lítill tími gefst til innkaupa og eldamennsku. Þess vegna verður skyndimatur eða tilbúinn matur oftar fyrir valinu en hollt þykir. Hreyfing er auðvitað líka miklu minni en áður var. Hvert og eitt okkar þarf að taka ábyrgð á eigin líkama og finna tíma til hreyfingar og neyslu hollara matvæla og drykkja. Líkaminn er dýrmætasta eignin - það vita þeir sem orðið hafa fyrir heilsubresti. Elín Albertsdóttir Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á auglýsingadeild: 510 3711 Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins PENZIM ÍSLENSK NÁTTÚRUVARA UNNIN ÚR SJÁVARRÍKINU UMHVERFIS ÍSLAND Dr. Jón Bragi Bjarnason, prófessor í lífefnafræði, hefur unnið að rannsóknum og þróun Pensímtækninnar um áratuga skeið og er hún nú einkaleyfisvarin um allan heim. Penzim fyrir húðina, liðina og'vöðvana 10 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 blaAiö ViG. tGhEiri ólatuR tKa/aR Grtmsoi/ OQ Eft ToF&ETf jSL**/PS. M/G LWQflR AD VeítA >€R. TÁLKfqOT^EXnv/* Fw-. pi ,HTT>J^MUlG TiL AP HaLP/í UP1>i H4u MEtíNTUNÆK- ^TiGi ‘ bOOíf. V 33 m Tækifærið til breytinga er núna Það liggur í loftinu krafa um breyt- ingar. Afleiðingarnar af tólf ára hægri stjórn blasa við og það er hlutverk okkar jafnaðarmanna að svara ákalli kjósendaumbreytingar. Það munum við gera. Málefnastaða okkar er góð og úrslit prófkjöra hafa skilað okkur sigurlistum um land allt. 1 kosningunum í vor verður sögu- legt tækifæri til raunverulegra og rót- tækra breytinga. Fái Samfylkingin sterkt umboð kjósenda er möguleiki á myndun tveggja flokka stjórnar án þátttöku Sjálfstæðisflokksins fyrir hendi og nýir tímar ganga í garð í stjórnmálalífinu. Nú er tækifæri til að binda enda á einokun hægri manna á lyklavöld- unum að stjórnarráði íslands og ljúka því tímabili að allar kosningar snúist um það hvern Sjálfstæðis- flokknum þóknist að taka með sér inn í hlýju valdsins. Án sterkrar Samfylkingar er ekk- ert mótvægi við Sjálfstæðisflokkinn í pólitíkinni. Þá deilir þessi hægri sinnaðasti íhaldsflokkur í Evrópu áfram og drottnar einsog hann hefur gert síðastliðin sextíu ár. Þá hófst stórveldistími hans með síend- urteknum klofningi jafnaðar- og vinstri manria. Nú er mál að linni. Framtíð velferðarsamfélagsins Kosningarnar í vor snúast um framtíð velferðarsamfélagsins. Til að binda enda á fátækt barna, vaxta- og gengisokur í skjóli úrelts gjaldmiðils, vaxandi ójöfnuð, aukna stéttaskiptingu, hnignandi skóla- kerfi, yfirgang gegn náttúrvernd, launamun kynjanna og hörmuleg kjör margra aldraðra og örykja þá er sterk Samfylking sem þungamiðja nýrrar ríkisstjórnar eina leiðin til þess. Hver sem úrslit ríkisstjónarmynd- unar verða þá skiptir öllu að íslenskir jafnaðarmenn stjórni ferðinni og verði kjölfesta og þungamiðja nýrrar ríkisstjórnar. Björgvin G. Sigurðsson Fyrsta konan sem forsætisráðherra Fái Samfylkingin góða kosningu verður Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, formaður flokksins, fyrst kvenna til að gegna embætti forsætisráðherra á Islandi. Það verður merkur áfangi í baráttu kvenfrelsissinna og jafnaðar- manna fyrir raunverulegu jafnrétti karla og kvenna. Það yfirborðskennda pappírsjafn- rétti sem hægri flokkarnir ástunda hefur litlum árangri skilað. Launa- munur kynjanna er sá sami og hlutur kvenna hefur versnað ef eitthvað er bæði í stjórnmálum og atvinnulífi. Það verður að grípa til róttækari aðgerða en gert hefur verið til að ná árangri og raunverulegu jafn- rétti kynjanna. Ingibjörg Sólrún í embætti forsætisráðherra myndi skipta þar gífurlegu máli. Því verða konur og jafnréttissinnar af báðum kynjum að standa þétt að baki fram- boðum Samfylkingarinnar um land allt. Gróska og uppreisn ungliðanna