blaðið - 15.06.2007, Qupperneq 17
blaöið
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 2007 25
bilar@bladid.net
r
C4 Grand Picasso frumsýndur
Á morgun verður frumsýndur hjá Brimborg nýr 7 manna
fjölnotabíll, Citroén C4 Grand Picasso. Bíllinn er búinn
margvíslegum búnaði, til dæmis goskæli, og hefur
hlotið góða dóma. Boðið verður upp á reynsluakstur,
kaffi og croissant frá 12 til 16.
Landgræðsluferð
Um næstu helgi verður hin árlega
landgræðsluferð Ferðaklúbbsins 4x4 í
Þórsmörk. Á laugardeginum, 23. júní,
stendur til að planta birkiplöntum og
dreifa áburði. Nánar á www.f4x4.is
Tengsl bílaframleiðenda
PSA Iramleiöir 1,6 dísilvélar í Ford Focus og Volvo S40
Chevrolet Rolls Royce : -0 A A
GMC E
Holden Samstartum ! 1
Hummer framleiðslu
Opel (og Vauxhall) Prlncevéla *
Pontiac <8
Saab j J
Satum P.ll A OO/ 1 Cti.xLI *
Toyota
Lexus
í Scion
Daihatsu
Hino
Samstarf um k
framleiðslu
Aygo, C1
og 107 í
Tékklandi
j Fiat
Iveco
Ferrari
Maserati
Alfa Romeo
Lancia
t Hyundal
Kia
Fiat á 50% á mótl PSA
Samstarfum
framlelðslu
Suzukl XL7 og
Ðaewoo (síðar
Chevrolet)
RATPSA |
(Sevel bílaverk-
smiðjur sem
framlelðir bila fyrlr
PSAogFiat)
Aston Martin
Samstarf um
framleiðslu
Suzukl SX4
Toyota á 5,9% i Isuzu
I
íiT
Honda
Acura
: Isuzu
i Suzuki
Mitsublshi
i Subaru
Toyota á
8,7% i
Subaru
Víðtækt
samstari um
hönnun og
framleiðslu
smábíla,
m.a. fyrir
Japansmarkað
Hontla Isuzu Suzuki Mitsubishi
j Ford
Lincoln
Mercury
Jaguar
Land Rover
Volvo
Volkswagen
Audi
Bentley
Bugatti
Lamborghini
Seat
Skoda
s
| « p• ** i DaimlerChrysler 1
I 1 i S 1 Mercedes-Benz Jeep
Chrysler
Dodge
Maybach
Smart
Ford á 33,4% I Mazda
Mazda
Kínverski bílaframleiðandinn
SAIC á 51% í Ssang Yong
iiB—
! SsangYong
Renault á 44,4% í Nissan sem á 15% i Renault
f“' ▼ | 1
Renault
Dacia
Myndin sýnir á einfaldaðan hátt nokkur dæmi um samstarf og tengsl bilaframleiðenda i dag
Tengsl bílaframleiðenda eru margvísleg og flókin:
Allir með öllum
Eftir Einar Elí Magnússon
einareli@bladid.net
Þætti þér skrítið ef Ford færi allt í
einu að búa til Volvo eða Land Rover?
Ef Hummer og Saab væru frá sama
framleiðanda? Ef einn hraðskreiðasti
bíll í heimi, Bugatti Veyron, væri smíð-
aður af þeim sömu og smíða Skoda?
Velkomin í bílaiðnað 21. aldarinnar,
þetta á sér allt stað nú þegar.
Fyrir utan að kaupa upp heilu merk-
in eru bílaframleiðendur iðnir við að
fjárfesta í hver öðrum. Til dæmis á
Renault rúmlega 44% í Nissan. Niss-
an á reyndar 15% í Renault „til baka“.
Það er því af sem áður var að framleið-
endur ættu líf sitt undir því að einn
bíll seldist betur en aðrir, eggin eru
ekki lengur öll í sömu körfunni.
Það hefur líka viðgengist í mörg ár
að framleiðendur noti varahluti frá
hver öðrum, til dæmis Mitsubishi-raf-
al í Mazda-bíl, en í dag er samstarfið
orðið mikið víðtækara. Allt frá ein-
stökum verkefnum, eins og Blue
Tec dísiltæknin sem Volks
wagen og Daimler
Chrysler vinna saman að, og alveg
yfir í framleiðslu bíla eins og í tilfelli
Toyota Aygo, Citroén Ci og Peugeot
107 sem eru í grunninn sami bíllinn.
