blaðið - 23.03.2007, Side 39
blaðið
FÖSTUDAGUR 23. MARS 2007 39
Stöð 2 kl. 20.30
Sönglað í
Smáralindinni
Úrslitakeppnin í X-Factor
heldur áfram í beinni útsend-
ingu frá Vetrargarðinum í
Smáralind. Upphaflega mættu
tólf með atriði til leiks en eftir
rifrildi dómara, táraflóð og
falska tóna standa nú einungis
fjögur lið eftir.
Baráttan milli sönghópanna
Hara og Gís, yngismeyjarinnar
Guðbjargar og hins sykursæta
Færeyings Jógvan fer sífellt
harðnandi og er Ijóst að kepp-
endur sem dómarar eru farnir
að bíta vel í skjaldarrendur.
Hver skyldi slá feilnótu í kvöld?
Skjáreinn kl. 21.00
Ævintýri
eyjarskeggja
Vinsælasta raunveruleikasería
allra tima, Survivor, heldur nú
áfram göngu sinni. Þetta er 14.
keppnin og nú fer hún fram á
Fídjieyjum í Suður-Kyrrahafi.
Að þessu sinni hefja 19 einstak-
lingar leikinn og eins og venju-
lega kemur ýmislegt á óvart.
Þættirnir eru sýndir glóðvolgir
innan við sólarhring eftir að
þeir eru frumsýndir í Bandaríkj-
unum. Að þessu sinni halda
samfélagslegar tilraunir Marks
Burnett áfram út í ystu æsar
því nú þurfa ættbálkarnir að
upplifa sterka stéttaskiptingu.
Annar ættbálkurinn lifir í vellyst-
ingum á meðan meðlimir hins
þurfa að leggja sig alla fram til
þess eins að draga fram lífið.
Hvaða hrakfarir bíða eyjar-
skeggjanna í kvöld?
Stöð 2 Bíó kl. 22:15
Úr smiðju
meistarans
The Secret Window er verulega
hrollvekjandi spennumynd þar
sem Johnny Depp fer með
aðalhlutverkið. Handrit mynd-
arinnar er byggt á sögu eftir
Stephen King.
Depp leikur rithöfund sem er
sakaður um ritstuld af geð-
trufluðum náunga sem tekur
að ofsækja hann. Með önnur
hlutverk fara John Turturro (Bar-
ton Fink) og Maria Bello sem
nýverið var tilnefnd til Golden
Globe-verðlauna fyrir leik sinni
í myndinni History of Violence.
í gegnum tíðina hefur misjafn-
lega gengið að færa sögur
meistara Stephens King á
hvíta tjaldið en með leikara á
borð við Johnny Depp og John
Turturro innanborðs er erfitt að
klúðra málunum.
Veisla á Skjánum:
Vönduð kvikmyndahátíð
Þeir sem hafa fengið sig fullsadda
á endalausum straumi misvandaðra
Hollywood-mynda geta tekið gleði
sína því Skjárinn og Græna ljósið
hafa blásið til mikillar kvikmynda-
hátíðar. Hún er aðgengileg öllum
þeim sem hafa aðgang að ADSL-
sjónvarpi Símans. Á hátíðinni
verða sýndar tíu myndir víðsvegar
að úr heiminum sem eiga það allar
sameiginlegt að vera óhefðbundnar
og eru sýndar hér á íslandi í fyrsta
sinn.
Myndirnar á hátíðinni eru gerð-
ar af mörgum umdeildustu og sér-
lunduðustu leikstjórum nútímans
á borð við Lars Von Trier, Thomas
Vinterberg og Lukas Moodysson
sem gerði hinar umdeildu myndir
Fucking Ámál, Lilja 4-ever og Hole
in my Heart. Margir þekktir leikarar
koma fram í þessum myndum og þar
nægir að nefna nöfn á borð við Maca-
ulay Culkin, Willem Dafoe, Danny
Glover og Bryce Dallas Howard.
Aðalmynd hátíðarinnar er hin
íranska gamanmynd Offside, eða
Rangstaða eins og hún nefnist á
íslensku. Myndin segir frá hópi
kvenna sem reyna að smygla sér inn
á knattspyrnuleik í gervi karlmanna,
en eins og kunnugt er, þá er konum
meinaður aðgangur að knattspyrnu-
leikjum þar í landi. Myndin vann
Silfurbjörninn á kvikmyndahá-
tíðinni í Berlín á síðasta ári enda
Hin íranska Offside
Komast konurnar á leikinn?
þykir myndin bæði vönduð og
skemmtileg.
FULLMOTAÐU
PERSÓNULEIKA
HEIMILISINS
HÖNNUN - RÁÐGJÖF - ÞJÚNUSTA
VZ HANAK
Ví/Aá INNRÉTTINGAR Síðumúla 35 108 Reykjavík Slmi 517 0200 heild@heild.is www.heild.is