blaðið - 06.01.2007, Page 11
blaðið
LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007 11
Völd eru þjóðleg
Það má með sanni segja, að við
íslendingar séum allir komnir af
framsóknarmönnum; það er að-
eins spurning hversu langt maður
þarf að líta til baka. Framsóknar-
flokkurinn er nú 90 ára gamall.
Og inn við beinið erum við víst
flestir framsóknarmenn. Nýr
formaður Framsóknarflokksins,
Jón Sigurðsson, lagði sig allan
fram um að skilgreina flokkinn
enda engin vanþörf á; staðan er
skelfileg þegar til fylgisins er litið
því flokkurinn mælist aðeins í fá-
einum prósentustigum. Já, flokk-
urinn er þjóðræknislegur, sagði
formaðurinn. „Þú meinar þjóð-
ernislegur?” var hann þá spurður.
„Nei, alls ekki. Hann er þjóðlegur!”
Og til er að sögn nolckuð, sem
maður getur kallað þjóðhugsun,
vaðmál og pólitískt vagl í augum.
- Þá er búið að geirnegla ramm-
ann. Þá er bara að vita hvernig
flokksmönnum tekst að fylgja
kallinu og ná áttum. Það gengur
misjafnlega; þeir eru allir mjög
valdsæknir og hvað með það? Eru
ekki allir í pólitik til að hafa áhrif
og því nær maður með því að hafa
völd; er það ekki? Ólafur Hanni-
íslendingar eru
allir komnir
af framsóknar-
mönnum.
Jónas
Bjarnason
balsson hefur áttað sig á hinu
pólitíska lögmáli þess efnis, að
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur hafa alltaf meirihluta
til samans. Og svekktur skrifaði
hann: „Það er alveg sama hvernig
menn greiða atkvæði. Alltaf
kemur Finnur Ingólfsson upp úr
kjörkössunum!” - Já, það er oft
sem framsóknarmenn hafi þeim
mun meiri völd sem þeir eru færri.
Þetta er náttúrulögmál og engin
furða er á því, að vinstri menn séu
svekktir. Og lögmálið er farið að
smitast inn í borgarstjórn Reykja-
víkur. Björn Ingi Hrafnsson er sú
viðbót ein, sem ágæt er og nægir
til að koma íhaldinu í stjórn borg-
arinnar. — Auðvitað kom þá að
því, að framsóknarmenn færu að
krækja sér í bitlinga. Stjórnarand-
staðan reyndi að þjarma að Birni
Inga, eins og eitruðu peði, en tókst
það hrapallega þegar Degi B. Egg-
ertssyni var stillt upp í áhlaups-
sveit í sjónvarpinu. Hann tíndi
svosem ýmsar ávirðingar til eins
og störf Óskars Bergssonar, vara-
borgarfulltrúa. Hann er formaður
skipulagsráðs borgarinnnar og
á sama tíma er hann ráðinn af
hafnarstjóra Faxaflóahafna á sjö
þúsund kall á tímann til að gæta
hagsmuna hafnanna. Þetta fannst
Degi spilling þar sem Óskar væri
báðum megin borðs, t.d. í málurn
Vesturhafnar. Auðvitað er það
misskilningur. Með því að láta
mál hafnanna og borgarinnar
fara saman í skipulagi, með hag-
ræðingu, gat Óskar haft tvöfalda
þóknun; hann er jú húsasmiður
og er það menntun við hæfi í
Framsókn.
Þjóðleg menntun
Frá tímum Jónasar frá Hriflu hafa
framsóknarmenn metið þjóðlega
þekkingu æðri háskólamenntun við
mannaráðningar. Og próf frá Sam-
vinnuskólanum á Bifröst er meira
en jafngilt verkfræði- eða hagfræði-
prófi frá háskólum. Þetta vita menn,
flokkurinn er bara skrifstofa í vinnu-
miðlun. Þjóðleg reisn hefur einkennt
störf bæði Valgerðar Sverrisdóttur
og Jóns Kristjánssonar, bæði lengi
ráðherrar í ýmsum ráðuneytum.
Systir Valgerðar, bóndi, var um sinn
formaður LSH enda skal skipa mann-
auði ofar auði, eða þannig. Auðvitað
gat Valgerður brosað breitt og skálað
í Kína í hrísgrjónabrennivíni, eins og
Alfreð Þorsteinsson. Já, hann Alfreð
er nú formaður nefndar um bygg-
ingu hátæknisjúkrahúss enda með
mikla reynslu frá Sölunefnd varnar-
liðseigna og í að sjá um það sem út-
lendingar kalla „logistics”, eða allan
pakkann og hefur séð um fjármál
íþróttafélags, svona til upprifjunar.
En aftur og aftur þurfa þeir að
valda misskilningi þeirra, sem
ekki þekkja nógu vel til hlutanna.
