blaðið - 30.05.2007, Page 26
34 MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 2007
blaðið
Sumarpartí á Nasa
Sumrinu verður fagnað á Nasa föstudaginn 1. júní næstkomandi en plötusnúðarnir Kiki-
Ow og Curver munu halda uppi stuðinu með tónlist frá tíunda áratugnum og sér-
stakur gestur verður breski skífuþeytarinn Wayne Paul. Ekki nóg með það heldur
fá þeir sem vilja fata sig upp fyrir herlegheitin afslátt í Spútnik með hverjum
keyptum miða en forsala aðgöngumiða er í verslunum Spútnik og á Nasa.
mmm
tíska
♦ Elskum
Sólina. Þá fáu daga sem sólin skín hlýnar
okkur um hjartarætur og við fáum sumar-
andann yfir okkur. Isrúntur um Austurvöll
eða Laugaveginn er lykilatriði á svona
degi eða svalandi sundsprettur í einhverri
útisundlauganna.
♦ Langar í
Fullt af sólgleraug-
um. Það er enginn
maður með mönnum
nema hann eigi í það minnsta ^
tvö stykki, önnur stór og viða-
mikil en hin minni og hefðbundnari.
♦ Líkar við
Skyrdrykki. Með öflugum
blandara, skyrdós og vel
. völdum ávöxtum má útbúa
svalandi skyrdrykk. Drykkur
sem þessi getur verið heil
máltíð út af fyrir sig, uppfull
af vítamínum og orku fyrir
amstur dagsins.
♦ Vitum ekki með
Endalausar umræður um Framsókn. Sjálf-
ir mega þeir líka hætta að velta fyrir sér
meintum svikum gamalla vina i Sjálfstæð-
isflokknum. Þegar menn impra í sífellu á
mikilvægi þess að horfa fram á veginn er
allsendis ótækt að tönglast endalaust á
meintum bræðralagsbrotum...
♦ Bless bless
Gríma á andlitinu. Þung, þétt og áberandi
förðun er algjörlega
dottin út og með
öllu bönnuð. Þá
sérstaklega
núna í sumar þeg-
ar áhersla er lögð
á náttúrulegt útlit.
♦ Þolum ekki
Loforð stjórnmálamanna sem fara svo
fyrir bí. Við viljum ekki láta hafa okkur
að fíflum meö því að gleypa við fögrum
fyrirheitum og veita stjórnmálamönnum
brautargengi á þeim forsendum, en fara
svo á mis viö efndir þegar á reynir. Betra
er ólofað en illa efnt!
CtuiznosSuB
MHHH...6LÓÐAÐUR
Suðurlandsbrau! 32 • 577 5775
Lækjargata 8 • 577 5774 • Nýbylavegur 32*577 5773
Lambakjöt meö
Bearnaise eða BBQ sósu
Made in Iceland gerir það gott
Tískuhátíðin Made in Iceland fer
fram annað kvöld, fimmtudaginn
31. maí, í Verinu í Loftkastalanum.
Um er að ræða tískusýningu sem
Eskimo og Base Camp standa að og
munu ungir, íslenskir fatahönnuð-
ir sýna hönnun sína.
„Það er aðallega verið að kynna
sex fatahönnuði og 16 nýjar fyrir-
sætur,“ segir Andrea Brabin hjá Es-
kimo. „Svo munu hljómsveitirnar
Steed Lord og Sometime spila þann-
ig að þetta verður mjög spennandi.
Tilgangurinn með þessu er að
kynna grasrótina í tískuheiminum
á íslandi í dag og við stefnum að því
að gera þetta að árlegum viðburði.
Það verður þarna stór tískusýning
og svo er búið að hengja upp mynd-
ir af fyrirsætunum í risastærð víðs-
vegar um salinn, þannig að þetta
á að vera svolítið óhefðbundið í
uppsetningu. En við hjá Eskimo er-
um líka að kynna 16 ný módel, þó
að þetta snúist fyrst og fremst um
hönnuðina.
Þetta eru ungir og ferskir hönn-
uðir sem munu sýna annað kvöld,
þó að margir af þeim séu farnir að
selja í verslunum erlendis eins og
Ostwald Helgason sem er kominn
inn í hinar og þessar búðir úti. En
þetta er svona nýjasta nýtt. Svo
munu líka Aftur-systur sýna hönn-
un sína en þær hafa kannski verið
einna mest áberandi í íslenskri fata-
hönnun undanfarin ár.“
Made in Iceland hefur vak-
ið athygli fjölmiðla ytra og
hafa tímarit á borð við
ID, Dazed and Confused
og V Magazine boðað
komu sína. „Svo mun
fatahönnuðurinn
Marjon Pejoski
koma hing-
að og Sasko
Bezovski
sem sér um
innkaup fyr-
ir verslun
sem heitir
Kokontozai
Kv'-
\ iiaiuaM
Aftur Systurnar Hrafnhild
Bára Hólmgeirsdætur han
undir eigin merki en þær!
meðal annars starfað mei
Gabríelu Friðriksdóttur, D
Ágúst, GusGus og Björk.
