blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 17

blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 17
Afmælisbörn dagsins BENNY GOODMAN JAZZISTI, 1909 IRVING G.THALBERG KVIKMYNDAFRAMLEIÐANDI, 1899 HOWARD HAWKS LEIKSTJÓRI, 1896 blaöiö Að lifa er eins og að elska, öll skynsemi mælir gegn því en allar heilbrigðar tilfinninqar eru með því. MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 25 kolbrun@bladid.net Uppgjörið við Leni Bók um náttúruperlu Mál og menning hefur gefið út bókina Hernaðurinn gegn land- ínu - Pjórsár- ver - hjarta landsins, eftir Guð- mund Pál Ólafsson. Bókin fjallar um stríð sem staðið j hefur í hálfa öld, j að mestu fjarri kastljósi fjölmiðla. Baráttan hefur geisað um nátt- úruperluna Þjórsárver og þar hafa tekist á heimamenn og ráðamenn þjóðarinnar, náttúru- unnendur og virkjanasinnar: and- stæðar hugmyndir um náttúru íslands og hlutverk mannsins í henni. Höfundur lýsir (greinar- góðu máli og með hjálp ægifag- urra mynda hvað í húfi er. Duglegur Einar Áskell Bittu slaufur, Einar Áskell eftir Gunillu Bergström er komin út að nýju í sígildri þýðingu Sigrúnar Mál og menning gefur út. Einar Áskell er búinn að læra að binda slaufur. Það finnst honum gaman. Pabba finnst það líka gaman. Núna þarf hann ekki lengur að hnýta skóreimarnar fyrir Einar Áskel. Einar Áskell er duglegur að binda - rosalega duglegur! En er hægt að vera of duglegur að binda slaufur? Bækurnar um Einar Áskel hafa verið í uppáhaldi hjá íslenskum bókaormum og foreldrum þeirra um árabil, eða síðan fyrsta bókin um hann kom út í íslenskri þýðingu Sigrúnar Árna- dóttur árið 1980. Síðan hafa komið út 22 bækur um Einar Áskel og vini hans í þýðingu Sig- r.únar, en hún fékk Barnabóka- verölaun fræðsluráðs Reykja- víkur vorið 1991 meðal annars fyrir þýðinaar sínar á bókunum um Einar Áskel. rægasti kvenleikstjóri heims, Leni Riefenstahl, var 43 ára þegar heims- styrjöldinni seinni lauk og vinur hennar Hitler framdi sjálfsmorð. Leni lifði til ár- ins 2003 og varð 101 árs. Öll þessi ár hélt hún því fram að hún hefði ekk- ert vitað af óhæfuverkum nasista, hún hefði verið ópólitískur listamað- ur. Leni er nú enn einu sinni komin fram í sviðsljósið en bók um hana Leni: The Life and Work of Leni Riefenstahl eftir Steven Bach er ný- komin út. Sömuleiðis hefur þýsk ævisaga Leni eftir Jurgen Trimborn verið þýdd á ensku. Bækurnar þykja gefa glögga mynd af sjálfhverfri en hæfileikamikilli konu sem lifði fyr- ir list sína og lét sig fólk litlu varða nema það gæti nýst henni á lista- brautinni. Leni er þekktust fyrir tvær kvik- myndir sem hún gerði fyrir Adolf Hitler, Sigur viljans og Olympia sem vörpuðu miklum ljóma á Hitler og nasismann. Leni, sem þegar hafði áunnið sér nafn sem leikkona og leikstjóri, hitti Hitler árið 1932 eft- ir að hafa hrifist af bók hans Mein Kampf sem hún sagði „dásamlega". Hún skrifaði Hitler og fékk einka- fund með honum. Þau urðu vinir og hann heimsótti hana á heimili hennar og bauð henni í heimsókn- ir. Slúðrað var um ástarsamband þeirra á milli. Þegar stríðið skall á urðu fundir þeirra ekki tíðir vegna anna Hitlers og þau hittust i síðasta sinn í marsmánuði 1944. Áróðursmyndir fyrir Hitler Leni gerði Sigur viljans um flokksþing nasista í Nurnberg árið 1934. Hún sagði að myndin væri ekki áróður heídur heimildarmynd. Enginn vafi er þó á því að myndin varpaði dýrðarljóma á Hitler og var óður til nasismans. Myndin er talin ein áhrifaríkasta áróðursmynd sem nokkurn tímann hefur verið gerð. Bandarískur maður, sem var barn í Þýskalandi árið 1934, minnist þess þegar myndin var sýnd í skólanum sem hann gekk í. Hann var einn af þremur gyðingum í hópi 700 skóla- barna. Eftir sýninguna gengu nem- endur í skrokk á gyðingabörnunum meðan kennarar horfðu ánægðir á. Árið 1936 gerði Leni mynd um Ólympíuleikana í Berlín og notaði þar nýja tækni við kvikmyndagerð. Myndin þótti mikið afrek en var eins og Sigur viljans hylling til Hitl- ers