blaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 6

blaðið - 21.02.2007, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 blaöið opið allan sólarhringinn. Sandblástursfilmur Fyrir vinnustaði og heimili • Stílhreint og snyrtilegt Lokar gluggum án þess að tapa náttúrulegri birtu Ýmis mynstur í boði ^margt merkileqt www.maogme.is sandblástursfilmur .merkingar .límmiðar .prentun Hvaleyrarbraut 35 220 Hafnarfjörður Sími: 534 7900 maogme@maogme.is (Pt First North - stærri tækifæri fyrir smærri fyrirtæki Morgunverðarfundur OMX Nordic Exchange á íslandi Kauphöllin býður félögum, fjárfestum og öðrum markaðsaðilum til morgunverðarfundar 22. febrúar á Nordica hotel (salur FG). First North Iceland er markaður þar sem minni kröfur eru gerðar en við skráningu á AðaUista KauphaUarinnar. Á síðasta ári opnaði isec markaðurinn sem varð um áramótin First North Iceland. Af því tilefni var reglum markaðarins breytt. Þetta var fyrsta skrefið í samþættingu Kauphallarinnar við OMX Nordic Exchange. Helsta breytingin, innleiðing ráðgjafa (Certified Advisor) við skráningarferlið og meðan skráning varir, er kynnt sérstaklega. Dagskrá: 8:00 Morgunverður 8:10 First North - Power Source for Future Companies Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar 8:25 Nordic Alternative on the Rise - the experience so far Johan Allstrin, Head of Sales, OMX Company Services, Stokholm 8:40 Certified Advisor - opportunities and responsibilities Rickard Lindgren, Compliance Officer, Kaupthing Bank Sverige 8:55 Umræður Fundi lýkur kl. 9:10. Fundarstjóri er Magnús Harðarson, forstöðumaður viðskiptasviðs Kauphallarinnar. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir kl. 12:00 miðvikudaginn 21. febrúar með pósti á ingibjorg.gudjonsdottir@omxgroup.com. Með nýjum tímum kom'a stærri tækifæri fyrir smærri fyrirtæki FIRSMORTH omxgroup.com/nordicexchange/firstnorth GRUNNSKÓLAKENNARAR Enginn fundur boðaður Stjórn Félags grunnskólakennara og launanefnd sveitarfé- laga hafa ekki fundað síðan 31. janúar síðastliðinn en þá hittust deiluaðilar hjá ríkissáttasemjara. Hvorki launa- nefndin né stjórn Félags grunnskólakennara hafa óskað INNLENT eftir nýjum fundi. Breytt í hótel innan skamms verður hafist handa við að breyta húsnæði Heilsuverndarstöðvarinn- ar við Barónsstíg í hótel. Mynd/Gkli Húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar verður aö hóteli Haldið leyndu hver keypti og á hvað ■ 1.500 fermetra byggingarréttur fylgir ■ Þrengir að Landspítalanum Eftir Magnús Geir Eyjólfsson og Heiðu Björk Vigfúsdóttur Til stendur að breyta húsnæði Heilsuverndarstöðvarinnar við Barónsstíg í hótel en gengið var frá kaupunum í síðasta mánuði. Kaupverð eignarinnar hefur ekki verið gefið upp en Jón Guðmunds- son hjá Fasteignamarkaðnum segir að ásett verð hennar hafi verið 1,1 milljarður. Hann segir jafnframt að kaupunum hafi fylgt 1.500 fermetra byggingarréttur en vildi ekki gefa upp hver kaupand- inn er. Að viðbættum byggingar- rétti verður húsnæðið því samtals um 6.000 fermetrar. Húsnæðið friðað að hluta Heilsuverndarstöðin er eitt helsta kennileiti borgarinnar en húsið var fullbyggt 1955 og sér- staklega hannað fyrir heilbrigð- isþjónustu. Höfundarnir hússins eru