blaðið - 30.05.2007, Side 11

blaðið - 30.05.2007, Side 11
blaöiö MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007 11 Níkaragva: Mæörahús í notkun Fyrsta Mæðrahúsið, sem byggt er fyrir íslenskt fé í Níkaragva, hefur verið tekið formlega í notk- un í bænum Camoapa. Fjögur önnur Mæðrahús, sem byggð eru á vegum Þróunarsamvinnu- stofnunarinnar, verða opnuð á næstunni og bætast í hóp þeirra 52 sem fyrir eru í landinu. Haft er eftir Gerði Gests- dóttur ráðgjafa að starfsemi Mæðrahúsanna hafi reynst áhrifamikil leið til að vinna gegn mæðra- og ungbarnadauða sem er hár í Níkaragva. Vegna erfiðra samgangna á rigningar- tíma eigi konur erfitt með að fá aðstoð heilbrigðisstarfsfólks við fæðingu. Þess vegna þurfi Mæðrahús að vera sem víðast. Breytingar hjá Strætó: Tenging við skóla skorin Samfylkingin og fulltrúi F-lista mótmæltu í gær á fundi hverf- isráðs Árbæjar þeirri ákvörðun að láta hraðleiðina S5 aka um Sæbraut í stað Miklubrautar. Þar með sé skorið á tengingu Árbæj- arhverfis, Ártúnsholts, Seláss og Norðlingaholts við marga helstu skóla landsins og stærstu vinnu- staði. Verði þetta að teljast sérstak- lega undarlegt í ljósi áforma um gjaldfrjálsar almenningssamgöng- ur fyrir námsmenn næsta haust. 1 bókuninni er jafnframt lýst furðu yfir því að samráð hafi ekki verið haft við hverfisráð Árbæj- ar fyrr um breytingarnar sem ganga eiga í gildi um næstu helgi. Hugo Chavez, forseti Venesúela: Forsetinn í stríð við fjölmiðla Einungis klukkustundum eftir að hafa látið loka RCTV-sjónvarps- stöðinni ákvað Hugo Chavez, hinn umdeildi forseti Venesúela, að loka annarri sjónvarpsstöð. Hann hefur einnig farið í mál við bandarísku sjónvarpsstöð- ina CNN fyrir að bendla sig við al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin. Linnulaus mótmæli hafa staðið yfir víðs vegar um landið frá því Cha- vez tilkynnti að hann hygðist ekki endurnýja útsendingarleyfi RCTV, sem hann sakar um að hafa reynt að grafa undan ríkisstjórninni. Cha- vez fyrirskipaði öllum sjónvarps- stöðvum í landinu að birta ávarp sitt, þar sem hann segir að nauðsyn- legt hafi verið að loka stöðinni sem hafi verið ógn við landið. 1 höfuðborginni Caracas lenti lög- reglan í útistöðum við hátt í 5 þús- und mótmælendur og beitti hún táragasi og skaut gúmmíkúlum í átt að þeim. Stuðningsmenn Cha- vez hafa einnig fjölmennt út á götur landsins til að lýsa stuðningi við ákvörðun forsetans. I gær tilkynnti svo samskiptaráð- harra landsins að sjónvarpsstöðinni Globovision yrði lokað fyrir að hafa hvatt til þess að Chavez verði ráð- inn af dögum. Forráðamenn stöðv- arinnar þvertaka fyrir ásakanirnar. HÁSKÓLINN Á AKUREYRI B.Sc. í VIÐSKIPTAFRÆÐI í viöskiptafræói við Háskólann á Akureyri er lögö áhersla á aó mennta nemendur tit stjórnunarstarfa, m.a. meö þjálfun í faglegum vinnubrögóum við stefnumótun, ákvarðanatöku og stjórnun. SamhLiöa eru nemendur þjálfaóir í fræöilegum vinnubrögðum sem nýtast í framhaldsnámi. í grunninn fá allir nemendur sambæriLega menntun á sviöi viðskiptafræða, en geta að auki vaLið að Leggja áhersLu á eitt af eftirtöLdum sviðum: FERÐAÞJÓNUSTA MARKAÐSFRÆÐI FJÁRMÁL STJÓRNUN írak: Mannfall og mannrán Níu mönnum var rænt þegar uppreisnarmenn réðust inn í skrifstofur fjármálaráðu- neytisins í miðborg Bagdad í gær. Fréttir af mannráninu eru misvísandi en staðfest hefur verið að fimm þeirra sem rænt var eru Bretar, fjórir öryggisverðir og sérfræðingur á vegum ráðuneytisins. Þá létust að minnsta kosti 22 og á sjötta tug slösuðust þegar strætisvagn var sprengdur í loft upp. Vagninn stóð á fjölmennu torgi í miðborginni, en ekki er vitað hvort nokkur var inni í honum er sprengingin varð. f fyrradag létust 20 manns þegar bílsprengja sprakk í einu helsta viðskiptahverfi Bagdad og tveir bandarískir hermenn létust í þyrluslysi í Diyala-héraði. í boði er bæði staðarnám og fjarnám Námskrár, kynningarefni og umsóknareyóubLöð eru á www.unak.is Spennandi valkostur • PersónuLegt umhverfi - góð tengsL miLLi nemenda og kennara. • SveigjanLeiki - nemendur geta valió um að stunda staðnám eða fjarnám • Áhugaverð bLanda af tengslum við atvinnuLíf og fræðiLegri umfjöLLun „Ég er mjög ánægóur meö viðskiptafræðinámið við Háskólann á Akureyri. Ég tel þetta vera gott nám þar sem maður fær góðan grunn fyrir framtíðina, hvað svo sem hún ber í skauti sér. Mérfinnst námsálagið passLegt og fögin við hæfi og get mælt með þessu námi." Einar Hafliðason 2. ár í stjómun UMSÓKNARFRESTUR ERTIL5. JÚNÍ2007 HÁSKÓLINN Á AKUREYRI • v/Norðurslóð • 600 Akureyri • Sími: 460 8000 • www.unak.is

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.