blaðið - 21.02.2007, Side 21

blaðið - 21.02.2007, Side 21
blaðið MIÐVIKUDAGUR 21. FEBRÚAR 2007 29 Lækkun sjónvarpsáskrifta Sjónvarpsunnendur njóta góðs af breytingum á lögum um virðisaukaskatt því að eftir í. mars lækkar virðisaukaskattur á afnotagjöldum sjónvarps og hljóðvarps úr 14 prósentum í sjö prósent. Þannig mun afnotagjald Ríkisút- varpsins verða 2.742 krónur en var áður 2.921 króna. Skjárinn og sjónvarps- stöðvar 365 lækka einnig gjöld á þeim ólíku áskriftaleiðum sem stöðvarnar bjóða upp á. MANAÐARASKRIFTIR SKJASINS Áskriftaleið Skjár Sport Ailt (SkjárHeimur) Fjölskylda (SkjárHeimur) Verð fyrir breytingu 2.995 kr. 4.395 kr. 2.595 kr. Verð eftir breytingu 2.342 kr. 4.125 kr. 2.436 kr. MÁNAÐARÁSKRIFTIR 365* Áskriftaleið Stöð2 Sýn Stöð2 og Sýn Verð fyrir breytingu 5.450 kr. (4.995 kr.) 4.790 kr. (4.365 kr.) 8.230 kr. (7.460 kr.) Verð eftir breytingu 5.120 kr. (4.965 kr.) 4.500 kr. (4.105 kr.) 7.750 kr. (7.010 kr.) * Félagar í M12 njóta betri kjara en þurfa aö skuldbinda sig til að vera (áskrift til lengri tíma. Veröskrá fyrir M12-félaga er innan sviga. Mismiklar lækkanir Virðisaukaskattur á veitingahús og matsölustaði lækkar úr 24,5 prósentum í 7 prósent þann 1. mars. Jafnframt fellur niður sér- stakt endurgreiðslukerfi virðisauka- skatts sem verið hefur við lýði á veitingahúsum. Kerfið gengur út á að sá hluti söluverðsins sem er vegna þjónustu beri 24,5 prósenta virðisaukaskatt en matarhlut- inn 14 prósenta virðisaukaskatt. Vegna þessa kerfis er gert ráð fyrir að lækkun á verði veitinga- húsa verði nokkru minni en sem nemur lækkun virðisaukaskatts úr 24,5 prósentum í 7 prósent. Verðbreytingar veitingahúsa verða mismunandi eftir því hve þjónustustig þeirra er hátt. Eftir því sem þjónustustigið er hærra verður lækkunin hlutfallslega meiri en hjá þeim veitingahúsum sem bjóða upp á litla þjónustu, eins og skyndibitastöðum. Veldu rétt Gerðu samanburð á japönsk- um gæðum. Berðu saman gæði og þjónustu Mazda og Toyota. Prófaðu eitthvað nýtt. Mazda keppir við hvern sem er - helst Toyota. Prófaðu aðra eiginleika. Prófaðu önnur þægindi. Núna Mazda3. MAZDA3 TOURIN6 Staðalbúnaður ABS diskahemlar á öllum hjólum EBD hemlajöfnun með EBA hemlahjálp DSC stöðugleikastýring Þriggja punkta öryggisbelti I öllum sætum Stillanlegir höfuðpúðar á öllum sætum Loftpúðar fyrir ökumann og farþega [ framsæti ásamt hliðarloftpúðum [ sætum Loftpúðagardlnur að framan og aftan Dagljósabúnaður Hreinsibúnaður á framljósum Fjarstýrð samlæsing ISOFIX festingar fyrir barnabllstól í aftursæti Leðurklætt velti- og aðdráttarstýri með útvarpsstillingum Hæðarstillanlegt bílstjórasæti. Rafdrifnar rúðuvindur að framan qý aftan 15"stálfelgur með heilum koppi Samlitir speglar.hurðarhúnar <m hliðarlistar Armpúði milli framsæta meðmólfi Glasahaldarar milli framsaeta og (afturhurðum Litað gler Auka hemlaljós að aftan Upphitaðir og rafstýrðir útispeglar Loftkæling Speglar (sólskyggnum Upphituð framsæti Niðurfellanleg aftursætisbök 60/40 Benslnlok opnanlegt innan frá Útvarp með geislaspilara