og nasismans. Ári seinna sagði Leni bandarískum blaðamanni að Hitler væri mesta mikilmenni sögunnar og að hann hefði engan galla. Á stríðsárunum ferðaðist Leni til Póllands með þýskum hermönnum og varð vitni að því þegar þýskir hermenn drápu 30 gyðinga í pólska bænum Konskie. Hún neitaði seinna að hún hefði verið viðstödd en þýskur hermaður tók ljósmynd af henni meðan á drápunum stóð og þar er Leni greinilega í uppnámi vegna þess sem hún sér. Ári seinna þegar Leni vildi fá sígauna sem au- kaleikara í mynd sem hún var að gera valdi hún sjálf rúmlega tutt- ugu manns úr þýskum þrælkunar- búðum, þar á meðal voru 15 börn, það yngsta 13 mánaða gamalt. Eftir vinnu við myndina voru sígaunarn- ir sendir aftur í búðirnar og örlög flestra þeirra urðu að deyja í Au- schwitz. Leni hélt því hins vegar fram að hún hefði hitt flestalla sí- gaunana eftir stríð. Hundrað ára lífsorka Leni gekk í hjónaband í fyrsta sinn 42 ára gömul í marsmánuði 1944 og í sama mánuði hitti hún Hitler í síðasta sinn. Hann var þá þjáður af parkinsonsveiki og hún þekkti hann ekki fyrir sama mann. Hitler sýndi henni og eiginmanni hennar engan áhuga heldur flutti klukkutíma einræðu. Eftir stríð var hún leidd fyrir dómstól vegna tengsla sinna við nasista en fékk ekki fangelsisdóm. í Þýskalandi var óhugsandi að taka verk hennar til sýninga en þau voru sýnd í erlendum háskólum og Leni huggaði sig við aðdáendabréfin sem henni bárust frá útlöndum. Hjónaband Leni endaði með skilnaði. Hún var sextíu og fimm ára gömul þegar hún fann loks lífs- förunaut, mann sem var tuttugu og fimm ára, fjörutíu árum yngri en hún og hann var við hlið hennar allt þar til hún lést. Hún ferðaðist til Súdans og tók frægar myndir af Nuba-þjóðflokknum og rúmlega sjötug gerðist hún kafari og tók sjávarlífsmyndir sem vöktu mikla athygli. Á hundrað ára afmæli sínu sendi hún frá sér kvikmynd um dýralíf neðansjávar. Hún lést í svefni nokkrum vikum eftir 101 árs afmæli sitt. Madonna, Jodie Foster og Sharon Stone hafa allar lýst yfir áhuga á að fara með hlutverk henn- ar í kvikmynd. Leni sagði nokkrum árum fyrir dauða sinn að hún hefði engan áhuga á að Hollywood gerði mynd um ævi hennar. „Þeir gætu búið til lygasögur eins og þær að ég hefði átt í ástarsambandi við Hitler eða gert mig að brjálaðri nasistatík. Ég get ekki leyft þeim að dreifa lyga- sögum um mig,“ sagði hún. Leni neitaði alla tíð að horfast í augu við fortíð sína í ríki Hitlers en nýjar ævisögur um líf þessarar merkilegu konu sýna að þar var á ferð listamaður sem bjó yfir gríð- arlegum metnaði og hæfileikum og lifði fyrir list sína en lét sér um leið standa á sama um mannúð og manneskjur. ÞJÓRSÁRVER menningarmolinn Marlowe drepinn Á þessum degi árið 1593 var leik- ritaskáldið og ljóðskáldið Christ- opher Marlowe drepinn vegna rifr- ildis um reikning. Marlowe var 29 ára þegar hann lést. Marlowe var afburðavel gefinn og byrjaði að skrifa leikrit þegar hann var í skóla og er höfundur sex leikrita. Margir telja að Marlowe hafi verið njósnari í þjónustu EHsabetar 1. Ýmislegt þykir dularfullt við dauða hans og alla tíð hafa verið sögusagnir um að hann hafi verið myrtur. I maí- mánuði 1593 var fyrrum skólafélagi Marlowes handtekinn og sakaður um landráð. Hann sagði yfirvöld- um að skjöl, sem fundust í fórum hans og þóttu bera voft um villu- trú væru í eigu Marlowes. Marlo- we var handtekinn en látinn laus gegn tryggingu. Marlowe var við drykkju þegar hann lenti í áflog- um vegna deilna um hver skyldi borga reikninginn og var stunginn til bana. Margar bækur hafa verið skrifaðar um Marlowe og dauða hans. Nokkrir fræðimenn hafa haldið fram þeirri ævintýralegu kenningu að Marlowe hafi sviðsett eigin dauða og síðan haldið áfram að skrifa leikrit undir nafninu William Shakespeare. Christopher Marlowe Var hann myrtur, drepinn í rifrildi eða dó hann alls ekki7 GARÐHEÍMAR Félag SkrúSgarSyrkjumeistara

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.