blaðið - 15.06.2007, Page 2
2 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007
blaöið
VEÐRIÐ í DAG
Dálítil rigning víða
5 til 8 m/s suðvestan- og vestanlands
og dálítil rigning öðru hverju, en
hægviðri og yfirleitt þurrt og bjart um
landið norðaustanvert. Hiti 10 til 18
stig, hlýjast norðan- og austanlands.
AMORGUN
Hlýjast lyrir norðan
Suðaustan 5-10 m/ssuð-
vestan- og vestantil og dálítil
væta, en annars hægari og
bjart með köflum. Hiti 10 til
18 stig, hlýjast norðanlands.
VÍÐAUMHEIM |
Algarve 21
Amsterdam 22
Barcelona 26
Berlln 27
Chicago 30
Dublin 13
Frankfurt 27
Glasgow
Hamborg
Helsinki
Kaupmannahöfn
London
Madrid
Montreal
12 New York
22 Orlando
12 Osló
17 Palma
22 Paris
21 stokkhólmur
17 Þórshöfn
16
22
14
23
22
17
8
Á FÖRNUM VEGI
Hvernig fer landsleikur
Serba og íslendinga
í handbolta?
Sigfús Sigurðsson
2-0, og seinna markið verður úr
homi.
Alma Eir Sævarsdóttir
íslendingar vinna pottþétt.
Verónika Steinunn
Magnúsdóttir
Serbar vinna.
Kári Harðarson
Ég vona að Islendingar merji þá.
Lögreglumaður fékk greidda dráttarvexti:
Islenska ríkinu
ber að borga
■ Prófmál segir formaður Landssambands lögreglumanna
■ Fleiri hafa ekki fengið dráttarvexti greidda
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
Hæstiréttur íslands viðurkenndi í
gær skyldu íslenska ríkisins til að
greiða dráttarvexti af vangoldnum
launum Einars G. Guðjónssonar, lög-
reglumanns, vegna tímabilsins 26.
apríl 2002 til 1. maí 2004. Einnig er
íslenska ríkinu gert að greiða Einari
hálfa milljón í málskostnað í héraði
og fyrir Hæstarétti.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði í
nóvember í fyrra viðurkennt skyldu
íslenska ríkisins gagnvart Einari
vegna tímabilsins 1. september 2001
til 1. maí 2004. Sveinn Ingiberg Magn-
ússon, formaður Landssambands
lögreglumanna, segir þetta mikinn
sigur og lítur á þetta sem prófmál.
„Það er náttúrlega mikið fagn-
aðarefni sem við sjáum í því að
þetta skyldi enda svona. Við teljum
þetta vera prófmál komi aftur upp
ágreiningsmál varðandi réttindi
launþega opinberra starfsmanna til
leiðréttingar og dráttarvaxta af van-
goldnum launum."
Þegar nýr kjarasamningur lög-
reglumanna tók gildi haustið 2001
kom upp ágreiningur um túlkun
ákvæða samningsins sem lutu
að því að hvaða leyti starfsaldur
hefði áhrif á röðun í launaflokka. I
framhaldi af því höfðuðu fimm lög-
reglumenn mál á hendur islenska
ríkinu og kröfðust viðurkenningar
á rétti sínum til röðunar í tiltekna
launaflokka samkvæmt kjarasamn-
ingnum. Fjórir af þeim kröfðust
einnig greiðslu á vangoldnum
launum auk dráttarvaxta.
Með dómum Hæstaréttar frá
18. mars 2004 var fallist á skilning
Landssambandsins á efni samnings-
ins. Allir lögreglumennirnir fengu
leiðréttingu launa sinna eftir þetta
en íslenska ríkið taldi sér hins vegar
ekki skylt að greiða dráttarvexti á
hin vangoldnu laun. Fengu þvi ein-
ungis þeir sem fóru í mál dráttar-
vexti af vangoldnu laununum.
Einar var einn þeirra sem fékk
ekki greidda dráttarvexti en van-
goldin laun hans námu rúmlega
einni og hálfri milljón króna á
tímabilinu 1. september 2001 til
1. maí 2004. Krafðist Einar því
viðurkenningar á skyldu íslenska
ríkisins til greiðslu dráttarvaxta af
vangoldnum launum til hans vegna
tímabilsins.