Með allt þetta í huga gæti maður
haldið að það væri stundum ruglings-
legt að versla með bíla í dag. Eigendur
bílaumboðanna Heklu, Öskju og Kia
bjóða upp á bíla frá sex framleiðend-
um sem eru mjög ólikir, bæði hvað
varðar uppruna, stærð og þá bíla sem
þeir framleiða. „Það er hægt að eiga
mjög heimilisleg samskipti við stóru
birgjana, þrátt fyrir að um gríðarlega
stór fyrirtæki sé að ræða. Við erum
í miklum samskiptum við þá alla en
þeir gera mismunandi kröfur til okk-
ar, Þjóðverjarnir líklega mestar," seg-
ir Jón Trausti Ólafsson, markaðsstjóri
Heklu. Hann segir ekki marktækan
mun á samskiptum við framleiðend-
ur eftir stærð þeirra eða tengslum, en
geinilegan mun er þó að finna á skipu-
lagi þeirra. „Ef uppi eru hug-
myndir um að breyta fyrirtækjum
finnum við fyrir því að einhverju
leyti hjá okkar samskiptaaðilum og
eins hjá viðskiptavinum. Við fáum
þá spurningar um það ef eitthvað er
að gerast hjá einhverjum birgjanna.“
segir Jón Trausti og segir sérstaklega
bilaáhugamenn vera meðvitaða um
tengsl framleiðanda en almennt sé
fólk ekki að hugsa um það.
„Það hefur þó hjálpað Skoda mjög
mikið að komast undir eignarhald
Volkswagen Group, en undir þeim
hatti eru meðal annars Volkswagen,
Skoda, Audi, Lamborghini og fleiri.“
Jón Trausti segir ennfremur að
þrátt fyrir að tegundir færist stund-
um á milli framleiðanda þurfi það
ekki endilega að þýða breytingar fyrir
umboðin. „Merkin innan Volkswag-
en Group eru mjög aðskilin. Það tek-
ur langan tíma að breyta einhverju í
umboðsmannakerfinu þó svo að ein-
hverjar breytingar verði ytra og þó að
það sé algengt að öll merkin séu hjá
sama umboðsaðila en þó ekki
sjálfgefið.“
Framtíðin? Með síauknu samstarfi og dreifðu
eignarhaldi bílaframleióanda færist í vöxt að
þeirnoti varahluti frá hvorum öðrum í bíla sína
UR BILSKURNUM
Ferrari heimsmet
Um helgina keyrðu 385 Ferrari bilar, að and-
virði 7,6 milljarða króna, hring á Silverstone
brautinni í Bretlandi. Tilefnið var tvíþætt;
að fagna 60 ára afmæli bílaframleiðandans
og að setja heimsmet sem fengist skráð í
hina víðfrægu Gulnnesbók.___________
• Meðal blla voru 250 California Spider, 275 GTB/V,
250 GT0 og hinn ofursjaldgæfi FXX • Auk þess
mátti sjá handfylli af F40, F50 og Enzo
Krómlakk fyrir blingið
Stórar felgur, neon og dökkar rúður? Nei.
1 bílskúrnum er mál manna að krómlakk
sé hið nýja bling. Muna bara að vera með
sólgleraugu ef maður fer út að keyra!
• Lakkið heitir MirraChrome og er komið I almenna
sölu í Bretlandi • Ásprautað hefur það 98% af þeirri
endurspeglun sem venjulegt króm hefur
BMW mótorhjólaklúbbur
(gær var stofnfundur BMW mótorhjóla-
klúbbsins, þess fyrsta hér á landi. Búið er
að kjósa formann og velja merki, og því litið
annað ettiren að fara saman út að hjóla!
• Klúbburinn er stofnaður i samstarfi við B&L
• Heyrst hefur að Njáll Gunnlaugsson, ritstjóri Bíla &
Sport, sé einn af frumkvöðlum klubbsins
VélsleðabíII?
