blaðið - 06.01.2007, Qupperneq 34
34 LAUGARDAGUR 6. JANÚAR 2007
blaðiö
tiska
Sportleg vor
Heilsuátök, kjötsvimi og Visareikningurinn eru flestum ofarlega í huga nú þegar nýja
árið er gengið í garð. Vorið með bjarta daga og blóm í haga er kannski enn fjarlægt en
senn fyllast verslanir af fatnaði sem á heima í vortískunni 2007. Að þessu sinni verður
sportlegur fatnaður áberandi, leggings, anórakkar, víðir toppar og tæknileg efni, fatn-
aður sem ætti að gera heilsuátakið þolanlegra.
4
• 'i
f-i
Utsölur
Nú eru útsölur í flestum verslunum og hægt að gera ýmis góð kaup þar sem verslanir bjóða upp á allt að 70%
afslátt. Það er þó nokkur kúnst að versla á útsölum þar sem margir kannast við að versla á útsölum föt sem
síðan liggja ónotuð inni í skáp. Það er skynsamlegt að reyna að varast tískubólur þegar kemur að því að kaupa
sér föt á útsölu, þar sem nýjar og ferskari tískubólur eru hinum megin við hornið. Klassískur fatnaður ætti að
vera markmiðið og einfaldari vandaðri föt sem endast eru málið.
tiska@bladid.net
Úlpan mín
smarta
Parka er nafn þeirra á enskri tungu
en létt-úlpa í íslenskri þýðingu. Tí-
undi áratugurinn einkenndist af mik-
illi úlpunotkun þartil flestirfengu
upp í kok og lögðu úlpujökkunum
fyrir pelsa og ullarkápur. Nú er hins-
vegar tími úlpunnar upprunninn á
ný og því þarf enginn að skammast
sín að spranga niður Laugaveginn
vel dúðaður í eina slíka. Úlpan er
ekki lengur einungis ætluð til úti-
vistar eða til að skreppa út í sjoppu.
Dagsdaglega er flott að klæðast
úlpujakkanum við þröngar galla-
buxur og bol en einnig er hægt að
klæðast honum að kveldi við háa
hæla og glitrandi kjól.
Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson eru
hugmyndasmiðir Farmers Market.
Hönnun þeirra hefur hlotið frábærar viðtökur
og þau stefna á að fara með hönnun sína á
erlendan markað.
Náttúruleg hráefni
í aðalhlutverki
Hjónin Bergþóra Guðna-
dóttir fatahönnuður og
Jóel Pálsson tónlistar-
maður eru hugmynda-
smiðirnir á bak við
vörumerkið Farmers Market. Fyrir-
tækið sérhæfir sig í að hanna fatn-
að og fylgihluti úr náttúrulegum
hráefnum og íslenska ullin spilar
þar stórt hlutverk. Fatalína fyrirtæk-
isins samanstendur aðallega af peys-
um en einnig er þar að finna húfur
og fallega trefla.
ÞÚ GETUR ÞAÐ LlKA!
Valgeir SkagQörfe leikarí. fyrru m
stórre'/kirgarrraður, segirhér frá
reynslu sin ni af reyki ngum.
Hann dra p i fyri r f ullt oa allt og held ur
nú námskeÖ fyrir þá s-em vilja
taka þá ákvörðun. Eftir að hafa lesÖ
þessa ttókgetur þú hætt lika
„betta er stódróðleg og skemmtileg
bók. Hún logará milli fingranna
og ég er viss um að hún gstur sbkkt
fstærri stubbum en mér'
Bnai MirGufirr/ijridsKri, rtthEfurrdur
líf á nýju ári
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta
Snúið upp á gömlu lopapeysuna
Bergþóra byrjaði að vinna með ís-
lensku lopapeysuna í hönnun sinni
fyrir sjö árum. „Ég vildi .vinna með
ullina á þann hátt að hún hentaði
betur í nútímanum og einnig út frá
mínum persónulegum þörfum. Við
höfum þannig unnið mikið með
sniðin og ullina og peysurnar eru
þynnri og léttari en hefðbundnar
lopapeysur. Ég notast við gamaldags
lopapeysumynstrið en spinn í kring-
um það og breyti eins og mér finnst
henta hverju sinni,” segir Bergþóra
um hönnunina og bætir við að hún
sjálf klæðist mjög oft lopapeysum
og við mismunandi tækifæri.