Formaður þingflokks Framsóknar-
flokksins, Hjálmar Árnason, stóð
fyrir teiti í Ráðherrabústaðnum til
að kveðja Halldór Ásgrímsson enda
sjálfsagt og eðlilegt, en bústaðinn
má nota á vegum ráðherra í embætti.
Mörður Árnason þingmaður þurfti
endilega að öfundast og vera með
röfl út af því þar sem hann áttaði sig
ekki á því, að þingflokksformennska
Hjálmars og einstök biðlund eftir
ráðherradómi, jafngildir ráðherra-
embætti; það er bara tímaspurning
hvenær formlega verður gengið frá
því. Svona er það, vinstrimenn á
þingi átta sig á lögmálinu um valdið
og eru örvæntingarfullir.
Áðurnefndur Óskar er að auki
formaður nefndar, sem á að sjá um
skipulag á hálendinu, að sauðfjár-
beit væntanlega meðtalinni. Hann
upplýsti í útvarpi, að Framsókn væri
fyrsti umhverfisflokkurinn; það
kom á óvart! Eysteinn Jónsson mun
hafa fengist við friðun Þingvalla.
Auðvitað er Framsókn þjóðlegur
sauðfjárbeitarflokkur og hefur vald
á beitinni, hvað sem kratar á möl-
inni segja. Með markvissu mótvægi,
eins og friðun Þingvalla, hefur flokk-
urinn verið umhverfisvænn. Þótt
sumir telji hann sekan um gróður-
eyðingu þá finnur hann leiðir til mót-
vægis, sem líkja má við aflátssölu
eins og tíðkaðist í katólskum sið.
Líklega hefur Framsóknarflokk-
urinn leikið af sér þegar hann sam-
þykkti síðustu kjördæmabreytingar,
en flokkurinn hefur í áratugi haft
hæsta atkvæðanýtingu og marga
þingmenn þarafleiðandi. Hjálmar
Árnason sér nú sér til skelfingar, að
litlar líkur eru á því að hann kom-
ist á þing sem annar maður listans
á Suðurlandi; þar geisar nú Árnafár
Johnsens. Þessvegna verður hann
að fara í slag við varaformanninn
Guðna Ágústsson! Það er ekki víst
að Hjálmari takist að fá í gegn próf-
kjörsreglur, sem megna að veita
kommunum á Suðurnesjum þátt-
tökurétt í kjörinu. Að eigin sögn
fær Hjálmar varla stundarfrið fyrir
stuðningsmönnum sínum, sem vilja
ólmir fá hann á þing á ný. Báðir eru
þeir hestamenn, Guðni og hann, en
varla verður þeirra slagur útkljáður
með hestaati á Hellu. En svo birtist
beitarhúsamaður og bóksali á Sel-
fossi, Bjarni Harðarson, sem kynnt
hefur þátttöku sína í prófkjöri og vill
annað sætið. Ja hérna! Þótt Hjálmar
sé smart í bláhvítu reiðdressi með
leður og hött, gæti hann dottið út því
Selfyssingurinn er með eindæmum
þjóðlegur og hefur sér til ágætis marg
falda þátttöku í Silfri Egils, en aðeins
gáfumenn eða skáldmæltir paurar,
eins og Bjarni, og áðurnefndur Óskar
Bergsson, virðast komast þar að.
Höfundur er efnaverkfræðingur
Nýi r tímar
- nýjar hugmyndir
Umhverfis- og orkurannsóknasjóður Orkuveitu Reykjavíkur
Sendu inn umsókn um styrk
Markmið Umhverfis- og orkurannsóknasjóðs OR er
að veita vísindamönnum og öðrum sérfræðingum á
sviði umhverfis- og orkumála tækifæri til að hrinda
góðum rannsóknahugmyndum í framkvæmd. Stjórn
sjóðsins auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki
til rannsóknaverkefna. Við fyrstu úthlutun úr sjóðnum
verða um 100 miljónir króna til ráðstöfunar Allar
nánari upplýsingar um sjóðinn, úthlutunarreglur;
tilhögun umsókna og skilyrði, sem umsækjendur
verða að uppfylla, eru á vef sjóðsins, www.oris/uoor
Umsóknarfrestur er til 15. febrúar 2007.
Veittir eru styrkir í tveimur flokkum.
í opnum flokki ræður þitt hugarflug ferðinni.
í lokuðum flokki höfum við sérstakan áhuga á að
styrkja eftirtalin verkefni:
• Niðurdæling C02
• Nýting vetnis í samgöngum
• Gasvinnsla úr skólpi - hagkvæmniathugun
• Nýting háhita til örverurannsókna
• Ahrif skógræktar á vatnsból og vatnsgæði
• Uppgræðsla með hálendisgróðri
• lllgresiseyðing með heitu vatni
• Nýting skiljuvatns til rafmagnsframleiðslu
- hagkvæmniathugun
• Samanburður á háspennulfnum og jarðstrengjum
Nánari upplýsingar um verkefnin eru á heimasíðu
sjóðsins.
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi I
0 Reykjavík • www.or.is