blaðið - 30.05.2007, Side 4

blaðið - 30.05.2007, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 blaðiö INNLENT HÉRAÐSDÓMUR Sigldi óhaffærum bát Héraðsdómur Vestfjarða dæmdi mann í 20 þúsund króna sekt fyrir að sigla smábáti sem ekki hafði haffærisskír- teini. Landhelgisgæslan stöðvaði bátinn í desembervið veiðarfyrir norðan land og tilkynnti lögreglu sem hafði af- skipti af manninum við komu hans til hafnar í Bolungarvík. SELTJARNARNES A slysadeild eftir eldsvoða Kona var flutt á slysadeild eftir að eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi á Seltjarnarnesi í gærmorgun. Eldur kviknaði í feiti í potti á eldavél í íbúðinni en tvennt var í íbúðinni. Konan fékk reykeitrun. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en íbúðin ertalin mikiðskemmd. IÐNAÐARRÁÐUNEYTIÐ Einar Karl aðstoðar Ossur Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra hefur ráðið Einar Karl Haraldsson sem aðstoðarmann sinn. Einar Karl var varaþingmaður Samfylkingarinnar á síðasta kjörtímabili. Hann hefurvíðtæka reynslu úrfjölmiðlum en hefur starfað sem almannatengslaráðgjafi síðustu ár. Baráttukona í Bandaríkjunum: Hættir mótmælum Cindy Sheehan, ein ötulasta baráttukonan gegn íraksstríð- inu, hefur ákveðið að hætta mótmælum. Hún hefur farið um víðan völl og tjaldaði meðal annars fyrir utan búgarð George W. Bush Bandaríkjaforseta í Craw- ford í Texasfylki. Þar reyndi Shee- han árangurslaust að ræða við for- setann vegna dauða sonar hennar, Casey, sem lést í átökum í Bagdad árið 2004. Sheehan segist hafa fórnað öllu sínu fyrir málstaðinn, hjóna- bandinu, fjárhagnum og heils- unni. Þrátt fyrir að njóta víða hylli hefur hún einnig orðið fyrir miklu mótlæti og verið vænd um athyglissýki. Gagnrýnir hún bæði demókrata og mótmælendur fyrir að láta eiginhagsmuni ráða för í baráttunni fyrir friði. „Ég hef verið kölluð öllum illum nöfnum og margsinnis verið hótað lífláti. Ég ætla að taka allt sem ég á og halda heim, verða móðir barn- anna minna og endurheimta það sem ég hef misst.“ 's'qrænmeti Kostnaður vegna dóms- og kirkjumála Mynd/Sveiri Vilhelms Hefur tvöfaldast á tólf árum ■ Ný verkefni hafa færst til ráðuneytisins ■ Kirkjumál kosta um 5 milljarða ■ Aukin umsvif kosta meira segir ráðherra sérmerkt þér! 11 rv-i i iigink<« Mairvna framkallaöi 100myndir fyrir adeins 2.900 Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net Kostnaður vegna reksturs dóms- og kirkjumálaráðuneytisins hefur meira en tvöfaldast í tíð ríkisstjórn- arsamstarfs Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Samkvæmt rekstarreikningi ríkissjóðs árið 1995 var heildarkostnaðurinn 9,7 milljarðar á verðgildi dagsins í dag. Á fjárlögum í ár er sá kostnaður tæp- lega 21 milljarður króna. Töluverðar skipulagsbreytingar hafa orðið á rekstri ráðuneytisins á þessum árum og mörg ný verkefni færst undirþað. Við breytingar á lög- regluskipan sem gekk í gildi um síð- ustu áramót færðist meðal annars sýslumannsembættið á Keflavíkur- flugvelli frá utanríkisráðuneytinu og varð hluti af nýju sýslumanns- embætti á Suðurnesjum. Kostnaður vegna þess var rúmur milljarður á fjárlögum ársins 2006. Þá hafa fslendingar verið þátttak- endur í Schengen-samstarfinu frá árinu 2001 og er kostnaður vegna þess áætlaður 134 milljónir króna í ár. Útlendingaeftirlitið var einnig aðskilið frá embætti lögreglustjór- ans í Reykjavík og gert að sjálfstæðri stofnun á fjárlögum. Það hefur heitið Útlendingastofnun frá árinu 200t og hefur kostnaður vegna þess nánast tvöfaldast frá aldamótum. Þá tóku lög um neyðarsímsvörun gildi um áramótin 1996 og er kostnaður vegna reksturs hennar áætlaður um 100 milljónir króna á þessu ári. Björn Bjarnason, dóms- og kirkju- málaráðherra, segir aukin umsvif vera helsta orsakavald aukins kostn- aðar. „Augljóst er að aukin umsvif við löggæslu á sjó og landi kosta mikið og sá kostnaður vex með sí- fellt umfangsmeiri verkefnum." Einstakir kostnaðarliðir innan ráðuneytisins hafa samt sem áður vaxið mikið á tímabilinu. Þar ber meðal annars að nefna kostnað vegna yfirstjórnar ráðuneytisins en rekstur hennar kostaði 254 millj- ónir króna á núvirði árið 1995. A fjárlögum ársins 2007 er hann áætl- aður um 700 milljónir króna og hefur því aukist um 175 prósent á tímabilinu. Þá hefur kostnaður vegna fangels- ismála farið úr 519 milljónum króna í 853 milljónir króna á sama tíma- bili. Þó var minna fjármagn veitt til fangelsisbygginga í ár en fyrir tólf árum. Þá runnu 208 milljónir króna til málaflokksins en í ár var sú tala 183 milljónir króna. Landhelgisgæslan hefur vaxið mikið að umsvifum á síðustu tólf árum. Kostnaður vegna hennar var um einn og hálfur milljarður árið 1995 en er áætlaður rúmlega 2,2 milljarðar króna í ár. Auk þess var 519 milljónum króna bætt við í Landhelgissjóð á fjárlögum ársins í ár. En það er kostnaður vegna kirkju- mála sem hefur aukist mest. Árið 1995 voru 756 milljónir veittar í þann málaflokk en fjárútlát vegna hans á fjárlögum 2007 eru áætluð um fimm milljarðar að meðtöldum sóknargjöldunum sem ríkið inn- heimtir. Þau nema um tveimur milljörðum króna í ár og 82 prósent þeirra renna til þjóðkirkjunnar. ÚLFLJÓTSVATNI Upplýsingar og skrcming ó netinu: www.ulfljotsvatn.is ; " 7— - Kassaklifur - GP5 ratleikir - Bátasiglingar - Vatnaleikir - Frumbyggjastöyf - Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi! ii a INNRITUN ER HAFIN - OpiÖ virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.