blaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 9
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 9
Eistland:
Gæsla hert til
muna í Tallin
Mikil öryggisgæsla var í Tall-
inn, höfuðborg Eistlands, þegar
loka siðari heimsstyrjaldarinnar
var minnst. Lögregla óttaðist
að óeirðir myndu blossa upp í
sérstakri minningarathöfn sem
fram fór hjá minnismerkinu um
fallna sovéska hermenn sem
mikill styr hefur staðið um að
undanförnu, eftir að eistnesk
stjórnvöld ákváðu að færa það
úr miðborg höfuðborgarinnar
yfir í nálægan herkirkjugarð.
Lögregla hefur einnig búið sig
undir átök í dag þegar Rússar
minnast uppgjafar nasista.
Fjölmenn mótmælaganga
var farin í Vilníus, höfuð-
borg Litháens, þar sem lýst
var yfir stuðningi við Eista
í deilunni við Rússa.
Suður-Afríka:
Lét myrða
kornabarnið
Dómstóll í Suður-Afriku
hefur sakfellt hina 25 ára
gömlu Dinu Rodrigues fyrir
að hafa ráðið leigumorðingja
til að drepa sex mánaða gamla
dóttur þáverandi kærasta síns
árið 2005. Dómarinn sakfelldi
jafnframt fjóra menn fyrir að
hafa framið morðið á stúlkunni,
en Rodrigues hafði lofað þeim
100 þúsund krónum fyrir að
ræna stúlkunni og myrða. Lík
stúlkunnar fannst í bleikum
fatnaði og með stungusár á hálsi
í skolpræsi í höfuðborginni
Pretoríu síðla sumars 2005.
Málið hefur vakið mikla
athygli í Suður-Afríku og fögn-
uðu sumir ákaft í troðfullum
réttarsalnum í Höfðaborg þegar
dómarinn sakfelldi Rodrigu-
es. Búist er við að Rodrigues
verði dæmd í lífstíðarfangelsi,
en dómurinn verður kveð-
inn upp í næsta mánuði.
■MLik v ''JÍSHmik. \ á
Portúgal:
Áköf leit aö
litlu stúlkunni
Enn hefur ekkert spurst til 3
ára breskrar stúlku sem rænt
var í Portúgal fyrir helgi. Áköf
leit hefur staðið að stúlkunni
Madeleine McCann og foreldrar
hennar hafa ítrekað biðlað til
mannræningjans um að láta hana
lausa. Stúlkan hvarf sporlaust
úr hótelíbúð þar sem hún svaf
ásamt tveimur yngri systkinum.
Foreldrar Madeleine eru vel
efnaðir og hafa heitið hundrað
þúsund pundum eða sem nemur
tæpum þrettán milljónum króna,
í verðlaun fyrir upplýsingar
um afdrif dóttur sinnar.
Hlutfall og staða kynja á framboðslistum:
Framsókn og VG hafa vinninginn
Framsóknarflokkurinn og Vinstri
hreyfingin - grænt framboð standa
best að vígi þegar hlutföll kynjanna á
framboðslistum og leiðtogasæti í ein-
stökum kjördæmum eru borin saman.
Konur skipa efsta sætið hjá Fram-
sóknarflokknum í þremur kjör-
dæmum af sex, í Reykjavíkurkjördæmi
suður, Suðvesturkjördæmi og Norð-
austurkjördæmi. Þá er hlutfall karla
og kvenna á framboðslistum hnífjafnt
hjá Framsóknarflokknum, 63 konur
og 63 karlar.
VG er ekki langt undan. Konur leiða
lista VG í tveimur kjördæmum af sex,
í Reykjavíkurkjördæmi norður og
Reykjavíkurkjördæmi suður. Þá skipa
66 konur sæti á framboðslistum VG
og 60 karlar. Frjálslyndi flokkurinn
kemur lakast út úr þessum saman-
burði. Kona leiðir lista framboðslista
Frjálslynda flokksins í einu kjördæmi,
Suðvesturkjördæmi, en karlar eru í
öndvegi í fimm kjördæmum. Þá eru 47
konur á framboðslistum Frjálslynda
flokksins um landið allt en 79 karlar.
Islandshreyfingin skipar konum í
öndvegi í þremur kjördæmum af sex.
Þá eru 72 karlar á framboðslistum
flokksins á landinu en 54 konur.
Konur leiða lista í einu kjördæmi af
sex hjá bæði Sjálfstæðisflokki og Sam-
fylkingu og er jafnræði meðal kynj-
anna á framboðslistum flokkanna.
Alls eru 756 einstaklingar á fram-
boðslistum stjórnmálahreyfinganna
sex um landið allt. Þar af eru konur
rétt um 47% eða 357 en karlarnir 53%
eða 399.
Karlar Konur 1. sæti
| | Framsóknarflokkur
63 63 3 konur - 3 karlar
Vinstri hreyfingin
W 60 66 2 konur - 4 karlar
Samfylkingin \w 62 64 1 kona - 5 karlar
Sjálfstæðisflokkur 63 63 1 kona - 5 karlar
U fslandshreyfingin 72 54 3 konur - 3 karlar
Frjálslyndi flokkurinn
vjááy 79 47 1 kona - 5 karlar j
Arnason hf
Ármúli 8, 1 08 Reykjavík, 595 0500 - Baldursnes 6, 603 Akureyri, 595 0590 - www.egillarnason.is