blaðið - 09.05.2007, Qupperneq 15
blaðið
MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 15
Nú er veður til að skapa
Menning og listir eru eitt af
metnaðarmálum okkar samfylk-
ingarmanna á næsta kjörtímabili.
Þrennt þarf sérstaklega að muna
þegar saman koma stjórnmál og
menning:
í. Menning er samofin manninum
og hinu mannlega frá upphafi vega.
Menning hefur gildi í sjálfu sér, sem
aðferð til að tjá eða túlka tilveruna
og veröldina með einstökum hætti,
sem sameiningarafl þjóðar eða
annarrar menningarheildar, og
til lífsfyllingar hverjum og einum.
Menningararfur mannkyns og
hverrar þjóðar er dýrmætur - en
hann á líka að vera í stöðugri endur-
nýjun, meðal annars með tengslum
fjölbreytilegra menningarstrauma,
og miklu skiptir að setja í öndvegi
frumkvæði og sköpun.
2. Jafnaðarmenn telja mikilvægt
að skapa öllum tækifæri til þátt-
töku í menningarstarfi, bæði sem
neytendum og gerendum. Við
leggjum sérstaka áherslu á menn-
ingar- og liststarf barna og ung-
linga. Flokkur okkar stendur vörð
um opinberar menningarstofnanir
með veigamikið hlutverk en telur
það ekki síður hlutverk almanna-
valdsins að glæða frumkvæði at-
vinnumanna og áhugamanna. Á
sviði lista og menningar er það
hlutverk stjórnmálanna að leggja
vegi og byggja brýr, ekki að mið-
stýra umferðinni.
3. Lengi eimdi eftir af þeirri speki
frá tímum tyrkjaráns og móðuharð-
inda að bókvitið yrði ekki látið í aska.
Enn er sú afstaða útbreidd að ekkert
sé atvinna nema framleiðslan mæl-
ist í tonnum af mat eða málmi. Samt
aflar menningin heilla 5 prósenta af
landsframleiðslunni! Samfylkingin
lítur á menningar- og listastarfsemi
sem atvinnuveg, sem er eðlilegt að
stjórnvöld umgangist og aðstoði á
svipaðan hátt og aðra atvinnuvegi
- að breyttu breytanda. Við köllum
þetta sköpunargreinarnar í atvinnu-
lífinu, og teljum að eitt af brýnum
verkefnum í stjórnmálum næstu
ára sé að treysta þar undirstöðurnar,
rekstrargrundvöllinn fræga: Bæði
undirstöður hins hefðbundna vett-
vangs atvinnumanna í myndlist,
tónlist, bókmenntum, leiklist, kvik-
myndun, listdansi, hönnun, bygging-
arlist o.s.frv., og þær starfsgreinar
sem upp hafa sprottið á síðari árum
og byggjast á samtvinnun listrænnar
tjáningar og nýrrar tækni.
Frjóa ísland!
Menningarstefna Samfylking-
arinnar er nú komin á prent og í
PDF á netinu (xs.is) undir heitinu
Frjóa Island. Fyrsta ætlunarverk
okkar er að endurskoða stjórnsýslu
menningar á íslandi frá grunni. Við
beinum sjónum okkar sérstaklega
að flóknu sjóða- og úthlutunarkerfi
ríkisins og viljum einfalda það
verulega, með sjóðaskipan vísinda
og rannsókna sem fyrirmynd. Það
er stjórnmálamanna að taka menn-
ingarpólitískar ákvarðanir - leggja
vegina, byggja brýrnar - en önnur
stjórnun og fjárúthlutun á að fara
fram á faglegum grunni. Við ætlum
líka skoða menningarfyrirtækin í
ljósi þeirra tillagna sem við höfum
uppi um aðbúnað sprotafyrirtækj-
anna. Margt er líkt með skyldum.
Við viljum auka opinberar fjár-
veitingar til lista og menningar.
Það þarf að gera hinn nýja Bók-
menntasjóð að burðugri menning-
arstofnun, efla Tónlistarsjóð og
setja meira fé í nýsköpun í tónlist-
inni, gera Safnasjóði unnt að taka
þátt í metnaðarfullu safnastarfi
um allt land - og við heitum því að
efna loforð núverandi stjórnar um
hærri framlög til, kvikmyndasjóð-
anna á næsta kjörtímabili. Þá er
nauðsynlegt að efla launasjóðina
eftir tíu ára stöðnun.
Menning
ersamofin
manninum
Umrœðan
Mörður Árnason
Þorum að skapa
Við viljum líka greiða fyrir fram-
lögum fyrirtækja og einstaklinga
til menningar og lista með því að
auka skattívilnanir sem nú eru
settar miklar skorður. Ein af hug-
myndum okkar er að hagkvæm-
astar ívilnanir fáist þegar lagt er í
sjóði eða stofnanir þar sem faglegir
stjórnendur taka ákvarðanir um
það hvert féð rennur.
Síðast en ekki síst blasa við þrjú
stórverkefni í byggingarmálum
eftir langvinna setu íhaldsins í
menntamálaráðuneytinu. Það
þarf að koma í veg fyrir að Þjóð-
leikhúsið hrynji. Við verðum að
byggja yfir Náttúruminjasafnið.
Og það er brýnt fyrir listir og
menningu á lslandi að Listahá-
skólinn komist allur undir þak í
frjóu umhverfi miðbæjarins. Hér
þarf að taka á.
Margt fleira merkilegt sprettur
Þáttaka allra „Jafnað-
armenn telja mikilvægt
að skapa öllum tækifæri
til þátttöku í menning-
arstarfi, bæði sem neyt-
endum og gerendum. “
í Frjóa íslandi. Allra nauðsynleg-
asta verkefnið í menningarmálum
í þessari viku er þó að koma til for-
ystu fólki með nýja og ferska sýn í
menningarmálum. Það tekst ef við
leggjumst öll á eitt, sýnum frum-
kvæði, þorum að skapa.
Höfundur er frambjóðandi fyrir
Samfylkinguna i Reykjavík
,'ilÍK
Nám samhliða starfi
- styrktu stöðu þína á vinnumarkaði
Kynningarfundur verður haldinn
í húsi Endurmenntunar 9. maí kl. 16:30
AV
ENDURMENNTUN V
HÁSKÓLA ÍSLANDS
Rekstrar- og viðskiptanám - 3 misseri, 27 ein.
Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti - 3 misseri, 27 ein.
Mannauðsstjómun - 3 misseri, 18 ein.
Þjónustustjómun - 2 misseri, 18 ein. í samstarfi við viðskipta og hagfræðideild HÍ
Verkefnastjórnun, leiðtogaþjálfun - 2 misseri, 12 ein.
Gæðastjórnun - 2 misseri, 12 ein. í samstarfi við verkfræðideild Hí
Nýjar og spennandi námsbrautir í boði - kjörið tækifæri fyrir þá
sem vilja ná forskoti á vinnumarkaði.
Nánari upplýsingar og skráning: sími 525 4444 endurmenntun.is