blaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 16
HEYRST HEFUR
SAMFYLKINGIN hefur nú gefið út
áróðurslag líkt og Framsókn, en
seint verður sagt að um
stórkostlega tónsmíð
sé að ræða. Textanum
er bögglað saman með
vafasömum fullyrð-
ingum um ágæti
flokksinsogvirð-
ist brjóta flestar
reglur um brag-
arhátt og rím. k
Aðeins ein
setning virkar
sniðug. „Sæta
stelpan á ballinu vildi ekki Geir,
þvi skyldum við vilja hann frekar
...“. Ekki var heldur haft fyrir því að
semja nýtt lag heldur var slagarinn
Mrs. Robinson með Simon &
Garfunkel notaður. Gárungarnir
segja það Samfylkingunni líkt, að
nota eitthvað sem áður hefur verið
vinsælt og virkað, en breyta text-
anum sér í hag...
KOSNINGAHARKAN eykst nú
með hverjum deginum. Stjórnar-
flokkarnir, sem ávallt hafa ítrekað
vinskap sín á milli, bauna
nú hvor á annan af
miklum móð. Á bloggi
sínulýsirBjorn
Ingi til dæmis
eftir Áma
Johnsen í
auglýsingu
Sjálfstæð-
isflokksins á baksíðu Blaðsins
í gær og spyr hvort hann hafi
forfallast, en þar voru allir efstu
frambjóðendur flokksins í því
kjördæmi. Hvort fjarvera Árna í
kosningabaráttunni verður til góðs
eður ei kemur í ljós þann 12. maí.
Spurning hvort íhaldið sé að reyna
að forðast tæknileg mistök...?
SÉRLUNÐAÐI skáksnillingurinn
Bobby Fischer er hundóánægður
með nýja heimildarmynd um sig
sem er í bígerð. Myndin á að heita
„Vinur minn Bobby“ og kemur Sæ-
mundur Pálsson að gerð hennar,
en hann er einnig þekktur sem
Sæmi rokk og besti vinur Bobbys.
Hann segir vikið frá handriti
og uppbyggingu myndarinnar
miðað við það sem
um var rætt á
sínum tíma og
að brögð séu í
tafli. Já, Bobby
lætur sko
engan máta
sig svo
glatt...
Árleg Eurovisiongleði Páls Óskars á NASA:
Stærsta
partí ársins!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Páll Óskar Hjálmtýsson er forfallinn
Eurovisionaðdáandi. Hann heldur
stærsta Eurovisionpartí ársins á
NASA við Austurvöll á laugardag-
inn þar sem hann mun frumflytja
nýtt lag, Allt fyrir ástina, sem kemur
út á plötu í september. Auk þess
koma fram nokkrar helstu Euro-
visionstjörnur Islands í gegnum tið-
ina. Þetta er fimmta árið í röð sem
Páll Óskar stendur fyrir þessum
viðburði.
„Það er alveg ótrúlegt hvað þetta
er vinsælt. Það er sama hvernig
Islandi hefur gengið í sjálfri keppn-
inni, alltaf er röð út að alþingis-
húsinu,“ segir Páll sem á ansi stórt
Eurovisionplötusafn.
„Það er öllu tjaldað til. Þetta partí
höfðar auðvitað fyrst og fremst til
nostalgíunnar hjá fólki og ég spila
bara bestu og flottustu lögin. Þetta
er eitthvað sem allir kannast við
og fólk syngur hástöfum með. Það
kemur jafnvel upp til mín og biður
t.d. um spænska lagið sem var í 5.
sæti 2002. Svo er það allt þar á milli,
frá Einu lagi enn til Hubba hulle
hulle hulle!“
Hápunkur kvöldsins er þegar
sjálfar Eurovisionstjörnur íslands
stíga á stokk.
„Þetta er svona til að auka á gla-
múrinn. Ég hef reynt að rótera
þessu frá ári til árs og þær eru ekki
af verri endanum nú frekar en áður.
Silvía Nótt, Selma Björns og Friðrik
Ómar, sem ég spái að fari út fyrir ís-
lands hönd í náinni framtíð. Hann
hefur verið nálægt því undanfarin
tvö ár og eitthvað segir mér að það
muni takast hjá honum, spurning
um herslumun. Þá munu Helga
Möller og Pálmi Gunnarsson mæta
með Gleðibankann, en án Eiríks
auðvitað. Það verður þó fyllt í hans
skarð, en hver það er er algert hern-
aðarleyndarmál. Einnig mæta aðrir
leynigestir á svæðið og taka lagið og
því um að gera að mæta.“
Páll Óskar segist styðja Eirtk en
baráttan sé hörð.
„Ég elska Eirík. Hann hefur rödd
frá náttúrunnar hendi, er óskaplega
viðkunnanlegur og laus við alla
stæla. Vandamálið er hins vegar að
af þessum 28 lögum sem keppa bara
á fimmtudaginn eru líka öll bestu
lögin. Aðeins tíu lög komast áfram
og því verða mörg fórnarlömb og
það kæmi mér ekkert á óvart ef Ei-
ríkur yrði eitt þeirra, því miður. En
hann hefur samt margt með sér. Evr-
„Þegar ég keppti voru 24
þjóðirað keppa. Núna eru
þær42. Keppninhefur
veríð í stöðugrí endumýjun
og nú er kominn tími á
breytingar."
ópa fílar rokk. Fyrir þremur árum
var ekkert rokklag í keppninni. Svo
komu Norsararnir í Wig Wam og ári
síðar vann skrímslarokkið frá Finn-
landi. Núna eru sex rokklög í keppn-
inni; iðnaðarrokk, glamúrrokk og
hart rokk. Austur-Evrópa fílar rokk,
kaupir það og spilar. Því eru mögu-
leikar Eiríks auðvitað fyrir hendi,
en þetta gæti verið strembið hjá
honum.“
Páll segir nauðsynlegt að breyta
fyrirkomulagi keppninnar.