Nafn fyrirtækisins segir Jóel að
sé tilkomið vegna þeirrar tenging-
ar sem flestir íslendingar hafa til
náttúrunnar og að flestir íslending-
ar séu í raun ættaðir úr sveit. Allir
peysurnar heita líka eftir íslenskum
sveitabæjum sem gefur þeim sterk-
ari tengingu til landsins. „Fólk er
líka farið að kalla eftir ákveðnum
séreinkennum og náttúrutenging-
um nú á tímum alþjóðavæðingar
þegar allt er farið að renna saman í
eitt. Og ég held að eftirspurnin verði
meiri á komandi árum,” segir Jóel.
Stefna á erlendan markað
Flíkurnar frá Farmers Market
hafa hlotið góðar viðtökur og ís-
lendingar sem ferðamenn heillast
af fallegri hönnun og mýkt íslensku
ullarinnar.
Stefnan á þessu ári er tekin á er-
lendan markað og það er ansi margt
á teikniborðinu hjá þeim hjónum.
Fyrsti fylgihluturinn frá Farmers
Market kom á markað nú fyrir jól
en það er hulstur fyrir iPod Nano
sem gerður er úr íslensku laxaroði.
„Hlutirnir hafa gerst frekar hratt
en fyrirtækið er stofn-
að fyrir rúmlega
ári síðan.
Við vorum búin að ganga með hug-
myndina í maganum í nokkurn
tíma áður en fyrirtækið var form-
lega stofnað. Við vildum samt sem
áður fara okkur hægt og leggja
mikla vinnu og tíma í alla undir-
búningsvinnu og hönnun þannig að
við séum fullkomnlega sátt við allt
sem við sendum frá okkur. Við hugs-
um verkefnið sem langtímaverk-
efni og Farmers Market sem heild-
stætt vörumerki sem stendur fyrir
ákveðna hluti þannig að allt sem frá
okkur fer þarf að vera hundrað pró-
sent,“ segir Jóel.
Jóel og Bergþóra segja að það
sé mjög gaman að fá að vinna
saman sem hjón og samstarfið
þeirra á milli gangi mjög vel. Þau
hlakka til að takast á við ný verkefni
á nýju ári og líta björtum augum til
ársins sem gengið er í garð.
Ása Ottesen hefur haft mikinn
áhuga á tísku og öllu sem henni
tengist allt frá því að hún var ung-
lingur. Hún starfar nú sem innkaupa-
stjóri Gyllta kattarins auk þess sem
hún tekur að sér verkefni stílista í
augiýsingum og tískuþáttum.
Ása segir að hún klæðist bæði
notuðum og nýjum fötum og kaupi
helst föt þegar hún fer til útlanda.
Ása segir að hennar persónulegi
still sé kannski frekar ópraktískur
þar sem hún heillist mjög af
litríkum fötum og sé glysgjörn að
eðlisfari.
„Ég fæ útrás fyrir glysgirnina þegar
ég ter út á lifið og mér finnst
mjög gaman að klæða mig upp á.
Dagsdaglega vil ég þó helst vera í
gallabuxum og hettupeysu."
Ása telur hér upp fimm uppáhalds-
hlutina sem henni finnst standa upp
úr í tískunni í vetur.
Slár. Það er hægt að finna mjög
flottar slár núna úr vönd-
uðum ullarefnum og
leðri eða rúskinni.
Þær eru margar
með fallegum
díteilum eins og
flottum tölum
og öðru slíku.
Slár eru mjög
praktískar og
hlýjar og það
ertil dæmisflott að veraí
hettupeysu innan undir þeim.
Stígvél sem ná yfir hné. Þau eru
pæjuleg og skiptir ekki máli hvort
þau eru með hæl eða flatbotna.
Stígvélin fara vel við pils og stutta
kjóla og eru elegant og smart.
Leðurstígvélin eru meira elegant,
en rúskinnsstígvélin eru flott hvers-
dagstil dæmis við gallapils.
Síðar leggings. Leggings sem eru
vel síðar og hægt að setja þær yfir
skó finnst mér mjög flottar. Það
er hægt að finna flottar leggings
úr skemmtilegum efnum eins og
glansandi gull- og silfurefnum. Mér
finnst ullarleggings líka vera mjög
flottar núna.
Það er algerlega nauðsynlegt að
eiga fallega kápu. Kápur I öllum
regnbogans litum hafa
tekið við af pelsunum
sem voru vinsælir í
fyrra. Mér finnst
fallegar ullar-
kápur með
loðkraga og
jafnvel með
loði á ermum vera
mjög flottar og
það er mikið
úrval af f lottum
kápum um þessar mundir.
grifflur. Grifflur úr þrjónaefni,
ar sem þykkar, eru hentugar
lár og kápur með stuttum
im. Við erum að selja mjög fal-
• grifflur hér í búðinni sem eru
alls konarfallegum díteilum
>g þær eru mjög fallegar og
praktískar