blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 2007 folk@bladid.net HVAÐ Fer ekki að koma að því að þú \ Þurfir aö faka fram skóna að nýju? |3 lý r „Nei, það er nú ekki timabært. Mér líður ekki vel með þetta gengi þeirra. Ég vona * það besta og að það verði breyting á til batnaðar og að KR fari að vinna leiki.“ Hörðnr Felixson, fyrrverandi leikmaður KR KR hefur ekki enn unnið leik það sem af er sumri. Það er því spurning hvort eldri leikmenn þurfi að fara að taka fram skóna að nýju í von um sigur. HEYRST HEFUR ÞAÐ er víst búið að senda Arnar Jensson aðstoðaryfirlögregluþjón og tvo aðra lögreglumenn úr landi. Þetta er liður í að mennta lögreglu- menn erlendis. Arnar er nú við störf hjá Europol. Hann á víst að safna, greina og miðla upplýsingum um skipulagðaglæpa- starfsemi. Það er greinilegt að Björa Bjaraason vill að lögreglumenn hér á landi séu vel að sér og ekki eftirbátar er- lendralögreglu- manna.... ÞAÐ virðist vera í uppsiglingu fjölmiðlastrið á milli Kastljóssins og íslands í dag. Steingrímur Sævarr ritar á bloggsíðu sína að hann sé ekki sáttur við vinnubrögð Kastljóssfólksins. Hann segir að Kastljósið hafi í hótunum við þá viðmælendur sem hyggjast ætla í viðtal hjá agfgHæk íslandi i dag. Það verður JM, Y spennandi að sjá hvernig þetta mun enda og hvort eitthvað er hæft í þessum ásökunum Steingríms... ÞAÐ gætir nú mikillar óánægju hjá vagnstjórum Strætóbs. með fyr- irhugaðar breytingar á leiðakerfi Strætó. Þeir telja að ferðirnar séu of tíðar og að álagið verði allt of mikið. Einnig benda þeir á að ekki sé verið að taka mið af þörfum far- þeganna. Þeirri spurningu hefur verið velt upp hvort stjórnarmenn Strætó taki einhvern tíma strætó miðað við þá óánægju sem hefur verið með nýtt leiðakerfi sem var tekið upp 2005 Jóhanna Vala er ungfrú ísland 2007: Jóhanna Vala Nýkrýnd ungfrú ísland er ánægð með lífið. I gott frí eftir erfiðar æfingar Sigrún María Einarsdóttir sigrun@bladid.net Jóhanna Vala Jónsdóttir er tví- tug Reykjavíkurmær. Hún var á föstudaginn valin ungfrú Island 2007. Jóhanna Vala hlaut einnig flest atkvæði sjónvarpsáhorfenda Skjás eins og hún var líka valin LCN-stúlkan. „Það var bent á mig og ég ákvað að slá til. Það er alltaf gaman að tak- ast á við ný og krefjandi verkefni. Ég tók fyrst þátt í Ungfrú Reykjavík og svo í framhaldi af þeirri keppni tók ég þátt í Ungfrú Island. Að taka þátt í svona keppni krefst gríðar- lega mikillar vinnu og það fer mik- ill tími í undirbúning, sérstaklega fyrir Ungfrú fsland-keppnina. Það voru stanslausar æfingar dagana fyrir keppni. Ég mætti á æfingu klukkan sjö á morgnana og var komin heim á miðnætti. Við stund- uðum miklar líkamsræktaræfingar en síðar tóku svo við æfingar í sviðsframkomu fyrir sjálft úrslita- kvöldið. Ég er heppin því eitt af aðal- áhugamálum mínum er líkamsrækt og því var ég mjög dugleg að mæta í ræktina fyrir keppnina. Ekki var mikill tími til þess að sinna öðrum áhugamálum þegar æfingarnar fyrir keppnina voru hvað mestar.“ Jóhanna segir að það hafi verið skrítin tilfinning að vera ungfrú ísland. „Það var undarleg tilfinn- ing að vakna á laugardags- morguninn eftir keppnina. Ég gerði mér ekki alveg grein fyrir þessu öllu fyrr en ég sá kórónuna á náttborðínu „Það var mjög undarleg tilfinning að vakna á laugardagsmorguninn eftir keppnina. Eg gerði mér ekki al- veg grein fyrir þessu öllu fyrr en ég sá kórónuna á náttborðinu. Þetta var ótrúlega skrítin tilfinning en hún var samt gríðarlega góð.