blaðið - 27.03.2007, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 27. MARS 2007
blaöið
INNLENT
FIMMTÍU 0G SEX UMFERÐARÓHÖPP
Einn hringdi í 211 í stað 112
Tæplega 60 umferðaróhöpp voru tilkynnt til
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. (
einu tilfelli var ekið á karlmann á þrítugsaldri í mið-
borginni. Sá fór gangandi á slysadeild, enda svaraði
enginn þegar hann hringdi ítrekað í 211.
ÞJÓFNAÐUR í VERSLUNUM
Lithái úrskurðaður í gæsluvarðhald
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms
Reykjavíkur um að Lithái sæti gæsluvarðhaldi til 20.
apríl. Hann hafði verið settur í farbann eftir að í Ijós
kom að hann hafði reynt að selja stolin úr. (kjölfarið
varð hann svo uppvís að þjófnaði í fleiri verslunum.
ÓSKAR BERGSSON
Ráðinn kosningastjóri Framsóknarflokks
Óskar Bergsson varaborgarfulltrúi hefur verið ráðinn kosn-
ingastjóri Framsóknarflokksins í Reykjavík. Óskar hefur
gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokk-
inn og er varaborgarfulltrúi og formaður framkvæmdaráðs
Reykjavíkur eftir sveitarstjórnarkosningarnar síðasta vor.
’
Tveimur bjargað af toppi jeppa:
Vegurinn var ófær
Tveimur mönnum var bjargað
af toppi Land Rover-jeppa sem
sökk í krapa á Gjábakkavegi,
fjallsleið milli Laugarvatns og
Reykjavíkur. Þrír sérhæfðir báta-
björgunarmenn sveitarinnar Ing-
unnar á Laugarvatni björguðu
mönnunum í bát og drógu jepp-
ann á þurrt.
Bjarni Daníelsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Ingunnar,
segir veginn hafa verið lokaðan.
Frá því hafi verið greint með skilti,
en ferðalangar freisti þess að fara
veginn þar sem hann stytti ferða-
lagið til Reykjavíkur um tuttugu
til fjörutíu mínútur. Útköll vegna
leiðarinnar séu algeng.
„Þegar snjóar er útkall á veg-
inn,“ segir Bjarni. Við hann safn-
ist krapahylir og í einum slíkum
hafi jeppinn lent.
Mennirnir komust nær þurrir
á topp bílsins, þeim varð því ekki
meint af klukkustundarbið eftir
björguninni. Veðrið var einnig
gott.
„Á meðan vegurinn er ekki end-
urgerður verður hann til trafala,"
segir Bjarni.
................ 11 '
Reykjavlkurborg
Qpinn íbúafundur
Hverflsráð Breiðholts býður til opins íbúafundar í
Gerðubergi þriðjudaginn 27. mars n.k. kl. 20:00
Dagskrá:
■ Kynning á íbúasamtökunum Betra Breiðholt
■ Hanna Birna Kristjánsdóttir, formaður Skipu-
lagsráðs Reykjavíkurborgar flytur ávarp
■ Óskar Bergsson, formaður Framkvæmdaráðs
Reykjavíkurborgar flytur ávarp
■ Pallborðsumræður
BETRA
BREI HOLT!
Breiðholtsbúar hvattir til að mæta.
Hverfisráð Breiðholts
Guðlaugur Sverrisson, formaður
Borgar sig að flokka sorp?
Fræðslufundaröð
Sesseljuhúss umhverfisseturs og Landverndar
Fvrirlesarar;
GuðmundurTr. Ólafsson, Sorpstöð Suðurlands.
Er hagkvæmt að flokka og endurvinna sorp?
Bryndís Þórisdóttir, Vistvernd í verki.
Flokkun og endurvinnsla á heimilum.
Fundarstaður: Sesseljuhús umhverfissetur, Sólheimum
Dagsetning: Miðvikudaginn 28. mars, kl. 17:30 -19:00.
AÐGANGUR ÓKEYPIS
www.sesseljuhus.is
www.landvernd.is landvernd
Mynd/'Þorkeli
Leikskólakennaranemar:
Læra líkamsþjálfun
barna í átta stundir
-■
mm
*,«*• -
» ■
Ahersla a hreyfiþ]alfun og
hollt fæði Börn við Heilsuleik-
skólann Urðarhól
■ Skilur afstöðu leikskólastjórans ■ Lögin endurskoðuð ■ Færnin ekki næg
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Ég skil vel að leikskólastjórinn vilji
fá sérmenntað fólk til að kenna
hreyfingu, það er að segja íþrótta-
kennara, vegna þeirrar áherslu sem
lögð er á heilsu í þessum leikskóla,“
segir Björg Bjarnadóttir, formaður
Félags leikskólakennara. Unnur
Stefánsdóttir, leikskólastjóri Heilsu-
leikskólans Urðarhóls, fékk þau svör
hjá Kópavogsbæ að hún mætti ekki
auglýsa eftir íþróttakennara til að
annast íþróttakennsluna í leikskól-
anum. Þar hefur verið starfandi
íþróttakennari í sjö ár, sem hefur
verið á lægri launum en leikskóla-
kennararnir, en hann er að hætta.