Þetta skondna tæki er hugarsmíð vélsleða-
og fjórhjólframleiðandans Bombardier og
heitir þvi þjála nafni Can-Am Sþyder Ro-
adster. Það er hugsað til almennra nota á
götum og vegum en er mitt á milli fjórhjóls
og vélsleða í aksturseiginleikum. Við i bíl-
skúrnum bjóðumst til að prófa svona tæki
ef það kemur hingað til lands!______________
• Can-Am er buinn 998 rúmsentimetra vél sem
skilar 106 hestöflúm • 0-100 hraðinn er 4,5 sekúnd-
ur • Tækið er ótrúlega stöðugt og einfalt (notkun,
jafnvel fyrir þá sem eru ekki vanir vélsleðum eða
mótorhjólum
HirellT
Staðan í Pirelli
mótaröðinni í ralli
Sæti Ökum./aðst.ökum. Stig
1. Daníel Sigurösson/Ásta Sigurðardóttir 25
2. Sigurður B. Guðmundss./lsak Guðjónss. 16
3. Óskar Sólmundarson/Valtýr Kristjánsson 9
4. Jón Bjarni Hrólfsson/Borgar Ólafsson 9
5. JóhannesV. Gunnarss./Eggert Magnúss. 7
Sæti Nafn Lið Stig (siðast)
1 Lewis Hamilton McLaren 48 (10)
2 Fernando Alonso McLaren 40 (2)
3 Felipe Massa Ferrari 33 (0)
4 Kimi Raikkönen Ferrari 27 (4)
5 Nick Heidfeld BMW 26 (8)
í GÓÐUM GÍR
Upplifun Þeirsem fara i ferðir
með Land Rover keyra sjálfir |
og fá til dæmis tilsögn um
hvernig á að keyra yfir ár.
Blaliö/Cva Dögg lólwnmdóttir '
Ahersla lögð á ferðir
ísland hefur nú bæst í hóp yfir
30 landa sem hýsa Land Rover Ex-
perience center, eða upplifunarmið-
stöðvar Land Rover. I miðstöðvun-
um er lögð áhersla á möguleikana
sem fjórhjóladrifsbílar bjóða upp á
annars vegar og hins vegar fá gest-
ir kennslu í virkni og eiginleikum
Land Rover bíla.
„Við erum fyrst og fremst með
ferðir. Oti í heimi er mikil áhersla
lögð á skóla þar sem kennslan
fer fram á litlu svæði en hér leggj-
um við aðaláhersluna á ferðir, frá
tveggja og upp í tíu daga langar,
með allri þjónustu,“ segir Ingólfur
Stefánsson landkönnuður sem hef-
ur stýrt Land Rover-ferðum fyrir
Þjóðverja í mörg ár. Þegar fréttist
af þeim ferðum til Englands var
hann fenginn til að halda utan
um miðstöðina en hugmyndin að
henni varð til fyrir mörgum árum.
„Þeir höfðu komið hingað áður og
sáu möguleikana hér á landi, við
þurfum ekki að byggja brautir hér
heldur keyrum við bara þær braut-
ir sem fyrir eru. Hér eru slóðar, ár
sem þarf að þvera, sandar og allt
sem þarf.“
Til að byrja með verður Ingólfur
með sex bíla sem ferðast saman. í
einum þeirra verður leiðsögumað-
ur sem hefur samskipti við hina i
gegnum talstöð en algengast er að
tveir viðskiptavinir séu í hverjum
hinna bílana og keyri sjálfir.
„Við höfum spurt kúnnana eftir
ferðir hvað það er sem stendur upp
úr og mjög margir segja fjölbreytn-
ina, að enginn dagurhafiverið eins.
Eftir örfárra tíma akstur er maður
kominn í allt annað landslag. Þetta
geta önnur lönd ekki boðið upp á,“
segir Ingólfur og bætir því við að
hann hafi mikinn áhuga á að bjóða
Islendingum ferðir líka. „Þetta kost-
ar ekki mikið meira en að leigjabíla-
leigubíl en það er miklu meira inni-
falið. Svo geta verið fjórir í hverjum
bíl til að deila kostnaðinum,“ segir
Ingólfur að lokum.
Hægt er að fræðast um miðstöð-
ina og ferðirnar á www.safaris.is
Stál og stansar ehf. Símh 517 5000