blaðið - 15.06.2007, Page 8
8 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007
bla6i6
9
Heldur liðunum
liðugum!
heilsa
~f'öAsjcy mMiWKI -haföu þaö gott
UTAN ÚR HEIMI
DANMÖRK
Andvígir ESB-aðild Tyrkja
Meirihluti Dana vill að Evrópusambandið slíti viðræðum við tyrknesk
stjórnvöld um hugsanlega aðild landsins að ESB, samkvæmt nýrri
könnun Greens Analyseinstitut. Rúmlega 53 prósent aðspurðra eru
andvígir viðræðunum, en 37 prósent fylgjandi. Talsmenn Danska
þjóðarflokksins hafa fagnað niðurstöðum könnunarinnar.
xAR
KAURA
/SELIA
blaöiöH
SMAAUGLYSINQAR@iBLADIO.NET
Danmörk:
Við stækkum og
prentum myndir
á striga fyrir þig
Kynntu þér strigaprentun
í næstu verslun okkar
Innflytjendur
standast próf
Rúmlega 97 prósent þeirra
sem þreyttu fyrsta prófið
sem lagt var innflyjendur í
Danmörku, stóðust og eru því
skrefi nær að öðlast danskan
ríkisborgararétt, samkvæmt
frétt Jyllands-Posten. Rúmlega
sjö hundruð innflytjendur tóku
prófið í síðasta mánuði og þurftu
að svara að minnsta kosti 28 af
41 spurningu rétt til að standast.
í prófinu er að finna almenn-
ar spurningar um danskt
samfélag, sögu þjóðarinnar
og atburði líðandi stundar.
Þannig var meðal annars spurt
um eðli þingræðis og hvaða
byggingu lögreglan lokaði í
Kaupmannahöfn í marsmánuði.
ÍÍÉ1I
VÍN^BÚÐ
IfilrMU. £ H-jýjxwt
Starfsfólk Vínbúðarinnar Holtagörðum
hefur flutt (nýja vínbúð (Skeifunni 5.
Verið velkomin!
MA N
FOS
11-18
LAU
Stjórnarandstaðan í sókn
Jafnaöarmannaflokkurinn og aörir sænskir stjórnarandstöðuflokkar
eru í mikilli sókn og myndu vinna öruggan sigur ef gengið yrði til
kosninga nú, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar sem vefmiðill-
inn DN birti í gær. I könnunni segjast 55,4 prósent styðja stjórnarand-
stöðuflokkana, en 40,6 prósent hina borgaralegu stjórnarflokka.
Óöld í Palestínu Rúmlega
hundrað Palestínumenn hafa
látið lífið í bardögum á Gasa-
ströndinni síðustu sex daga.
Hamas-liðar ná Gasaströndinni á sitt vald:
Hamas lysa
yfir sigri
■ Fjárstuðningi ESB hætt tímabundið
Eftir Atla Isleifsson
atlii@bladid.net
Hamas-liðar réðust inn og náðu höf-
uðstöðvum öryggissveita Fatah í
Gasaborg á sitt vald í gær. Liðsmenn
Hamas lýstu í kjölfarið yfir sigri eftir
að hafa náð stjórn á nánast öllum
pólitískt mikilvægum byggingum
Gasa-svæðinu í aðgerðum sínum og
töluðu um að hafa frelsað svæðið á
nýjan leik. Tæplega þrjátíu manns
létust í bardögum gærdagsins, en
á annað hundrað manns hafa látið
lífið í átökum á götum Gasaborgar
síðustu sex daga.
Margir Hamas-liðar höfðust við
og veifuðu grænum fána sínum
á þaki höfuðstöðva öryggissveita
Fatah þegar þeir höfðu náð bygging-
unni á sitt vald. Fréttir bárust af því
að sumir liðsmenn Hamas hafi stillt
sumum Fatah-liðum upp við vegg og
skotið þá í höfuðið af stuttu færi, líkt
og um aftökur væri að ræða.
Leiðtogar palestínsku regnhlífa-
samtakanna PLO funduðu með
Mahmoud Abbas Palestínuforseta
í gær og hvöttu hann til að leysa
upp um þriggja mánaða gamla þjóð-
stjórn Hamas og Fatah og lýsa yfir
neyðarástandi. Þjóðstjórnin var
mynduð á sínum tíma í tilraun til
að draga úr átökum milli andstæðra
fylkinga í landinu. Abbas og Ismail
Haniya, forsætisráðherra Palestínu,
hvöttu alla Palestínumenn til að
hætta öllu ofbeldi á miðvikudags-
kvöldið, en sú beiðni virðist hafa
farið fyrir lítið.
Liðsmenn Hamas lögðu fram
kröfur í gær sem þeir segja Fatah-
liða verða að hlýða, til að hægt sé að
koma á friði og að áframhald geti
orðið á ríkisstjórnarsamstarfi fylk-
inganna. Ein krafan er að allar örygg-
issveitir Palestínumanna falli undir
innanríkisráðuneytið sem lýtur
stjórn Hamas. Á fréttavef BBC segir
að ef fram fer sem horfir muni klofn-
ingurinn leiða til þess að Hamas
muni ráða Gasaströndinni og Fatah
Vesturbakkanum. Bardagar síðustu
daga hafa meðal annars kostað
börn og óbreytta borgara lífið og
eru þeir mannskæðustu frá því að
Hamas hafði sigur í þingkosningum
snemma árs 2006.
Ehud Olmert, forsætisráðherra
ísraels, hefur lagt áherslu á nauðsyn
þess að koma fjölþjóðlegu herliði
fyrir á egypsku landamærunum til
að reyna að stemma stigu við vopna-
smygli inn í Palestínu. Ban Ki-Moon,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, hefur einnig rætt við full-
trúa ríkja í öryggisráðinu um mögu-
leikann að senda fjölþjóðlegt herlið
til Gasastrandarinnar þó að engin
ákvörðun hafi verið tekin um slíkt.
Framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins tilkynnti i gær að fjárstuðn-
ingur við heimastjórn Palestinu-
manna yrði hætt tímabundið vegna
aukins ofbeldis áheimastjórnarsvæð-
unum. Þá yrðu öll hjálparverkefni á
vegum ESB stöðvuð vegna slæms
öryggis starfsmanna, þó að vonast
væri til að hægt verði að halda verk-
efnunum áfram sem allra fyrst.
Farsímafélagið 09 Mobile:
Lækka gsm-gjöldin
íslenska farsímafélagið 09 býður
notendum allt að 80 prósentum
ódýrari farsímagjöld frá 190 löndum.
Á bakvið félagið standa fyrrverandi
eigendur símafyrirtækisins Halló,
erlendir fjárfestar og íyrrverandi
forstjórar úr símageiranum.
„Við höfum aðgengi að allt að 500
farsímafélögum um heim allan
sem þýðir að við getum þjónustað
notendur í 190 löndum. Hingað
til höfum við einbeitt okkur að er-
lendum mörkuðum en verði okkur
úthlutuð tíðni hér á landi erum
við í góðri aðstöðu til að lækka far-
símagjöld Islendinga talsvert,“ segir
Lárus Jónsson framkvæmdastjóri.
Möguleikar 09 eru miklir, þar sem
fyrirtækið hefur mestan hluta að-
búnaðar og tækni til staðar.
„Við búumst við 10 þúsund nýjum
viðskiptavinum á næstu tveimur
mánuðum en í núverandi kerfi 09
er pláss fyrir 500.000 notendur."