blaðið - 23.03.2007, Blaðsíða 1
58. tölublað 3. árgangur
föstudagur
23. mars 2007
FRJÁLST, ÓHÁÐ & ÓKEYf%,<i!
■ FÓLK
Alexandra Chernyshova er slavnesk
en búsett á Skagaströnd og er um
þessar mundir að koma upp óper-
unni La Traviata eftir Verdi | síða ió
■ MATUR
Ragnar Freyr Ingvarsson læknir er mikill
ástríðukokkur og heldur úti heimasíðu
þar sem hann setur inn uppskriftir að
tilraunum sínum í eldhúsinu | sIða2o
IYND/EYÞÓR
Ómar Ragnarsson fer fyrir stjórnmálaflokki Formaðurinn tók fyrstur til máls á kynningarfundi (slandshreyfingarinnar í gær. Hann sagði kosningarnar í vor verða að snúast um
landið sjálft og að Islandshreyfingin hefði algjöra sérstöðu því hún væri ein flokka græn í gegn. Halda á umhverfismálum í umræðunni alveg fram að kosningum og tryggja að ekki verði
mynduð hrein stóriðjustjórn að þeim loknum.
Margrét Sverrisdóttir er varaformaður íslandshreyfingarinnar:
Vill sætta fylkingar
■ Virðist sátt ■ Ómar óformlegur leiðtogi umhverfissinna ■ VG óttast ekki fyigistap
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net
Sérstakt er að Margrét Sverrisdóttir skuli ekki
fara með formennsku hins nýja flokks íslands-
hreyfingarinnar. Þetta segir Baldur Þórhallsson,
prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands.
,Það er nokkuð sérstakt að hún skuli alltaf virð-
ast sætta sig við varaformannssætið. Hún hefur
heilmikla pólitíska reynslu þar sem hún hefur
verið framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins
og starfað náið með þingflokki hans auk þess
sem hún hefur komið að borgarmálunum sem
varaborgarfulltrúi."
Ómar Ragnarsson er formaður bráðabirgða-
stjórnar Islandshreyfingarinnar. Hann ásamt
Margréti, Jakobi Frímanni Magnússyni og Ósk Vil-
hjálmsdóttur kynnti framboðið til alþingiskosn-
inga í gær. Raðað verður á lista á næstu dögum.
Skýringuna á formennsku Ómars telur Baldur
geta verið áherslu íslandshreyfingarinnar á
umhverfismálin og baráttu Ómars fyrir þeim.
,Hann hefur verið óformlegur leiðtogi umhverfis-
sinna utan þings. Margrét hefur kannski verið í
öðrum málum en umhverfismálum."
Framboðið hefur legið í loftinu síðustu vik-
urnar og leggur Margrét áherslu á að framboðið
samanstandi af tveimur meginfylkingum,
hennar og Ómars Ragnarssonar. „Við vildum
vanda okkur við að bræða þær saman og ég vona
að það hafi tekist. Við teljum að mitt fólk og hans
fólk sé sátt.“
Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri
grænna, kveðst ekki óttast fylgistap vegna nýja
framboðsins. „Við höfum auðvitað engan einka-
rétt á umhverfismálum,“ segir Steingrímur. „Ég
býst ekki við að þessi flokkur verði metinn bara
út frá þessum málaflokki og persónum.“
Sjá einnig síðu 6
» síöa 33
Ekkert gamalmenni
Egill Gilzenegger Einars-
son segir skoöanir sínar á
lífinu og tilverunni. Hann
telur sig ekki veröa mjög
gamlan miöaö við þaö
hvernig lífi hann lifir.
VEÐUR
» síða 2 I VIÐTAL
Kólnar
Úrkomulítið norðaustan- og
austanlands. Suðvestan 8-15 á
morgun með skúrum eða éljum
um landið vestanvert, rigningu
suðaustanlands, en þurrt á
Norðausturlandi. Kólnar heldur.
Rétti maturinn
Ólafur Sæmundsson
næringarfræðingur segir
að mikilvægt sé að vinna
bug á ýmsum lífseigum
ranghugmyndum um hollt
og óhollt mataræði.
•> síöa 26
HELGA
UR KJOTBORÐI
SVÍNAKJÖTSÚTSALA
Grísakótelettur
kr. 899 kg.
Grísahnakki úrb.
kr. 899 kg.
Grísalundir
kr.1.998 kg.
Opið alla daga frá kl. 10.-20.
SP. P
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
(U
4-3
£_
:0"D
>i=
Allir sem safna Vildarpunktum
fá nú tvöfalda Vildarpunkta
þegar þeir versla hjá Olís.
VISA
Vildarkort
OLÍS - við höldum með þér!
Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16
Reykjavik sinii: 533 3500 - Akureyri sinii: 462 3504
Egilsstaðir: sími: 471 2954
ferwwnfy 2007
Frábær tilboð á rúmum, grjónastólum og púðum og fylgihlutum
Heilsurúm - dýnur - gjafavara - svefnsófar - stóiar - sófar - grjónapúðar