arkitektarnir Einar Sveins- son og Gunnar H. Ólafsson. Húsnæðið var friðað að hluta á síðasta ári en Jón segir að það komi ekki í veg fyrir að hægt verði að ráðast í nauðsynlegar breytingar fyrir hótelrekstur. Friðunin nær einkum til ytra borðs ásamt aðalanddyris og stigahúss auk anddyra við Bar- ónsstíg og Egilsgötu þannig að útlit hússins mun ekki taka stór- kostlegum breytingum. Ekki eitt hótelið í viðbót Sala hússins var mjög umdeild á sínum tíma, ekki síst innan heilbrigðisstétta sem vildu halda húnæðinu undir þar til gerða starf- semi. Reynir Tómas Geirsson, sviðsstjóri kvennasviðs LSH, seg- ist ekki botna í ákvörðun stjórn- valda um að selja húsnæðið og vísar ábyrgðinni á fjármála- og heilbrigðisráðuneyti. „Ég vona að sjálfsögðu að hótelgestum muni líða vel á hótelinu en þetta er sorgleg frétt. Landspítalann vantar verulega mikið pláss undir margvíslega starfsemi og það hefur verið þrengt að okkur eins og allir þekkja af fréttum um gangainnlagnir og skort á göngu- deildahúsnæði. Það líða mörg ár þangað til nýtt háskólasjúkrahús verður komið í þann rekstur að með því fari að létta á okkur og þar hefði Heilsuverndarstöðin verið gott úrræði fyrir Landspítalann,“ segir Reynir og segir málið ekki aðeins snúast um sögulegt gildi hússins. „Húsnæðið getur alveg samrýmst hótelnotkun en það er ekki málið. Þarna var feikilega gott húsnæði sem hefði átt að nýtast heibrigð- isstarfsemi sem fram fer í þágu samfélagsins en ekki eitt hótelið í viðbót. Ábyrgðin liggur fyrst og fremst í ráðuneytunum.“ Verjendur Baugsmanna rengja sönnunargögn: Auðvelt að falsa tölvupóst Yfirheyrslur yfir Tryggva Jóns- syni, fyrrum aðstoðarforstjóra Baugs, héldu áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Yfirheyrslu yfir Tryggva lýkur í dag en á morgun munu þeir Jón Gerald Sullenberger og Jón Ásgeír Jóhannesson mæta í yfirheyrslur. Meðal þess sem kom fram í gær var að Jakob Möller, verjandi Tryggva, lagði fyrir dóminn fals- aðan tölvupóst sem hann sagði að- stoðarmann sinn hafa gert á þremur mínútum. Leit pósturinn út fyrir að vera frá settum saksóknara í málinu, Sigurði Tómasi Magnússyni. Með þessu vildi Jakob sýna fram á hversu auðvelt það getur verið að falsa tölvu- póst en slíkir póstar skipta hundr- uðum ef ekki þúsundum í máls- gögnum. Dómarinn í málinu sagði tilraun Jakobs vissulega áhugaverða en að tölvupósturinn hafi ekki verið lagður formlega fram sem gagn í málinu og því ekki tekinn til greina. Þá deildu verjendur Baugsmanna Ur réttarhöldunum Rætt um tölvupósta Jakob Möiier, verjandi Tryggva Jónssonar sem hér ræð- ir við Gest Jónsson, sýndi réttinum fram á hversu auðvelt er að falsa tölvupóst. Mynd/BrynjarOauti og Sigurður Tómas nokkuð harka- lega eftir að sá síðarnefndi gaf til kynna að reikningar væru bókfærðir á þann hátt að neytendur nytu ekki góðs af afslætti birgja. Segir á fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is, að Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs, hafi mótmælt þessum um- mælum harkalega og að glósur um fyrirtæki ákærðu væru óþarfar og ómaklegar. Dómari benti sakskókn- ara á að hann væri fyrir rétti sem umboðsmaður ákæruvaldsins en ekki neytenda.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.