„Tvímælalaust. Þegar ég keppti
BLOGGARINN...
Ekki er allt
sem sýnist
„Eftir að birtur var listi
yfir auglýsingakostnað
stjórnmálaflokkanna í
kosningabaráttunni hef-
ur mátt heyra á sjálfstæðismönnum
að ekki sé verið að eyða i einhvern
óþarfa auglýsingakostnað á þeim
þænum. En það er með þessa ráð-
deild eins og aðra sem á uppruna
sinn í Valhöll: Hún stenst ekki skoð-
un. í morgun barst inn á hvert heimili
í Kraganum dýrindis auglýsingarit
frá Sjálfstæðisflokknum í kjördæm-
inu. Ekki hefur hönnun þess, prentun
og dreifing verið ókeypis.
Þórunn Sveinbjarnardóttir
tsv.blog.is
Páll Óskar Mun
sjálfur troða upp
með nýtt lag.
voru 24 þjóðir að keppa. Núna eru
þær 42. Margar þeirra voru ekki
einu sinni til á landakortinu fyrir
10 árum. Keppnin hefur verið í stöð-
ugri endurnýjun og nú er kominn
tími á breytingar. Ég stakk upp á því
við Jörgen vin minn Mayerbeier sem
vinnur hjá EBU sem heldur keppn-
ina, að skipta keppninni í tvo hluta;
Austur- og Vestur-Evrópu. Efstu tíu
lögin úr hvorri keppni myndu síðan
keppa til úrslita í einni stórri djúsí
keppni. Hann tók ágætlega í þessa
hugmynd og hver veit nema úr
henni rætist,“ segir Páll sem langar
að fara aftur út fyrir íslands hönd.
„Ég fer þegar rétta lagið dettur í
hendurnar á mér. Ég er að vinna efni
núna sem kemur á plötu í september
og ef rétta lagið fæðist í þessum
upptökum mun ég geyma það fyrir
undankeppnina."
Páll segist eiga tvö uppáhaldslög í
keppninni íár.
„Já, Búlgaría með lagið Water
og svo úkraínska lagið með drag-
drottningunni Verka. Það eru tvær
dragdrottningar í keppninni, hin er
frá Danmörku. En þessi úkraínska
rúllar henni upp og smyr hana á
smörrebröd! Annars verða þessi lög
áreiðanlega spiluð á laugardaginn,
þau henta bæði vel fyrir fima fætur.“
Trúleysinginn ?
„SteingrímurJ. Sigfússon varíkynn-
ingarþætti Sjónvarpsins íkvöld sem
fjallaði um VG. Steingrímur ræddi
um atvinnumál og sagði eitthvað
á þessa leið: „Hver hefði trúað því
fyrir 15 árum að tölvuleikjafyrirtæki
væri eitt helsta útflutningsfyrirtækið,
hver hefði trúað því fyrir 20 árum
að stoðtækjaverkstæði Össurar
Kristinssonar væri orðið það sem
það er, hver hefði trúað því að
þjórverksmiðja á Árskógsströnd
væri..." og fleira var tínt til. Góð
spurning, Steingrímur: Hver hefði
trúað því? Sþrotafyrirtækin hafa vax-
ið ístjórnartíð Sjálfstæðisflokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur trúað því
að fólkinu sé best treystandi til að
efla atvinnulífið, en ekki stjórnmála-
flokkunum. Steingrímur
hefði örugglega ekki
trúað þessu, enda
hefur hann ekki lagt
áherslu á að skapa
þessum atvinnuvegum
skilyrði."
Eyþór Arnalds
ea.blog.is/blog/ea
Góð hugmynd?
„Yrði Persónuvernd alveg þrjáluð ef
búin yrði til heimasíða þar sem allir
Islendingar væru skráðir? Ekki þara
Islendingabók, heldur meira eins og
bækurnar Samtíð-
armenn (ef ég man
nafnið rétt). Stutt
ágrip aflífi fólks,
mynd af því, mennt-
un, starfsferill, fjöl-
skylda og helstu fjöl-
skyldutengsl. Þetta ....
væri eðalsíða fyrir fólk
eins og mig sem man andlit en illa
nöfn, fyrir atvinnurekendur íleit að
starfskröftum, fólk í makaleit og svo
mætti lengi telja.“
Vigdís Jóhannsdóttir
blogg.visir.is/vigdisjohannsdottir
16
MIÐVIKUDAGUR 9. MAI 2007
folk@bladid.net
blaðið
Er símaskráin fitandi?
FIT^NST
ÞER?
„Þvert á móti. Hægt er að nota hana sem
lóð og lyfta henni sér til grenningar."
Guðrún María Guðmundsdóttir,
ritstjóri símaskrárinnar
Ný símaskrá fyrir árið 2007 er unnin á mjög umhverfisvænan
hátt. Af því tilefni sagði Guðrún að hægt væri að borða hana,
þótt hún mæli ekki með því. Símaskráin vegur tæplega tvö
kíló og inniheldur um 1500 „gómsætar“ blaðsíður.
Félag SkrúSgarSyrkjumeistara
ThÍÍÍ j á JíwJ |- íG/aí
ij,i | • X -1|7/
Su doku
7 2 5 9
9 4 5 7 1 3
5 4
7 1 3 5
1 6 9 2
4 7
2 7 6
5 4 6
6 4 3 9
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1 -9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
7-16________________£> LaughmgStock Intemationai IncTdsst. by United Metíia, 2004
Ég var með stærri stafatöflu,
en þá þénaði ég ekki neitt.