blaðið - 21.02.2007, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007
blaAi6
VEÐRiÐ í DAG
Kalt
Víða snjókoma um austanvert landið
og frost 0 til 5 stig, en úrkomulítið
og vægt frost norðvestantil. Rigning
eða slydda suðvestanlands síödegis
og hiti 0 til 5 stig.
Á FÖRNUM VEGI
HVAÐ ÆTLARÐU AÐ
VERA Á ÖSKUDAGINN?
Aníta Kristjana, 4 ára:
Prinsessa og norn.
Willum, 6 ára:
Sjóræningi.
Berglind, 10 ára:
Karíus.
Á MORGUN
Hvasst og kalt
Norðaustanátt, 13-20
m/s sunnan- og vestanlands og
hvassast við suðausturströnd-
ina, en hægari norðaustanlands.
Frost 0 til 5 stig
VÍÐA UM HEIM 1
Algarve 15
Amsterdam 9
Barcelona 14
Berlín 7
Chicago 2
Dublin 10
Frankfurt 6
Glasgow io
Hamborg 6
Helsinki -15
Kaupmannahöfn 5
London 11
Madrid 7
Montreal -m
New York 1
Orlando 7
Osló -7
Palma 20
París 12
Stokkhólmur -6
Þórshöfn 4
Bíldudalur:
Tréverkshúsiö
gjörónýtt
Eldur kom upp í Tréverks-
húsinu á Bíldudal í gær og er
húsið gjörónýtt eftir brunann,
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni á Isafirði. Upptök
eldsins eru ekki kunn og er
málið í rannsókn.
Húsið var mannlaust þegar
eldurinn kom upp en starfsemi
hafði ekki verið í húsinu frá
því um áramótin en hluti þess
hafði verið leigður út fyrir
trésmíðaverkstæði, samkvæmt
eiganda hússins. Á heimasíðu
Bíldudals kemur fram að illa
hafi gengið að koma slökkvi-
starfi af stað þar sem mjög fáir
meðlimir slökkviliðsins hafi
verið á staðnum og bifreið þess
ekki tilbúin fyrir útkall.
Frjálslyndir:
Valdimar vill
í Suðvestur
„Ég get staðfest að ég hef áhuga
á Suðvesturkjördæminu en það
hafa engar
ákvarðanir
verið teknár,"
segir Valdi-
mar Leó Frið-
riksson, áður
þingmaður
Samfylking- ,
arinnar, sem
gengið hefur til liðs við Frjáls-
lynda flokkinn. Á næstu dögum
skýrist hverjir munu leiða lista í
Suður- og Suðvesturkjördæmi og
jafnvel í Reykjavík.
Kristinn H. Gunnarsson
alþingismaður hefur þegið
annað sætið á lista flokksins í
Norðvesturkjördæmi en Guðjón
Arnar Kristjánsson, formaður
Frjálslynda flokksins, verður í
fyrsta sæti.
Tillögur úr kjördæmunum
fara síðan fyrir fund miðstjórnar
sem haldinn verður í. mars.
Aðalfundur Glitnis var haldinn á
Hótel Nordica í gær Hagnaður bank-
ans á rekstrarárinu 2006 nam 38,2
milljörðum króna eftir skatt. Banka-
stjórinn Bjarni Ármannsson í pontu.
Blodid/Frikki
Aðalfundur Glitnis banka:
Borga 9,4 milljarða
króna út sem arð
■ Hagnaður 38,2 milljarðar ■ Skoðað hvort skrá eigi í erlendri kauphöll
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
„Það er ljóst að bankinn er að skila
metafkomu og það er afskaplega
góður árangur í öllum rekstri bank-
ans,“ segir Einar Sveinsson, for-
maður stjórnar Glitnis. Hluthafar fá
greitt í arð 9,4 milljarða í samræmi
við hlutafjáreign eða sem nemur
tæpum 25 prósentum af hagnaði
árisins 2006.
