blaðið - 23.03.2007, Side 21
blaðið
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 21
Flott páskaterta
Það styttist í páska og fermingarnar svo það er ekki úr vegi að birta upp-
skrift að góðri páskatertu með súkkulaði.
Botn
■ too g dökkt og gott súkkulaði
■ íoogsmjör
■ 2dlsykur
■ 2 tsk. vanillusykur
■ 3 egg
■ 3 dl hveiti
■ 1 tsk. lyftiduft
Fylling
■ 3 dl rjómi
■ 50 g valhnetur, hakkaðar
■ Vi dós niðursoðnar apríkósur
Skreyting
■ 1 dós niðursoðnar apríkósur
■ 50 g súkkulaði, rifið
Aðferðin
Bræðið súkkulaði í vatnsbaði við vægan hita.
Hrærið smjör, sykur og vanillusykur saman þannig að blandan verði létt
og ljós. Setjið súkkulaðið saman við. Þá er eggjunum blandað saman við
og því næst hveitinu og lyftiduftinu. Deigið er sett í vel smurt form og neð-
arlega í i8o°C heitan ofn. Bakað í 50 mínútur.
Þegar kakan er orðin köld er hún klofin í þrjá botna. Þeytið rjómann og
hrærið hnetur varlega saman við. Skerið apríkósurnar í litla bita og setjið
út í. Það má hafa safa með eftir því sem hver og einn vill.
Vætið kökubotninn með safa úr dósinni. Setjið rjóma á neðsta botninn, á
næsta botn er apríkósubitum raðað og restinni af rjómanum er smurt ofan
á efsta botninn.
Skreytið tertuna með apríkósum og rifnu súkkulaði.
Holl og góð trefjarík brauð
í dagsins önn
Til kornvöru teljast hafrar, rúgur, hveiti, bygg,
hrísgrjón og maís, ásamt afurðum úr þessum vörum,
svo sem brauð, grautar, pasta og morgunkorn.
Mest er af vítamínum, steinefnum og trefjaefnum
í hýði og kími. Þess vegna er mikilvægt að neyta
kornvöru sem inniheldur alla hluta kornsins. Stundum
er heilt og ómalað korn notað sem hráefni í brauð,
en oftar er þó notað malað heilkorn, sem inniheldur
ennþá öll næringarefni kornsins.
Þú færð allt holla og góða - grófa
brauðið hjá okkur!
Dalvegi 4 • Sími 564 4700 Hamraborg 14 • Sími 554 4200
Opið: Mánud.-föstud. 06:00 • 18:00 Opið: Mánud-laugard. 08:00 ■ 18:00
Laug. 06:00 -17:00 Sunn. 07:00-17:00 Laug. 08:00-16:00 Sunn. 09:00-16:00
w... mm
lA
Kynning og sýning á Nordica Hotel
laugardaginn 24. mars kl. 12:00 - 16:00
Austurland
Blómstrandi atvinnulíf
°g öflugt samfélag
ÞRÓUNARFÉLAG AUSTURLANDS
tækifæranna
Á þriðja tug fyrirtækja, samtaka og stofnana kynna hin margvíslegu tækifæri sem
bjóðast á Austurlandi, atvinnutækifæri, búsetutækifæri og viðskiptatækifæri.
• Fyrirtæki af svæðinu kynna starfsmöguleika hjá sér og þjónustu sem
þau veita.
• Húsnæðismál, eignir og lóðirtil sölu.
• Þjónusta sveitarfélaga.
• Menningar- og frístundastarf.
• Ferðaþjónusta.
• Þróunarfélag Austurlands, Þekkingarnetið, Menningarráðið
og Markaðstofa Austuriands kynna starfsemi sína.
Eiríkur Björn Björgvinsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs,
og Helga Jónsdóttir, bæjarstjóri í Fjarðabyggð,
verða á staðnum og ræða við gesti.
Grípið tækifærið!
Kynnið ykkur kraftinn og uppbygginguna
sem hafa einkennt Fjarðabyggð og
Fljótsdalshérað á síðustu misserum og
sláist í hópinn með okkur.
> L
AU5TURLAND
TÆKIFÆRANNA
Alcoa Fjarðaál s
FLJÓTDALSHÉRAÐ
VII\II\IUMÁLA
STOFMUIU
FJARÐABYGGÐ