Sara María Eyþórsdóttir
Rekur verslunina Nakta
apann og er einn af hónnuð-
unum á Made in lceland
í London og París og selur fatnað
eftir nýja hönnuði. Svo eru hin og
þessi dagblöð frá Bretlandi sem
hafa sýnt áhuga þannig að það má
segja að þetta sé nú þegar farið að
vekja mikla athygli.
Við lítum fyrst og fremst á þetta
sem tækifæri fyrir þessa hönnuði
til þess að koma sínu á fram-
færi en við höfum alltaf reynt
að styðja við bakið á ungum
fatahönnuðum hjá Listahá-
skólanum og okkur langar til
þess að gera meira úr þessu.
Byggja þetta svolítið upp
svona eins og Airwaves og
vonumst til þess að gera
þetta stærra og meira með
hverju árinu.“
Sýningin hefst klukk-
an 20 og kostar 950
krónur inn, en hægt
er að verða sér úti um
miða á www.midi.is.
Bjargar sér á endasprettinum
Grasrótin í
tískuheiminum á íslandi
Annað kvöld munu sex ungir fata-
hönnuðir sýna hönnun sina á tískuhá-
tíðinni Made in lceland.
Aftur
Aftur hannar eingöngu úr áður nýttum
textíl og er hver flík einstök. Aftur hefur
verið starfandi í nokkur ár og hefur með-
al annars starfað með Gabríelu Friðriks-
dóttur, Daníel Ágúst, GusGus og Björk.
Raxel
Ragnheiður Axel er nýútskrifaður fata-
hönnuður frá Listaháskóla (slands en hún
hefur verið að selja eigin línu undir merk-
inu Raxel í London, París og Reykjavík.
Með náminu í Listaháskólanum starfaði
Ragnheiður fyrir Dead, Go with Jan og
Givenchy.
Eyglo
Eygló M. Lárusdóttir útskrifaðist úr
Listaháskólanum vorið 2005. Eygló var
i starfsnámi hjá Jeremy Scott en hefur
einnig starfað með AsFour og Bernhard
Willhelm.
Ostwald Helgason
Tvímenningarnir á bak við Ostwald
Helgason eru þau Susanne Ostwald
og Ingvar Helgason en samstarf þeirra
hófst árið 2006 undir nafninu Ostwald
Helgason og hafa þau nú þegar vakið
þó nokkra athygli erlendis.
Starkilfer
Harga Einarsdóttir hefur tekið þátt í
fjölmörgum hönnunarsýningum bæði
hér heima og erlendis, en hún er nú að
koma meö sína fyrstu línu eftir langt
hlé. Fatnaðinn vinnur hún í samvinnu
við klæðskerann Öeimu Ragnarsdóttur.
Forynja
Sara María Eyþórsdóttir rekur verslun-
ina Nakti apinn á Laugaveginum en
verslunin er orðin hálfgerður samnefn-
ari fyrir íslenska götutísku. Núna er
framleiðslan í stærra og betra húsnæði,
verslun númer tvö er við það að opna
og stendur til að selja fatnaðinn einnig
erlendis.
Spennumyndin Unknown fjallar
um fimm menn sem vakna heldur
laskaðir í yfirgefinni vöruskemmu.
Allir hafa þeir misst minnið og vita
ekki hvernig þeir enduðu í skemm-
unni né hver er með hverjum í liði.
Ýmislegt rifjast þó upp með tíman-
um og nokkuð langdregin atburða-
rás fer af stað sem hefur för með sér
ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Unknown er vægast sagt leiðinleg
mynd framan af. Hún líkist meira
tölvuleik en kvikmynd, bæði útlits-
lega séð og hvernig sagan skríður
áfram með vísbendingum úr fortíð-
inni. Það ætti reyndar ekki að koma
á óvart þar sem leikstjórinn, Simon
Brand, er þekktari fyrir tónlistar-
myndbönd en kvikmyndir og nálg-
ast því viðfangsefnið öðruvísi
en þaulreyndur kvikmyndaleik-
stjóri.
Leikararnir standa sig vel. Greg
Kinnear smellpassar í hlutverk
stressaða skrifstofumannsins sem
Unknown
Regnboginn, Háskólabíó
• Lríkstjörl:
Simon Brand
James Caviezel,
Greg Kinnear,
Joe Pantoliano
Atli Fannar Bjarkason
atH@bladid.net
nýtir hvert tækifæri til að ljúga til
að ná sínu fram og Joe Pantoliano
er stórkostlegur sem bundni mað-
urinn sem aldrei er nefndur á nafn.
Vandamál Unknown er ekki leik-
ararnir heldur leikstjórn og hand-
rit. Þeir gera sitt besta en sagan er
bara ekki nógu pottþétt til að halda
manni spenntum frá upphafi.
Eftir hlé fer þó að draga til tíð-
inda og mætti segja að myndin redd-
ist á síðasta hálftímanum. Spennan
eykst og endirinn er ófyrirsjáanleg-
ur og bara mjög flottur - dregur
myndina heilmikið upp með stór-
góðri fléttu. í heildina er Unknown
sæmilegasta ræma sem mætti halda
áhorfendum betur við efnið í byrj-
un en eins og langhlaupari á stór-
móti bjargar hún sér vel fyrir horn
á endasprettinum.