blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 29

blaðið - 30.05.2007, Blaðsíða 29
blaðiö MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 37 Knightley í hlut- verk prinsessu Nú stendur til að gera kvikmynd um líf Dfönu prinsessu og hefur leikkonan Keira Knightley verið orðuð við hlutverkið, en Díana lést í bílslysi í París fyrir tíu árum aðeins 36 ára gömul. Myndin verður byggð á bókinni Diana and the Paparazzi og er slegist um kvikmyndaréttinn sem hefur gengið kaupum og sölum á kvikmyndahátíðinni i Cannes undanfarið. Margir líta til velgengni myndarinnar The Queen sem gerð var á síðasta ári með Helen Mirren í hlutverki Elísabetar Englandsdrottnlngar og telja að mynd um Díönu prinsessu verði enn vinsælli. Útvarpsþátturinn Capone sendir út frá Danmörku í sumar: í beinni frá Norðurbrú n\t^f*Kv&k's‘v‘r **$£*#? aö veta Andri segist hafa fundið ibúð í hjarta Norðurbrúar og getur því fylgst með danska bæjarbragnum í beinni útsend- ingu. „Ég verð maðurinn á stöðinni sem er á staðnum á meginlandinu og sendir út þaðan,“ segir hann. „Ég ætla þó aðallega að geta notið sumarsins þar sem er sum- ar og sól. Svo er náttúrlega allt vitlaust hjá okkar mönnum í Kristjaníu, maður verð- ur að fylgjast með þessu líka.“ Margir spyrja sig hvort Andri sé að flytja til að geta sofið lengur á morgnana. Útvarpsþátturinn Capone hefst klukkan sjö á morgnana á Islandi en Andri þarf 1 MTW* i%i 105 milljarðar í vegí tmkt* tu+rx"* fetoMWfiMW**** * Frá 1. mars er Blaðiö borið út á fleiri heimili en nokkuð annað dagblað á islandi ekki að rífa sig upp fyrr en an níu i Danmörku. „Þetta hefur lúmskt með það að gera, nú getur maður farið að lifa eins og maður.“ Andri flytur út sunnudaginn ío. júní. „Ef fólk heyrir ekki í mér í útvarpinu daginn eftir getur það reiknað með því að eitthvað hafi aðeins farið úrskeiðis,“ segir Andri. „Þetta er tæknilega mögulegt og sam- kvæmt öllum útreikningum ætti þetta að ganga upp.“ atli@bladid.net „Ég er kominn með andskotans nóg af þessu helvíti,“ segir Andri Freyr Viðars- son, annar helmingur útvarpsþáttarins Capone á Reykjavík FM 101,5, aðspurður hvers vegna hann ætli að flýja land í sum- ar. „Ég er búinn að fá nóg af þvi að fara á barinn og fólk vill ekki sjá neitt annað en fulla gæjann úr Kastljósinu." Andri er á leiðinni til Danmerkur þar sem hann ætlar að búa í sumar og senda út sitt framlag í útvarpsþættinum Capone. „Þetta er svo sneddi maður, ég bara vakna, rölti inn í eldhús og kveiki á míkrófónin- um. Þá heyri ég í Búa i heddfóninum.“ Enginn eins góður og Lennon Bítillinn Paul McCartney hefur lýst því yfir að enginn þeirra tónlist- armanna sem hann hefur starfað með toppi samstarfið sem hann átti við John Lennon. Vill hann meina að hann hafi orðið of góðu vanur í samstarf sínu með Lennon heitnum og því hafi hann mótað með sér miklar kröfur um samstarf við aðra. „Ég hef unnið mikið með öðrum síðan ég vann með Lennon og verð að segja, þrátt fyrir að mér finnist það leiðinlegt, að það hafi verið ákveðin vonbrigði. Það var einfald- lega svo gott að vinna með Lennon - við byrjuðum svo ungir og vorum farnir að lesa hugsanir hvor ann- ars,“ sagði þessi 64 ára söngvari í samtali við BBC music.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.