blaðið - 23.03.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 23.03.2007, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 biaöiö VEÐRIÐ í DAG Kólnar Suövestan 8 til 15 með skúrum eða éljum um landið vestanvert, rigningu suðaustanlands, en þurrt á Norðaust- urlandi. Kólnar heldur. ÁMORGUN Milt Suðaustan 13 til 18 m/sog rigning eða súld sunnan- og vestanlands, en talsvert hæg- ari og úrkomulítið norðaustan- tii fram eftir degi. Fremur milt. VÍÐAUMHEIM | Algarve 14 Amsterdam 9 Barcelona 16 Berlín 3 Chlcago 17 Dublin 11 Frankfurt 3 Glasgow Hamborg Helsinki Kaupmannahöfn London Madrid Montreal 11 New York 6 Orlando 5 Osló s Palma 7 París 11 Stokkhólmur 2 Þórshöfn 7 17 9 20 8 2 8 Á FÖRNUM VEGI Hefur þú farið á skíði í vetur? Hrund Sigfúsdóttir, nemi Já, ég æfi skíði. Rakel María Sigfúsdóttir, nemi Já, frekar oft. Sólveig Vilhjálmsdóttir, verslunarstjóri Nei. Björgvin Gunnarsson, næturvörður Nei, ég kann ekki á skíði. Grétar Örn Ásgeirsson, sölumaður Nei, ég hef ekki enn farið á skíði. Nefnd um fjárreiður stjórnmálaflokka: Ottuðust áhrif hagsmunahópa ■ Framtíðarlandið gefur ekki upp styrktaraðila ■ Lög um upplýsingaskyldu ná ekki yfir hagsmunasamtök Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur heida@bladid.net 1 nefnd um fjárreiður stjórnmála- flokka var óttast að ef farið væri að gera stjórnmálaflokka upplýsinga- skylda um fjárframlög myndu fjár- sterkir aðilar, sem vildu hafa áhrif á gang mála í stjórnmálum, fara með sína peninga og áhrif út fyrir stjórn- málaflokkana. Þeir myndu setja þá í einhverja hagsmunahópa eða sam- tök sem síðan blönduðu sér í kosn- ingabaráttu. Þetta segir Margrét S. Björnsdóttir, þjóðfélagsfræðingur og fulltrúi Samfylkingarinnar í nefndinni. „Hagsmunahópar hvers konar blanda sér undir mismunandi yfir- skini í vaxandi mæli í kosningabar- áttu,“ segir Margrét. „Þau miklu völd sem stjórnmálaflokkar og frambjóðendur hafa eru rökin fyrir upplýsingaskyldu þeirra um fjár- framlög og sú hætta að fjársterkir aðilar kaupi sér áhrif framhjá þeim. Mér finnst nauðsynlegt að ræða hvort rökin fyrir gagn- sæi og opnu bókhaldi eigi ekki að sama leyti einnig við um hagsmunahópana." Gætu komið upp vandamál varðandi fjárframlög Gunnar Helgi Kristins- son, prófessor í stjórn- málafræði við Háskóla íslands, segir að það sé sérstök ástæða fyrir lögum um fjármál stjórnmálaflokka. Þeir hafi vel skilgreind völd til að taka ákvarðanir sem varða marga. „Hagsmunasamtökeruyfirleitt ekki í þannig aðstöðu og þess vegna gilda ekki sömu reglur um þau. Nú gætu auðvitað skapast þau skilyrði að stjórnmálaflokkar væru með hagsmunasamtök í vas- anum eða hagsmunasamtök væru á einhvern hátt á vegum einhverra stjórnmálaflokka. Þá gæti komið upp það vandamál að það mætti í raun og veru líta á einhver framlög til tiltekinna hagsmunasamtaka sem leynileg framlög til stjórnmála- flokks. Ef það kæmi upp væri full ástæða til að bregast alvarlega við því og velta fyrir sér leiðum til að taka á því.