blaðið - 15.06.2007, Page 24
32
FOSTUDAGUR 15. JUNÍ 2007
blaðið
Wýtt frá Radiohead
Von er á nýrri plötu frá hljómsveitinni Radiohead innan tíöar, aö sögn gítarleikara bandsins Ed O’Brien, en nú
eru komin fjögur ár síðan bandið gaf út breiðskífuna Hail to the Thief. Söngvarinn Thom Yorke hefur þó ekki
setið aðgerðalaus en hann gaf út sólópiötuna The Eraser í millitíðinni. Nú hafa Radiohead-menn gefið sér
góðan tíma í undirbúning nýju plötunnar og Píða aðdáendur spenntir, enda líklega orðnir langþreyttir á biðinni.
FRÉTTIR
Eyþór Arnalds tekur við starfi meðhjálpara:
Kirkjan lifir
„Ég er nýbyrjaður í piessu en þetta
er nú ekki fullt starf hjá mér,“ segir
Eyþór Arnalds sem hefur tekið við
störfum sem meðhjálpari í Selfoss-
kirkju hjá sr. Gunnari Björnssyni.
„Maður fær að taka þátt í guðsþjón-
ustunni með virkum hætti en jóetta
kom þannig til að séra Gunnar bað
mig um að hjálpa sér við þetta, en
starf meðhjálparans snýst auðvitað
um að hjálpa prestinum. Gunnar hef
ég þekkt í yfir 20 ár en ég kynntist
honum sem sellóleikari, en hann
er sellóleikari eins og ég. Við kynnt-
umst í Skálholti og mér hefur alltaf
þótt mjög vænt um Gunnar og mér
þótti vænt um að hann skyldi
biðja mig um þetta. Ég hef
alltaf verið trúaður og ég
það sé hverjum manni hollt að
iðka sína trú, hver sem hún er. Mér
líður mjög vel í kirkju og ekki síst
með Gunnari þar sem hann er
góður predikari. Þannig að ég fer
reglulega í messu og mæli með
predikunum séra Gunnars því þær
eru innihaldsríkar og það er góður
friður að fara í kirkju. Ég fór líka
sem ungur maður í klaustur bæði til
Frakklands og Bretlands. Það var
nú meðal annars til þess að kynn-
ast gregorískum söng sem munk-
arnir iðka og var það mjög góð
lífsreynsla. Þá var vaknað klukkan
fimm og farið í fyrstu messuna og
svo var trúarhald allan daginn og
gaf það mér heilmikið. Þar var ég
líka að vissu leyti að feta í fótspor
Laxness þar sem þetta er sama
munkaregla og hann heimsótti í
Lúxemborg. En kirkjan lifir allavega
þrátt fyrir lífsins læti.“
hilda@bladid.net
Netið er fram
FJÖLBRAUTASKÓLINN
VIÐ ÁRMÚLA
Vilt þú verða læknaritari?
Enn er hægt að bæta við nemendum á læknaritarabraut
Fjölbrautaskólans við Ármúla/Heilbrigðisskólans.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla/Heilbrigðisskólinn er kjarnaskóli í
heilbrigðisgreinum
Nám í læknaritun er 81 eining og skiptist í 3 bóklegar annir og 6
mánaða starfsþjálfun á heilbrigðisstofnun.
í bóklega hlutan um er einkum lögð áhersla á heilbrigðisgreinar,
læknaritun, latínu, ensku, tölvufræði og upplýsingatækni.
Nám í læknaritun er lánshæft hjá LÍN
Nám í læknaritun veitir lögvernduð réttindi til starfsheitisins
læknaritari skv. reglugerð heilbrigðisráðuneytisins.
Starfsvettvangur læknaritara eru sjúkrahús, heilsugæslustöðvar,
læknastofur og vísindastofnanir þar sem hann er mikilvægur
hlekkur í keðju heilbrigðisstarfsfólks.
Umsækjendur skulu hafa lokið stúdentsprófi eða hafa sambærilega
menntun og reynslu. Nauðsynlegt er að umækjendur hafi góða
kunnáttu í íslensku og ensku, auk þess er gerð krafa um tölvulæsi.
Umsóknum skal skilað á skrifstofu skólans á umsóknareyðublöðum
sem þar fást. Einnig er hægt að prenta blaðið út af heimasíðu skólans,
www.fa.is. Umsókn skulu fylgja vottorð um fyrri skólagöngu.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Narfadóttir kennslustjóri
(gnarfa@fa.is) eða skólayfirvöld.
