blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 1

blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 1
Sú fallegasta *| Jóhanna Vala Jónsdóttir er feguröardrottning Islands þetta árið og segir það s hafa verið undarlega tilfinn I ingu að vakna daginn eftir keppnina. Capone frá Köben |L Andri Freyr Viðarsson, |l helmingur útvarpsþáttarins §.. Capone á Reykjavík FM 101,5, er að flytja til Kaup- mannahafnar og ætlar að p%- senda út þaöan í sumar. Stelpur í mótókross Mæðgurnar Teódóra Björk Heimis- dóttir og Aníta Hauksdóttir , stunda mótókross af mikium krafti. Þær hafa mm lagt mikla áherslu á að fá stelpur í greinina. SÉRBLAÐ » 17-24 ORÐLAUS» 98. tölublað 3. árgangur miðvikudagur 30. maí 2007 Ráðuneyti Björns hefur tvöfaldast Kostnaður vegna reksturs dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hefur meirá en tvöfaldast í tíð ríkisstjórnarsamstarfs Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samkvæmt rekstarreikningi ríkissjóðs árið 1995 var heildarkostnaðurinn 9,7 milljarðar á verðgildi dagsins í dag. Á fjárlögum í ár er sá kostnaður tæplega 21 milljarður króna. FRÉTTIR » 4 Bush krefst aðgerða í Súdan Bandaríkin ætla að herða refsiaðgerðir gegn Súdan og þrýsta á öryggisráð Sameinuðu þjóðanna (SÞ) að setja meiri þrýsting á Omar al-Bashir, forseta landsins, að binda enda á ofbeldið í Darfúr-héraði. Kínverjar og Rússar eru þó ekki tilbúnir að ganga jafnlangt og Bandarikjastjórn hefur lagt til. FRÉTTIR »12 Framhaldsskóli situr á hakanum Húsnæðismálum Menntaskólans við Sund er mjög ábótavant og þurfa nem- endur skólans að sætta sig við helmingi færri fermetra á hvern nemanda en viðmið frá menntamálaráðuneytinu gera ráð fyrir. Má Vilhjálmssyni, rektor skólans, finnst óþolandi að tímaáætlanir sem stjórnvöld hafa gert varðandi við- byggingu við skólann skuli ekki standast. FRÉTTIR » 8 Ríkisstjórnin ætlar að nýta frestunarákvæðið: Loka á Búlgara og Rúmena ■ Fá ekki sama rétt fyrr en 2009 ■ Kannski ekki fyrr en 2014 Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks ætlar að fresta þvi til ársins 2009 að Búlgarar og Rúmenar geti komið án takmark- ana til landsins og unnið eins og aðrir íbúar Evrópusambandsins og EES-svæðisins. „Við erum að nýta okkur þetta frestunarákvæði, en þeir hafa heim- ild til að koma hingað í gegnum þjónustusamninga og starfsmanna- leigur,“ segir Jóhanna Sigurðar- dóttir, ráðherra velferðarmála, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um frjálsan atvinnu- og bú- seturétt launafólks innan Evrópska efnahagssvæðisins (EES) sem rik- isstjórnin ætlar að leggja fram á sumarþinginu á fimmtudag. Þrjú ráðuneyti standa að frumvarpinu og mun það væntanlega verða lagt fram af Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur utanríkisráðherra. Jóhanna segir ríkisstjórnina geta framlengt frestinn enn lengur ef ástæða þykir til. „Við höfum svig- rúm til að fresta þessu til lengri tíma, eða til 2014. En við munum endurmeta stöðuna fyrir þann tíma og getum þá athugað hvort ástæða sé til þess að nýta frestinn enn frekar.“ Búlgaría og Rúmenía gengu í Evr- ópusambandið (ESB) um síðustu áramót. FRÉTTIR »10 Ferðalangur í Heiðmörk Bakpokaferðamenn sjást nú aftur á landinu eftir vetrarfríið. Þessi ungi maður gekk um Heiðmörk í gær. Þegar tölur Hagstofunnar eru skoðaðar má sjá að ríflega 333 þúsund gistinætur erlendra gesta á tjaldstæðum landsins voru skráðar í fyrra, nærri 25 þúsund fleiri en árinu á undan. Iftveiði I wvörur ffs '1% f- tilbúin í veiðiferðina Þú færð IG-veiðivörur í næstu sportvöruverslun Þjóðverjar reknir af sóibekkjunum Islendingar sem lagt hafa leið sína til sólarlanda kannast eflaust við það vandamál þegar Þjóðverjar hafa lagt undir sig alla sólbekkina fyrir allar aldir. Glyn Bowden, 55 ára breskum rútubílstjóra, fannst nóg komið og ákvað að grípa til aðgerða. Hópur breskra sólarunnenda á Viana Marina á (talíu hafði kvartað við Bowden undan atferli Þjóðverj- anna. „Látið mig um það,“ sagði rútubílstjórinn og morguninn eftir henti hann öllum handklæðunum út í sundlaugina. Ekki leysti það vanda- málið, þannig að hann endurtók leikinn daginn eftir. Þegar Þjóðverj- arnir höfðu lagt alla bekkina undir sig þriðja daginn í röð safnaði Bowden handklæðunum saman og kveikti í þeim. Hann var handtekinn fyrir að skemma eigur hótelsins. NEYTENDAVAKTIN Verð í sund Sundlaug Krónur Sundlaug Kópavogs 280 Sundlaug Egilsstaða 300 Sundlaugin Borgarnesi 310 Sundhöll isafjarðar 350 Sundlaugarnar i Reykjavik 350 Sundlaugin Akureyri 350 Verð fyrir staka ferð fyrir fullorðinn einstakling 1 Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA SALA % HB USD 61,99 -0,13 T GBP 122,99 -0,16 ▼ 55 DKK 11,24 0,22 ▲ • . JPY 0,51 -0,08 ▼ ■i EUR 83,70 0,20 ▲ GENGISVÍSITALA 113,37 0,04 ▲ I ÚRVALSVÍSITALA 8.174,67 0,5 ▲ VEÐRIÐ j DAG

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.