“ Jóhanna Vala mun taka þátt í Miss World í haust. „Það er margt framundan því það er ýmislegt sem fylgir þessum titli. Ég mun taka þátt í Miss World í haust. Það er ekki komið á hreint hvar sú keppni verður haldin en þau mál fara að skýrast fljótlega. Það er svo stutt liðið frá keppninni að ég veit ekki alveg hvort það verða fleiri alþjóðlegar keppnir sem ég mun taka þátt í. En þetta mun allt koma í ljós síðar." Það verður nóg að gera hjá ný- krýndri ungfrú ísland í sumar „Ég er nýútskrifuð úr flugfreyju- skóla Icelandair og mun starfa þar í sumar sem flugfreyja. Ég er reyndar að fara til Púertó Ríkó á morgun í vikufrí, aðeins til að slaka á eftir það mikla álag sem fylgir því að taka þátt í svona keppni. Það veitir örugglega ekki af eftir þessa miklu vinnu sem er að baki. En strax og ég kem heim þá mun ég byrja að vinna. Þannig að það mun verða nóg að gera í sumar.“ Jóhanna Vala er komin með ákveðin markmið fyrir framtíðina. „Mig langar til að læra næringar- fræði og einnig að starfa sem einka- þjálfari samhliða því. Vonandi fæ ég í framtíðinni að vinna með börnum á sviði næringu og heilsu. BLOGGARINN... Ný stef na? „Ríkisstjórn Islands á enn eftirað ákveða hvaða stefnu verður fylgt í hvalveiðimálum og hvort haldið verður áfram að fórna meiri hagsmun- um fyrir minni með þvíað eltast við langreyðar eða ekki. Samt stendur nú yfir fundur Alþjóðahvalveiðiráðsins i Alaska. Baráttumenn gegn veiðunum beina nú helst spjótum að Japan. Alþjóðleg blöð fjalla nú meira en áður um hvalveiðikvóta Bandaríkjamanna, sem frumbyggjar við Alaska nýta. Ætli nýja ríkisstjórnin ákveði stefnuna áður en fund- inum lýkur? “ Pétur Gunnarsson. hux.blog.is Grætur Mörður? „Eins og fram hefur komið, tekur mismikinn tíma fyrirýmsa liðsmenn nýju stjórnarflokkanna að stilla komp- ásinn. Hatrammir andstæðingar starfa nú hlið við hlið og keppast nú við að draga úrýmsum fyrri ummæl- um sem valdið gætu titringi. Mörður Árnason er ekki einn þeirra. Mörður dattútaf þingi í kosningunum, er nú fyrsti varamaður Samfylkingarinnar í öðru Reykjavíkurkjördæmanna og grætur sinn hlut. Hann fjallar á síðu sinni um sex það besta við nýja rík- isstjórn og sex það versta. Og hvað er það versta að mati Marðar Árnasonar: Jú, Björn Bjarnason dómsmálaráðherra. Suma kompása er líklega ekki hægt að núllstilla.“ Björn Ingi Hrafnsson bingi.blog.is Sama uppgötvun? „Rúv.is sagði ígær, að deCode Ge- netics hafi fundið erfðabreytileika í töifræðilegu samhengi við brjósta- krabbamein. Guardian.com segirí gær, að Cancer Research ÍCam- bridge ÍEnglandi hafi fundið erfða- breytileika í tölfræðilegu samhengi við brjóstakrabbamein. Samkvæmt fjölmiðlunum virðast tvö gengi vís- indamanna hafa gert nákvæmlega sömu uppgötvunina á sama tíma. Líklegra ersamt að verið sé að tala um sama hlutinn frá tveimur sjónar- hornum. Nature.com fjallar um þetta í gær og telur Cancer Research hafa verið að verki. Þarerþó nefnt, að einn þátt- ur málsins hafi verið unninn á Islandi." Jónas Kristjánsson jonas.is/ Su doku 5 7 8 1 2 5 3 3 2 6 6 3 9 5 9 2 6 3 4 2 5 6 9 7 5 1 2 3 1 6 9 2 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. HERMAN eftirJim Unger Slepptu elskan mín, þá gefur mamma þér bein að naga. 7-31 O LaughingStock Intamational IncVdist. by United Media. 2004

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.