blaðið - 26.06.2007, Blaðsíða 23
blaðió ÞRIÐJUDAGUR 26. JÚNÍ 2007 35
ORÐLAUSTÍSKA ordlaus@bladid.net vj: ■; Fyrstu tvær myndirnar um Jr Wayne Roo... ég meina Shrek, slógu rækilega í gegn, bæði meðal ungra og aidinna
Tilþrif teiknimyndatröllsins
Undirrituðum er löngu hætt að
líða kjánalega við að fara á tölvu-
gerðar teiknimyndir þar sem helsti
markhópurinn eru börn og ung-
lingar. Ástæðan er sú að flestar
þessara mynda eru drepfyndnar og
skarta einvalaliði leikara í talsetn-
ingum. Hefur þróunin verið á þann
veg að börnin sjá myndirnar með
íslenskri talsetningu og hinir full-
orðnu með þeirri ensku, enda hæg-
ara sagt en gert að þýða húmor og
grín yfir á annað tungumál. Fyrstu
tvær myndirnar um Wayne Roo... ég
meina Shrek, slógu rækilega í gegn,
bæði meðal ungra og aldinna. Þriðja
myndin gefur lítið eftir, þó svo hún
hafi kannski ekki vakið upp jafn
Shrek the Third
• Bfó:
Sambíóunum Álfabakka,
Kringlunni, Akureyri.
Smárabíó, Laugarásbíó
• Leikstjóri:
Chris Miller
• Aftalleikarar:
Mike Myers,
Eddie Murphy,
Cameron Diaz
Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
KVIKMYNDIR ★★★
hávær hlátrasköll og fyrirrennarar
hennar. Er þar um að kenna endur-
tekningum sem slíkum framhalds-
myndum hættir til að ofnota. En
Á
i
X
Shrek „Brandaramir ©ru flestir
tilvisun i nútima poppmenningu
eöa gömlu klassísku ævihtýrin."
segir i dómnum.
samt sem áður er myndin stórsniðug
og vel við hæfi allra aldurshópa.
Brandararnir eru flestir tilvísun í
nútima poppmenningu eða gömlu
klassísku ævintýrin, einsog hefð
er fyrir í fyrri myndunum. Gæðin
liggja í talsetningunum sem eru í
raun lykillinn að velgengni slíkra
mynda og er einvalalið leikara að
verki í Shrek hinum þriðja. Þar fara
á kostum þeir Monty Py thon-félagar
John Cleese og Eric Idle. Þá stendur
Eddie Murphy ávallt fyrir sínu sem
Asninn og Rupert Everett sem hinn
hárprúði, illi Draumaprins. Poppst-
irnið Justin Timberlake skilar sínu
sem Artúr konungur og Mike My-
ers er orðinn rótgróinn í hlutverki
Shrek. Frábær skemmtun fyrir alla
fjölskylduna.
Tíska götunnar
Sólgleraugu
og gott gloss
Við öll tilefni Þessi Orion kjóll er úr
Apple Tree en hann er bæði hægt að nota
dagsdaglega og svo við hátíðlegri tilefni.
Lilja Nótt Þórarinsdóttir leik-
listarnemi nýtur lífsins um þessar
mundir en hún er nýkomin úr fríi
að utan. Lilja Nótt segist sjaldan fá
nóg af skótaui hvers konar en á þó
til að gera slæm kaup eins og rándýr
og ónotaður Custo-kjóll ber vitni
um.
Hvaða flík langarþig mest í?
Mig vantar eiginlega alltaf eitt-
hvað. Ég sá gallabuxur í London í
versluninni Mango sem voru mjög
flottar, í brúnum lit. En svo langar
mann alltaf í allt, þannig að það er
erfitt að nefna eitthvað sérstakt.
Hvaða flikur notarþú mest af?
Það er mjög blandað. Ég er bæði
mikið í kjólum og buxum en ég er
ekki mikil pilsatýpa. En reyni að
blanda þessu saman eins og ég get.
Afhverju er mest
ífataskápnum þínum?
Það er örugglega mest af bolum.
Bæði sparibolum og hversdag-
stoppum. Ég er mikið fyrir alls konar
liti, er alls ekki þessi svarthvíta týpa
og finnst skærir litir fallegri.
Hverju færðu ekki nógaf?
Ég fæ bara ekki nóg af flottum
skórn, hvort sem það eru hælar eða
stígvél.
Hvaða verslanir eru í uppáhaldi?
Ég á eina uppáhaldsbúð sem ég fer
rosalega oft í þegar ég er í London
en hún heitir Apple Tree. Svo er
vintage búð í New York sem heitir
Beacon’s Closet sem ég var að upp-
götva um daginn og mér finnst æði.
En hérna heima eru það í rauninni
bara búðirnar á Laugaveginum og
á Skólavörðustígnum þar sem ég
labba mikið um þar. En ég fer ekki
mikið í Smáralind eða Kringluna.
Hvaðgerirðu til þess að líta velút?
Þegar maður er með ljótuna þá
getur virkað vel að setja á sig sól-
gleraugu og góðan gloss, það getur
bjargað ótrúlega miklu.
Bestu kaupin?
Það er svo margt að ég get eigin-
lega ekki gert upp á milli.
Verstu kaupin?
Það er örugglega Custo-kjóll sem
er ofsalega fallegur en ég hef aldrei
notað hann þó ég sé búin að eiga
hann í svona sjö ár. Hann var þar að
auki rándýr á sínum tíma, kostaði
um 30.000 krónur. Það er ekki það
að hann sé ljótur en ég bara fíla mig
ekki í honum og hef aldrei gert.
Ullarslá Slána nota ég sérstaklega mikið
á vetuma en hana keypti ég í Rokk og
rósum.
Svarti kjóllinn Ég fékk þennan frá
ömmu fyrrverandi kærasta míns en hann
er svona 50’s og mér finnst hann ótrú-
lega flottur.
Taska Ég er ánægð með þessa tösku
sem ég keypti nýlega i Covent Garden.
HVERNIG VARHELGIN?
Sveitarómans
um helgina
„Ég er búinn að
vera í sveitinni
alla helgina,“ segir
útvarpsmaðurinn
Sigvaldi Kaldalóns
betur þekktur sem
Svali. „Ég fór út í
sveit með tjaldvagninn í eftir-
dragi og skellti mér á stað sem
heitir Lambhagi og er rétt hjá
Búrfelli. Þar var ég í rjómablíðu
og náði að slappa heilmikið af.“
Hitti leynihóp-
inn um helgina
„Égþarfaðeinsað MHnp|K |
rifja helgina upp,“ Jm mj
segir Katrín Anna ^ *j
Guðmundsdóttir, ,’Wk flj
femínisti. „Á föstu- dHk .
daginn fór ég og hittig
mjög skemmtilegar
konur eða leynihópinn minn
svokallaðan til þess að hafa smá
duló í þessu, þannig að ég má
ekki einu sinni segja hvar við hitt-
umst eða hvað við gerðum.“
ÚTSALA
Friendtex 2007
www.friendtex.is Sími 568 2870
Opnunartfmi mánudaga - föstudaga 10.00- 18.00
Erum flutt í nýtt húsnæði
að Faxafeni 10 merkt
Miró innrömmun
Komið og gerið frábær kaup
Alltað 60% afsláttur.
Áður NÚ
Túníka 4.400 2.500
Gallahnébuxur 8.800 4.400
Buxur 4.400 2.700
Kjóll 4.900 2.000
Kjóll 5.400 2.000
Toppur 3.900 1.500
Skór 5.900 2.900
Peysa 5.900 2.900