Hagnaður Glitnis á rekstrarár-
inu 2006 eftir skatta nam 38,2 millj-
örðum króna. Þegar arðgreiðslur
hafa verið greiddar standa eftir
af hagnaði ársins 28,8 milljarðar
króna og verður þeim ráðstafað til
hækkunar á eigin fé Glitnis. Hlut-
höfum verður gefinn kostur á því að
fá allt að helming arðs síns greiddan
í hlutafé í bankanum á genginu 24,8
krónur per hlut.
Glitnir jafnvel skráður í
erlendri kauphöll
„Allar meginstoðir bankans eru
að skila afskaplega góðum rekstr-
arafgangi," segir Einar. „Það hefur
gengið afskaplega vel að efla starf-
semina á erlendri grund. Fyrir
ári síðan höfðum við starfsemi í 5
löndum en nú í 10 löndum."
Samkvæmt Einari er verið að
skoða það hvort skrá eigi Glitni í
erlendri kauphöll. „Það er ljóst að
með auknum umsvifum erlendis þá
þurfum við að fjármagna stækkun
bankans og ein leiðin til þess er að
skrá hann í erlendri kauphöll og laða
að erlenda fjárfesta í hluthafahóp
bankans. Það hafa ekki verið teknar
neinar ákvarðanir í þessu efni. En
þetta er bara eins og allt annað
sem eðlilegt er að taka til skoðunar
þegar reksturinn er að vaxa jafn
mikið eins og raun ber vitni.“
Eðliiegt framhald í lífshlaupinu
Tryggvi Þór Herbertsson, for-
stjóri fjárfestingarbankans Askar
Capital, segir að það komi sér
ekki óvart að farið sé að skoða
þann möguleika að skrá Glitni í er-
lendri kauphöll. „Ég tel að Glitnir
sé einmitt kominn á þann stað
í lífinu að þetta sé svona eðlilegt
skref, sérstaklega vegna þess hve
bankinn hefur mikla starfsemi á
Norðurlöndunum og í Noregi þá
sérstaklega. Þannig að þetta er
svona eðlilegt framhald í lífshlaup-
inu hjá þeim.
Tryggvi segir að skráning í er-
lendri kauphöll undirstriki alþjóð-
legan vinkil fyrirtækisins. „Ef það
verða góðar undirtektir með hluta-
féð, það er að segja að selja hluta-
bréf erlendis, þá rennir þetta bara
frekari stoðum undir bankann og
undir íslenskt fjármálalíf.”
breyttur, topplúga, Verð 6.300.000
Uppl. Toyota Reykjanesbæ s: 4206600
( Ævar s: 8965488)
GLÆSILEGUR BILL!
til sölu Land Crusier VX, ágúst 2005, ekinn 21.000 km. 35
Olíumengun við Suðurnes:
Olían úr
Olíulekinn sem hefur fundist við
Suðurnes síðustu daga er úr strand-
aða flutningaskipinu Wilson Mu-
uga, samkvæmt Helga Jenssyni hjá
Umhverfisstofnun. „Menn sjá olíu-
brák frá skipinu núna þannig að það
fer ekkert á milli mála.“
Undanfarna daga hefur fundist ol-
íumengun á Suðurnesjum og hefur
olían mest fundist við Garðskaga og
í sjávartjörn á Hvalsnesi, skammt
frá strandstað Wilson Muuga. Helgi
segir að þessi olíumengun frá skip-
inu komi ekki á óvart.
„Menn vissu það vegna halla skips-
ins og olíunnar sem var í þessum
botntönkum sem kom gat á. Það er
það stórstreymt núna að það vatnar
undan skipinu og við það losnar olía
úr þessum botntöknum.“
Wilson Muuga
Færri fuglar sem hafa lent í olíu- fannst í fiðri yfir tvö hundruð fugla.
menguninni fundust í gær en fyrra- Samkvæmt Helga er verið að hre-
dag. Segir Helgi það vísbendingu insa olíu úr lest skipsins og er verið
um að ástandið hafi ekki vernsað að setja í gang aðgerðir til að hreinsa
frá því á laugardaginn þegar olía það sem fundist hefur í fjöru.