Sveinn Ingiberg segir þó nokkra
lögreglumenn ekki hafa fengið
greidda dráttarvexti en Einar sé sá
eini sem hefur stefnt íslenska rik-
inu vegna dráttarvaxtanna. Vonast
hann til þess að þetta mál verði til
þess að þeir verði greiddir.
Kópavogur:
Brátt fá allir
frítt í strætó
Reykjavíkurborg ætlar ekki
að feta í spor Kópavogsbæjar
og veita öllum frítt í strætó
frá áramótum, eins og bæjar-
stjórn Kópavogs ákvað í gær.
„Við höldum okkar striki,“
sagði Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir.borgarfulltrúi og
stjórnarmaður í Strætó bs.
í greinargerð á fundi borg-
arstjórnarinnar stendur að á
annað hundrað milljónir kosti
að rukka inn þær þrjú hundruð
milljónir sem gjald fyrir full-
orðna skili Strætó væri börnum,
unglingum og öldruðum leyft
að ferðast frítt með strætó
eins og yfirvöld í Reykjavík
og Hafnarfirði hafa ákveðið.
Bandaríkin:
Bannar buxur
skoppara
Carol Broussard, borgarstjóri
Delcambre í Louisianaríki i
Bandaríkjunqm, segist ætla
samþykkja nýtt lagafrumvarp
sem felur meðal annars í sér
að notkun skopparabuxna á
almannafæri flokkast sem ósið-
samlegt athæfi. Bæjarstjórnin
samþykkti einróma fýrr í vikunni
bann við að klæðast buxum þar
sem sést í nærbuxur viðkomandi.
Lögbrjótar í Delcambre geta
nú átt vona á andvirði rúmlega
þrjátíu þúsund króna sekt og
allt að sex mánaða fangelsi.
Fyrirhugað bann hefúr mætt
talsverðri andstöðu meðal sumra
bæjarbúa, sér i lagi unglinga.
Dísel Volvo alveg milljón
Eigum nokkra bíla ó lager. 5 og 7 manna með og ón
topplúgu. Litir: Silfur - Dökkgrár - Svartur - Dökkblór.
Ustaverð með þessum ríkulega búnaði:
fró 8.300 þús. til 8.450 þús.
Okkar verð fró 7.250 til 7.390 þús.
Mismunur alveg milljón.
www.sparibill.is
SicúlagöHj 17
Sími: 577 3344
J
Viðvörun frá norskum björgunarsveitum:
Börn séu bleiulaus í bátum
Norskar björgunarsveitir, Redn-
ingsselskapet, vara við því að láta lítil
börn vera með bleiu úti á sjó eða vatni.
Séu börn með bleiu er hætta á að flot-
búnaðurinn i björgunarvestum þe-
irra virki ekki.
Björgunarvestin sem eru á mark-
aði í Noregi eru ekki prófuð á börnum
með bleiu og hið sama gildir um þau
vesti sem eru á markaði hér á landi.
„Það eru gerðar sömu kröfúr til
vestanna hér og í Noregi og það er
ekkert í leiðbeiningunum sem varar
við þessu,“ segir Herdís Storgaard for-
varnafulltrúi hjá Forvarnahúsi Sjóvár.
Haft er eftir fulltrúa björgunar-
sveitanna í Dagbladet í Noregi að i
raun séu bleiubörn með flot við boss-
ann þegar bleian er þurr með miklu
lofti. Flotbúnaðurinn í björgunarvest-
inu eigi að sjá til þess að barnið snúist
og liggi með andlitið upp en sé jafn-
ffamt flot í bleiunni virki ekki búnað-
urinnívestinu.
Jafnframt er bent á að barnið geti
sogast niður sé bleian ekki þurr.
„Bleiuframleiðendur hafa verið dug-
legir við að búa til bleiur sem soga í
sig mikinn vökva. Öll björgunarvesti
eru miðuð við þunga og það segir sig
sjálft að barnið getur dregist niður ef
eitthvað er í bleiunni. Þar að auki lig-
gja bleiur misjafnlega þétt að líkam-
anum og geta fyllst og við það bætast
ansi mörg grörnrn," segir Herdís.
Hún segir fyllstu ástæðu til að vara
við þessu. „Þótt fólk stundi almennt
ekki mikið siglingar hér á landi þá
getur verið mikið um að það leigi
skútur erlendis."