“ Verður að gefa upplýsingar um framlög fyrirtækja Framtíðarlandið, félag áhuga- fólks um framtíð fslands, neitar að gefa upp styrktaraðila sína og kostnað auglýsingaherferðar, eins og fram kom í Blaðinu í gær. „Meðan ekki liggja fyrir sérstakar grunsemdir um að Framtíðarlandið sé á snærum einhvers stjórnmála- flokks er ekki sérstök ástæða til að hafa áhyggjur af því að framlög til Framtíðarlandsins séu ekki opinber. Að minnsta kosti ekki þess ko n a r F057224?a F05722 Flokkarnir gætu verið með hags- munasamtök i vasanum GunnarHelgi Kristins- son, prófessor í stjórn- málafræði við Hl. áhyggjur sem liggja að baki lögum um fjárreiður stjórnmálaflokka,“ segir Gunnar Helgi. Nefnd um fjárreiður stjórnmála- flokka skilaði af sér tillögum í des- ember sem voru lögfestar fyrir ára- mót. Samkvæmt þeim eru hámarks fjárframlög 300 þúsund krónur. Upplýsa þarf um öll framlög fyrir- tækja, sama hver upphæð þeirra er. Ekki þarf að gefa upplýsingar um fjárframlög einstaklinga. Hagsmunahópar biandasérí vaxandi mæli í kosningabaráttu Margrét S. Björnsdóttir, þjóöfélagsfræðingur. Afganistan: Fjörutíu tali- banar drepnir Hermenn á vegum Atlants- hafsbandalagsins og afganska stjórnarhersins drápu um fjöru- tíu uppreisnarmenn talibana í árásum í Helmand-héraði í suðurhluta Afganistans í gær. Talsmaður afgönsku lög- reglunnar í héraðinu segir þá hafa dáið í tveimur aðskildum hernaðaraðgerðum.„Ellefu létust í annarri árásinni en 27 í hinni.“ Búist er við að tala látinna muni hækka þar sem sóknin gegn uppreisnarmönnum talibana stóð yfir langt fram effir degi. Ofbeldisverkum fór fjölgandi í Afganistan á síðasta ári og var síðasta ár það mannskæðasta frá upphafi innrásar Bandaríkja- manna i Afganktan árið 2001. Reykjavík: Varnargarður rofnaði Sjóvarnargarður rofnaði við Ánanaust vegna háflóðs og mik- illar ölduhæðar á miðvikudags- kvöld og aðfaranótt gærdagsins. Sjór gekk víða á land með þara og grjóti og unnu verktakar á vegum ffamkvæmdasviðs borg- arinnar að því að fylla skarðið sem myndaðist með grjóti í gær. Framkvæmdum lauk síðdegis en kvöldflóðið náði hámarid um níuleytið í gærkvöldi. Styrking sjóvarna á svæðinu er í undirbúningi og er stefnt að því að framkvæmdir við hækkun varnargarðsins um einn metra muni hcfjast á þessu ári. Landspítali-háskólasjúkrahús: Erfitt að ráða í afleysingar Mjög fáir þeirra rúmlega 80 hjúkr- unarfræðinema sem útskrifast í vor hafa ráðið sig til starfa á Land- spítala-háskólasjúkrahúsi. Útskrift- arnemarnir segja launin þar of lág. Hjúkrunarforstjóri spítalans, Anna Stefánsdóttir, er um þessar mundir að reyna að ganga frá ráðningum sumarafleysingafólks en hún er ekki bjartsýn. „Ég get ekki verið það því að þetta er þungt verkefni,“ segir hún. Anna óttast að draga þurfi meira úr starfseminni í sumar en í fyrra. „Hér starfa um 1.200 hjúkrunar- fræðingar og ljósmæður og 600 sjúkraliðar auk 200 til 300 aðstoðar- manna. Það starfa um 4.000 manns á Landspítala þannig að hjúkrunar- fólk er stærsti flotinn og við þurfum auðvitað að gefa öllu starfsfólkinu hjúkrunarfræðingar á Landspítal- okkar sumarleyfi.“ anum. Hún kveðst ekki vilja tjá sig Að sögn Önnu hefur verið auglýst að svo stöddu um hvað gert sé til að eftir hjúkrunarfólki á Norðurlönd- laða íslenska útskriftarnema í hjúkr- unum en nú starfa um 60 erlendir unarfræði að spítalanum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.