Skólameistari
Björn Bragi Arnarsson fór mikinn
í Verzlunarskóla íslands sem sigurveg-
ari Morfís og lykilmaður í Gettu bet-
ur-liðinu. Hann hlaut titilinn ræðu-
maður Islands í tvö skipti og vakti
athygli fyrir skemmtilegar ræður, ör-
ugga framkomu og hnitmiðuð tilsvör
í Gettu betur. Nýverið ákvað Björn þó
að venda kvæði sínu í kross og setja
á laggirnar vefritið Panama.is sem nú
skipar i2.sætið á lista yfir mest sóttu
vefsíður landans.
„Eftir skólann fór ég strax að vinna
við fjölmiðlun auk þess sem ég átti
stutt innlit í Háskólann í sagnfræði.
Það átti ekki alveg við mig og fljótlega
fór ég að þróa með mér hugmynd um
veftímarit. Núna um áramótin ákvað
ég svo að ráðast í þetta verkefni og fá
til liðs við mig gott fólk,“ segir Björn
Bragi, sem hefur nú tvo fasta starfs-
menn í vinnu á Panama.is auk þess
að búa yfir nokkrum lausapennum
sem leggja síðunni lið. „Þetta er búið
að rúlla síðustu mánuðina og við höf-
um að mínu mati vaxið og batnað til
muna. Við uppfærum vefinn daglega
og reynum að höfða til ungs fólks sem
hefur áhuga á menningu, kvikmynd-
um, tónlist, slúðri og áhugaverðu
fólki. Pælingin er í rauninni bara að
skapa þessu sess á fjölmiðlamarkaðn-
um og reyna að svara þörfum þeirra
sem hafa áhuga á að lesa efni af þessu
tagi.“
Nóg pláss á markaðnum
Björn Bragi segist þess fullviss að
pláss sé á fjölmiðlamarkaðnum fyrir
veftímarit af þessum toga. Að hans
mati er internetið framtíðin og segir
hánn líklegt að innan nokkurra ára
fari flestöll fjölmiðlun fram á netinu.
„Það er allt að færast meira á inter-
netið hvort sem er sjónvarp, blöðin
eða annað. Það vantar klárlega miðil
sem þjónar því sem gömlu götublöð-
in eins og Undirtónar, Vamm og Orð-
laus þjónuðu. Svo eru margir kostir
við netmiðil sem prentmiðillinn hef-
ur ekki. Til dæmis er prentkostnaður
mjög dýr og auk þess býður netið upp
á fleiri möguleika varðandi hljóð, víd-
eó og fleira,“ segir Björn, sem hefur
lagt nótt sem nýtan dag við veftíma-
ritið síðustu mánuðina og segist nú
farinn að uppskera eftir því.
„Þetta er allt að koma hjá okkur og
maður er farinn að eiga fyrir salti í
grautinn. Þetta hefur verið töluverð
vinna og mikið álag en nú er þetta að
komast á betra ról og verða virkilega
skemmtilegt. Ég er til dæmis farinn
að geta átt tíma fyrir litla hundinn
sem ég var að fá, hana Etnu. Etna á
hug minn og hjarta um þessar mund-
ir og ég elska hana mjög mikið. Svo
auðvitað veitir hún mér innblástur í
göngutúrunum og maður fær þar hug-
myndir fyrir Panarna," segir Björn og
hlær.
Skemmtikraftur á skrifstofunni
Björn Bragi segist hættur að sjarma
stelpurnar upp úr skónum með ræðu-
töktunum enda hafa þeir verið látnir
lönd og leið í bili. Um þessar mundir
Bók: Ég verð eiginlega að vera bara
týpískur og segja Flugdrekahlaupar-
inn. Hún var mjög átakanleg og góð.
Kvikmynd: American Psycho.
Skil aldrei við mig: Síminn, greiðslu-
kortið og indíáninn, vinur minn.
Elska: Hundinn minn og gíraffann
minn, sem er kærastan mín. Ég kalla
hana það í gríni.
Þoli ekki: Þegar Tottenham tapar
og líka aðstæður þar sem ég lendi í
einhverjum tæknivandamálum. Ég er
gjörsamlega lamaður í öllum tækni-
málum og þoli ekki þegar tæknin er
að stríða mér!
Matur: Jólamatur og steikarsam-
lokan á Sólon.
Tónlist: Mjög misjafnt hvað ég er
að hlusta á. Allt frá gelgjupoppi yfir
í hart þungarokk. Ef ég á að nefna
æskuhljómsveitina þá er það Red
Hot Chili Peppers.
Draumaverkefni: Að taka við af
Eyjólfi Sverrissyni með íslenska
landsliðið.
Ráð og speki: Maður getur gert ná-
kvæmlega allt sem maður vill gera ef
maður er nógu ákveöinn í því. En ef
maður heldur að lífið skuldi sér eitt-
hvað þá kemst maður aldrei neitt!
Hamingjan felst í: Að vera
ánægður og sjá ekki eftir neinu.