Sögulegt tækifæri jafnaðar- manna til að fara með landsstjórn- ina eftir kosningar í vor leiðir hug- ann að sögu sameiningar síðustu ára. Þann 18. janúar næstkomandi verða ío ár frá stofnun Grósku. Þá risum við ungliðar allra flokka á vinstri kantinum upp og gerðum með okkur samtök sem höfðu þann tilgang að þrýsta á um sameigin- legt framboð jafnaðarmanna 1999 og fulla sameiningu flokka þeirra í kjölfarið. Þetta voru skemmtilegir tímar og merkilegur kafli í sögu íslenskra jafnaðarmanna. Af þessu tilefni ætlum við sem stóðum að stofnun Grósku að boða til ráðstefnu og skemmtunar. Fagnaðarfundurinn sá fer fram laugadaginn 20. janúar í salnum í húsi Samfylkingarinnar á Hallveigarstíg. Nánar kynnt síðar í mánuðinum. Þar ræðum við um Grósku og gós- enland jafnaðarmanna. Hvar við stöndum nú í þróun íslenska flokka- kerfisins. Er frekari breytinga að vænta og margt fleira. Takið daginn frá. Höfundurer þingmaður Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi PENZIM er hrein, tæroglitarlaus náttúruvara byggð á vatni en ekki fitu. PENZIM inniheldur engin ilmefni, litarefni eða gerviefni sem geta valdið ofnæmisviðbrögðum. PENZIM inniheldur engar fitur, oílur eða kremblöndur sem geta smitað og eyðilagt flíkur eða rúmföt. PENZIM WITH Ati. NATLRAI wptrac:tiv» MAÍIM ENnVtS Vfcm 6i Bvðy MvMurdngii: PENZIM LOTION Wlíll ,Ui. KATURAL MARINT íSZYMfs Ad%juHetl SUiife Penzim fæst í apótekum, heilsubúðum og verslunum Nóatúns um land allt. penzim.is Klippt & skorið Hart var deilt þegar íslendingar ákváðu að hefja hvalveiðar. Talað var um að ákvörðunin væri knúin áfram af stolti lítillar þjóðar sem vildi ekki láta vaða yfir sig. Það er eflaust eitthvað til í því. Nú MT - « er Ijóst, sem menn gátu svo sem sagt sér fyrirfram, að f/jÆ skutullinn hefur ekki bara ■ hæft sjö langreyðar heldur líka útrás íslenskra fyrírtækja.JóniÁsgeirJóhannesson, forstjóri Baugs, segir veiðarnar skaða íslensk fyrirtæki og hugsanlegan vöxt þeirra í framtíðinni. ( Mogganum í gær er viðtal við forstjóra bresku verslunarkeðjunnar lceland, sem er í eigu Baugs. Forstjórinn ber sig illa og segir hvalveiðarnar óskiljanlegar. Það hlýtur að vera hræðilegt að stýra verslun sem heitir lceland undir þessum kringumstæðum. Neytendastofa hefur komist að því að Fréttablaðið hafi brotið lög um eftirlit með óréttmætum viðskiptaháttum og gagnsæi markaðarins. Áður hafði siðanefnd Sambands íslenskra auglýsingastofa sagt Fréttablaðið hafa brotið gegn siðareglum sambandsins. En hvað var það sem Fréttablaðið gerði rangt? Jú, súlurnar á forsíðu blaðsins, sem eiga að sýna mismunandi lestur dagblaða, voru villandi að mati Neytendastofu og SÍA. Ekki nóg með það þá dregur Neytendastofa líka ( efa að Fréttablaðið sé "áhrifaríkasti auglýsingamiðillinn" og "stærsti fjölmiðillinn." Segir Neytendastofa að til að rökstyðja fullyrðingar sem þessar sé ekki nægilegt að vfsa einungis til fjölda lesenda dagblaða. Það er eitt að Ijúga til um stærð sína en að stunda líka ólöglegan súludans það erforkastanlegt. Steingrímur Saevarr Ólafsson á það til að vera fyndinn. í gær birti hann færslu á blogsíðunni sinni undir yfirskriftinni "Sambandið endurreist hjá Framsókn." Steingrímur skrifar: "Á sama tíma og framkvæmdastjóraskipti urðu hjá Sjálfstæðisflokknum tók nýr framkvæmdastjóri jafnframt við stórfum hjá Framsóknarflokknum. Sigfús Ingi Sigfússon er sestur í stólinn og hans bíður það verkefni að halda utan um flokkstarfið á erfiðum tíma í Framsóknarflokknum. Er það kannski tímanna tákn að netfang nýja framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins er sis@framsokn.is. traustih@bladid.net

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.