og 4 hátölurum Útihitamælir Ljós í farangursrými Frjókornasía Leðurklæddur gírhnúður Miðstöðvarblástur afturl Gúmmlmottur að framan og aftan Metallitur MAZDA3 TOURING PLUS Búnaður umfram Touring Aksturstölva 16" álfelgur Dekk 205/55R16 Þokuljós að framan Sjálfvirk loftkæling (air-con) MAZDA3 SPORT Búnaður umfram Touring Plus 6 glra 17" Álfelgur Xenon framljós Dlóðuafturljós Útvarp með geislaspilara og 6 hátölurum Samlitt grill Sport sflsalistar Sport þokuljós I stuðara Sport stuðarar að framan og aftan Sport sæti og áklæði Vindskeið Regnnemi fyrir rúðuþurrkur Krómstútur á pústkerfi TCS spólvörn Hraðastillir Vertu sportlegur Veldu annan stíl Núna Mazda3 5 9 Hagsýnn íslendingur velur praktískan og fallegan bíl Núna Mazda3 Frábær í endursölu vvww. ^zdabfrnbonSMS brimborg Öruggur stadur til að vera 6 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | www.mazdabrimborg.is Rafhlöður til úrvinnslu Aðeins um 21 prósenti af þeim raf- hlöðum sem fluttar eru til landsins er skilað til úrvinnslu. Af þeim 161,5 tonnum rafhlaðna sem flutt voru inn til landsins árið 2005 var aðeins rúmlega 37 tonnum skilað. Það þýð- ir að hvorki meira né minna en 124 tonn af rafhlöðum hafa farið beint í ruslið og verið urðuð með öðru sorpi. Víða er hægt að skila ónýtum raf- hlöðum til úrvinnslu svo sem á bens- ínstöðvum, söfnunarstöðvum sveit- arfélaga um land allt auk þess sem fólk getur sett þær í endurvinnslut- unnur fyrir flokkað heimilissorp. Ýmis hættuleg efni fyrirfinnast í sumum rafhlöðum og ef þau sleppa út í náttúruna getur það haft alvar- legar afleiðingar. Þungmálmarnir blý, kvikasilfur og kadmíum eru allir eitraðir og hafa áhrif á um- hverfið og þar með heilbrigði dýra og manna. Þeir geta enn fremur safnast upp í líkamanum og valdið heilsutjóni. Um sjö prósent þeirra rafhlaðna sem skilað var til úrvinnslu árið 2005 innihéldu spilliefni. Um er að ræða kvikasilfursrafhlöður, nikkel- kadmíumrafhlöður og litíum-raf- hlöður. Þó að rafhlöður sem inni- halda spilliefni séu ekki stór hluti af heildinni geta þær verið verulega skaðlegar og því er fólk hvatt til að skila öllum rafhlöðum til úr- vinnslu. Einkabíllinn vinsæll Nærri þrír af hverjum fjórum Reykvíkingum aka sjálfir til vinnu eða skóla. Þetta eru niðurstöður könnunar á viðhorfum borgarbúa til þjónustu Reykjavíkurborgar sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands gerði fyrir umhverfissvið borgarinnar. 73 prósent svarenda sögðust hafa ekið til vinnu eða skóla en aðeins 4 prósent voru farþegar í bíl. Þá sögðust 2 prósent fara á reið- hjóli, 7 prósent með strætó, 12 pró- sent gangandi og 3 prósent á annan hátt. ívið fleiri karlar (79 prósent) keyra sjálfir en konur (67 prósent). 80 prósent fólks á aldrinum 35-54 ára keyra sjálf og virðist því sem almennt samnýti hjón ekki einn bíl heldur fari þau hvort á sínum. Þarfasti þjónninn Reykvíkingar kjósa að aka sjálfir til vinnu eða skóla. Könnunin var gerð á tímabilinu 17. nóvember til 9. desember 2006.

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.