blaðið - 23.03.2007, Blaðsíða 32
I Jjúfum takti í Barcelona
Agrámyglulegum dögum þegar
veðurstofan færir okkur fréttir
af komandi lægðasúpu á landinu
og stressið nær upp í hæstu hæð-
ir leitar hugur margra til staða í
heiminum þar sem stemningin
er rólegri, nægjusemin og afslöpp-
unin ráða ríkjum og veðurfarið fer mildari hönd-
um um íbúana.
Hjónakornin Svavar Pétur Eysteinsson og Berg-
lind Haisler, sálin og hjartað úr hljómsveitinni
Skakkamanage, skildu taktinn eftir og fluttust bú-
ferlum til Barcelona. Þau búa nú í Eixamples-hverf-
inu í borginni, semja tónlist, læra spænsku, hanna
bókakápur og njóta þess að vera til.
Hvað kom til?
„Þetta er eina heilsulindin sem virkar. Okkur
langaði að hvíla okkur aðeins á Reykja-
vík og vorum orðin þreytt á öllu
stressinu sem fslendingar ”‘"7
eiga áreiðinlega met í og
öllu lífsgæðakapphlaup-
inu. Við pökkuðum
bara öllu dótinu
okkar ofan í kassa,
settum í geymslu,
leigðum út íbúð-
ina okkar og pönt-
uðum flugfar.
Það gekk mjög
vel að finna íbúð
en hún er í fínu
hverfi í göngufæri
frá miðbænum.
Fyrsta verkið sem
við gerðum var að inn-
rita Elísu dóttur okkar í
skólann sem er hér í næstu
götu. Hún er orðin mjög
klár í katalónskri menningu og
tungumálinu og leiðréttir okkur þeg-
ar við förum út í búð og aðstoðar okkur eftir
fremsta megni,“ segir Svavar en hann er enn sem
komið er rétt „búðarfær“ í katalónskunni.
Hvað er ólíkt við að búa í Barcelona
og í Reykjavík ?
„Við eyðum miklu meiri tíma saman fjölskyldan
og erum mikið heima við bæði vegna þess að við
vinnum heima og líka vegna þess að við þekkjum
engan... ennþá. Það er ekki þessi endalausi þey ting-
ur og við höfum miklu meiri tíma fyrir allt. ísskáp-
urinn er ávallt fullur af allskyns spænsku góðgæti
og við erum bara í rólegheitunum og döfnum vel.“
Hvernig eru Barcelonabúar?
„Þeir eru að mörgu leyti líkir fslendingum, sval-
GUÐLAUG OnÓSDÓniR 20 ÁRA
Hver er sterkasti vbövi likamans?
Rassinn
Hvað heitir helsti spámaður múslima?
Múhameð
Úr hverju er súkkulaði aðallega búið til?
Kakó
Hverertalan pí?
9,13458
Hvar er Flatey?
Ég er ekki góð í landafræði
' : «v.'*
ir og gefa kannski
ekki mikið af sér.
Hinsvegareruþeir
ekki að stressa sig
eins mikið á metn-
aði og lífsgæða-
kapphlaupinu, og
þetta endalausa
meik sem alltaf er
á fslandi er ekki að
finna hér. Kannski
er það af því að þetta er
stærra samfélag að það er
r ekkihægtaðveraíendalausri
keppni við alla. Heima er svo auð-
velt að keppa þar sem þátttakendurn-
ir eru svo fáir, hér er keppnin alltof erfið og
fjölmenn þannig að enginn nennir að taka þátt í
henni.“
Hvað erþað besta við borgina?
„Það hefur verið gestagangur og við erum bú-
in að taka túristapakkann alveg í gegn og helstu
kennileiti. Það er samt enn margt sem við eigum
eftir að skoða og margt sem borgin hefur upp á
að bjóða. Uppáhaldshverfið okkar hérna heitir
Gracia sem er gamalt hverfi, hálfgerður miðbær
en laus við túrisma. Þar er mikið um lítil kaffihús
og skemmtilegar búðir og markaði. Við förum yfir-
leitt á markaðinn til að versla og það er gaman að
kaupa hér allskonar ávexti, grænmeti og kjötvöru
og ég er ekki frá því að það sé skemmtilegra en að
gera magninnkaupin í Bónus.“
Er eitthvað út á borgina að setja?
„Tónlistarlífið er kannski það helsta sem setja
má út á og í Barcelona er eiginlega ömurlegt tón-
listarlíf. Það er mikið um þjóðlega tónlist og jað-
arbylgjan er mjög léleg, svo léleg að við höfum
ekki fundið hana ennþá eða kannski er hún bara
svona mikið jaðar. Coldplay heyrist óma svona 30
sinnum á dag og síðan eru þeir mikið að hlusta á
lög sem voru vinsæl fyrir svona 15 árum. Þannig
að eiginlega má segja að um tónlistarlegt hallæri
sé að ræða í þessari annars ágætu borg.“
En erþá ekki bara málið að bœta úrþví?
„Jú, ef það er eftirspurn þá erum við alveg til í
að svara henni. Annars erum við búin að fá góð-
an tíma til að semja tónlist og með vorinu mun-
um við væntanlega hóa hljómsveitinni saman og
taka upp nokkur góð lög. Lögin eru eins konar
dagbók um líf okkar og eru í þeim anda sem við
erum í og lýsa stemningunni hérna ágætlega."
En hvað er svo á dagskránni, þurfið þið ekki að
koma heim að keppa?
„Við erum ekkert að hugsa um það eins og er.
Suma daga gleymir maður meira að segja mark-
miðum sínum en þau poppa þó alltaf upp aftur,
sem betur fer. Það verður bara að ráðast hvað
maður gerir. Við komum allavega heim til að
ferma Elísu, en annað er ekki ákveðið, nú erum
við bara að lifa einn dag í einu og njóta lífsins."
GRlMUR MAR18ÁRA
Hver er sterkasti vöðvi líkamans?
Tungan
Hvaö heitir helsti spámaður múslíma?
Veit ekki
Úr hverju er súkkulaði aðallega búið til?
Rjóma
Hverertalan pí?
3,14
Hvarer Flatey?
Hjá Viðey
LfSA MARÍA 22 ÁRA
Hver er sterkasti vöðvi likamans?
Lærvöðvinn
Hvað heitir helsti spámaður múslima?
Veit ekki
Úr hverju er súkkulaði aðallega búið til?
Sykri og einhverri drullu
Hverertalan pí?
Ég veit það ekki
Hvar er Flatey?
Fyrir utan fsland
Eogepuejiefíis/ igjgegiaja 'S H'E V urn
-uneqo>|B>| •£ gauieqnyy 'z ueöuni :joas
PALL FEKK 29 SKEYTI,
NÆSTFLEST í BEKKNUM
Heillaskeyti á fermingardaginn er persónuleg LeiÖ til aó tjá vináttu og væntumþykju.
Sendu skeyti - farðu inn á www.postur.is eöa hringdu í síma 1446.
Einfalt og skemmtilegt!