1 ákvæði í lögum um leikskóla
segir að öll störf séu ætluð leikskóla-
kennurum. Leyfilegt er þó að ráða
aðra fáist ekki leikskólakennarar til
starfa. Að sögn Bjargar er verið að
endurskoða lögin. „Þá verður opnað
á möguleika á að ráða aðra en leik-
skólakennara. Þetta er alveg handan
við hornið. Lögin eru frá 1994 og
það er margt sem þarf að uppfæra í
takt við þróun og tíðaranda. Það er
farið að flokka starfið meira eins og
Unnur gerir.“
f stað þess að auglýsa eftir íþrótta-
kennara hefur Unnur nú auglýst
eftir fagstjóra í íþróttum til annast
íþróttakennsluna í Heilsuleikskól-
anum Urðarhóli þar sem er sér-
stakur íþróttasalur. í auglýsingunni
segir að leikskóla- eða íþróttakenn-
aramenntun sé skilyrði og reynsla
mikilvæg.
Anton Bjarnason, lektor I íþrótta-
fræðum við Kennaraháskóla f slands,
segir að leikskólakennarar hafi ekki
nægilega færni að loknu námi til að
geta sinnt vel þjálfun barna. „Nem-
endur fá aðeins samtals 8 kennslu-
stundir á 3 árum í markvissri líkam-
legri þjálfun barna á leikskólaaldri.
Þessar kennslustundir þurfa að vera
miklu fleiri. 1 Noregi geta leikskóla-
kennaranemar valið sér slíka deild
og eru þá í henni i hálfan vetur.“
Samkvæmt rannsóknum nem-
enda Antons er hreyfiþroski
barnanna í Heilsuleikskólanum
Urðarhóli, sem notið hafa ken-
nsiu íþróttakennara, mun meiri en
barna í öðrum leikskólum. Þau iðka
einnig frekar íþróttir eftir að þau
hætta í leikskóla en börn sem hafa
verið í öðrum leikskólum. „Það
kom einnig í ljós að á öðru og þriðja
ári í grunnskóla fóru þessi börn að
Endurskoðuð
lög handan víð
hornið
Björg Bjarnadóttir,
formaður Félags
leikskólakennara
Kennslustund-
irnarþurfaað
vera miklu fleiri
Anton Bjarnason,
lektor í íþróttafræðum
stinga hin af í festri og stærðfræði,“
bendir Anton á.
f skýrslu faghóps um eflingu lýð-
heilsu á fslandi kemur fram að breyt-
ingar á holdafari barna og unglinga
séu áhyggjuefni. Hlutfall 9 ára barna
á höfuðborgarsvæðinu, sem grein-
ast yfir kjörþyngd, var 23 prósent á
árunum 2004 til 2005. „Mér sýnist
börnin byrja að fitna í öðrum og
þriðja bekk þegar þau fara að verða
sjálfbjarga heima og skammta sér
sjálf af því sem þau finna í eldhús-
skápunum. Þau fara ekki í útileiki
af sjálfsdáðum og sitja stundum allt
upp í 10 klukkustundir á dag.“
Handteknir fyrir vopnað rán:
Sá yngsti er á sextánda ári
Þrír ungir menn voru hand-
teknir á aðfaranótt sunnudags
vegna gruns um rán í 10-11 verslun
í Hafnarfirði sömu nótt. Menn-
irnir, sem eru fæddir 1981,1988 og
1991, voru allir úrskurðaðir í gæslu-
varðhald á sunnudaginn, fram
á föstudag. Þeir hafa allir áður
komið við sögu lögreglunnar.
Tveimur mannanna er gefið að
sök að hafa rænt búðina grímu-
klæddir. Á annar þeirra að hafa
ógnað starfsmanni verslunarinnar
með hnífi á meðan hinn tæmdi
sjóðsvél og tóbaksbirgðir búðar-
innar. Eftir það hlupu þeir út í bif-
reið þar sem þriðji maðurinn beið
eftir þeim. Vitni sem sáu bifreið-
ina aka á brott gátu gefið lýsingu
á henni við lögregluna í Hafnar- mannanna aðeins tíu mínútum
firðinum, sem leiddi til handtöku eftir að ránið var framið.