blaðið - 25.09.2007, Page 4
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 25. SEPTEMBER 2007
blaðið
Kvótasamdráttur
Samherji fer
frá Hjalteyri
Samherji hefur ákveðið að
hætta allri skreiðarverkun
á Hjalteyri við Eyjafjörð, að
sögn til þess að bregðast við
minnkandi þorskveiðiheim-
ildum og fyrirsjáanlegum sam-
drætti sem þeim fylgir. Ellefu
manns hafa unnið fyrir Sam-
herja á Hjalteyri og verður
þeim öllum boðin vinna í
öðrum deildum Samherja.
aþ
Héraðsdómur Vestfjarða
Skilorð fyrir
líkamsárás
Héraðsdómur Vestfjarða
dæmdi á dögunum tvo karl-
menn fyrir hættulega líkams-
árás á annan karlmann. Karl-
mennirnir tveir voru ákærðir
fyrir að hafa opnað dyr á bíl
þegar þeir óku fram hjá mann-
inum með þeim afleiðingum
að hurðin skall á honum. Mað-
urinn féll til jarðar við höggið
og hlaut nokkur meiðsli en
árásarmennirnir óku á brott.
Sá sem opnaði dyrnar hlaut
fimm mánaða skilorðsbundið
fangelsi en hinn, sem jafn-
framt var bílstjóri, hlaut
tveggja mánaða skilorðs-
bundið fangeisi. bb.is
libelladonnan
Flottar
_yfirhafnir
Stærðir 42-56
Skeifan 11 d • 108 Reykjavík
sími 517 6460
www.belladonna. is
Opiö mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15
Fjármálaráðuneytið fer yfir niðurstöðuna í máli Impregilo
Ekki leitað beint til starfsmannaleiga
Fulltrúar fjármálaráðuneytisins ásamt ríkis-
skattstjóra leita nú leiða til að bregðast við dómi
Hæstaréttar i síðustu viku að sögn Böðvars Jóns-
sonar, aðstoðarmanns fjármálaráðherra. í Blað-
inu á laugardag kom fram að ríkið gæti þurft að
greiða Impregilo hundruð milljóna króna eftir að
Hæstiréttur úrskurðaði að það væri ekki í verka-
hring íyrirtækisins að standa skil á staðgreiðslu
opinberra gjalda hjá verkamönnum á vegum
portúgalskra starfsmannaleiga.
Dómurinn þýðir einnig að þar sem portúgölsku
starfsmannaleigurnar eru launagreiðendur verka-
mannanna, þá ber þeim að standa skil á greiðsl-
unum. Böðvar sér ekki fyrir sér að ríkið verði í
beinum samskiptum við starfsmannaleigurnar,
heldur fari greiðslurnar fram í gegnum skattayfir-
völd í Portúgal. „Síðan er það tvísköttunarsamn-
ingur Islands og Portúgals sem gerir ráð fyrir
að þeir fjármunir nái til íslands. Það hefði hins
vegar verið mun æskilegra að hafa þetta á hinn
veginn, það er að þetta færi fram í gegnum skatta-
yfirvöld hér á landi.“
Meðal þess sem fjármálaráðuneytið og rík-
isskattstjóri munu skoða er hvort gerðar verði
breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra
gjalda. Það yrði þá gert á þann hátt að tekin yrðu
af öll tvímæli um að starfsmenn sem vinna á ís-
landi til skemmri tíma verði ótvírætt skattskyldir
hér á landi.
magnus@bladid.net
Fjármálaráðuneytið Til greina kemur að gera
breytingar á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda í
kjölfar niðurstöðu Hæstaréttar.
Strangari reglur um
skyldur tannlælcna
■ Tannlæknar æfir vegna frumvarps um að þeim yrði skylt að auglýsa gjaldskrá
■ Mörk vegna kostnaðaráætlunar mun lægri í Noregi og Danmörku en hér á landi
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Mun strangari reglur gilda í
nágrannalöndunum um skyldu
tannlækna til að gefa skriflega
kostnaðaráætlun en á íslandi. Ef
reglunum hér yrði breytt yrði það
til bóta fyrir marga, að mati Jóns
Gunnarssonar, fyrrverandi þing-
manns Samfylkingarinnar, sem
fyrir tveimur árum lagði fram
frumvarp um breytingu á lögum
um tannlækningar.
I frumvarpinu, sem fékk ekki
afgreiðslu, var lagt til að tann-
læknum yrði skylt að auglýsa gjald-
skrá sína árlega og að hún yrði send
Tryggingastofnun ríkisins ásamt
breytingum.
„Það var talað um að Trygginga-
stofnun myndi setja gjaldskrá tann-
lækna á vef sinn þannig að hún yrði
aðgengileg fyrir neytendur. Þetta
fannst tannlæknum höft á atvinnu-
frelsi sitt. Ég fékk marga tölvupósta
frá starfandi tannlæknum sem
voru vægast sagt dónalegir. Menn
sögðu þetta fíflagang og að þeir
sem létu sér detta slíkt í hug væru
heimskir,“ segir Jón.
Honum kemur því ekki á óvart
að Sigurjón Benediktsson, for-
maður Tannlæknafélags Islands,
skuli á dögunum hafa lýst því yfir
að það væri algjörlega út í hött færi
Tryggingastofnun að birta verð
tannlækna eins og skoða á. Sigur-
jón sagði þó suma tannlækna vilja
VERÐ TANNLÆKNA
►
Tryggingastofnun ætlar að
kanna hvort heimilt sé að
veita upplýsingar um verð
fyrir þjónustu einstakra
tannlækna.
► Lögfræðingur Persónu-
verndar, Þórður Sveinsson,
kveðst aldrei hafa heyrt
talað um að upplýsingar um
verð fyrir ákveðna þjónustu
eigi að fara leynt.
kynna þjónustu sína og verð.
íslenskum tannlæknum er skylt
að hafa gjaldskrá á áberandi stað
á biðstofu og gefa skriflega kostn-
aðaráætlun fari kostnaður yfir 100
þúsund krónur samkvæmt reglum
Samkeppnisstofnunar frá 2004. I
Danmörku er tannlæknum skylt
að gefa skriflega kostnaðaráætlun
fari kostnaður yfir 2500 danskar
krónur., eða um 30.000 ÍSK. Sam-
svarandi tala í Noregi er 2000
norskar krónur, eða um 23.000 ÍSK.
Þetta kemur fram í frumvarpinu
sem Jón lagði fram ásamt nokkrum
þingmönnum allra flokka nema
Sjálfstæðisflokksins.
Ekki fara allir tannlæknar á ís-
landi eftir ofangreindum reglum
Samkeppnisstofnunar. „I fyrsta lagi
er ómögulegt fyrir neytendur að
flakka á milli biðstofa tannlækna til
að kanna gjaldskrá sem þar hangir
kannski uppi. I öðru lagi er erfitt
/MJid/Þorkell
Hjá tannlækninum Endurgreiðslu-
gjaldskrá Tryggingastofnunar hefur ekki
breyst síðan 1. nóvember 2004.
að fara fram á skriflega kostnaðar-
áætlun um það bil sem maður er að
setjast í tannlæknastólinn afhendi
tannlæknirinn hana ekki sjálfur
áður,“ tekur Jón fram. Hann fagnar
því að Tryggingastofnun skuli nú
íhuga að birta verð tannlækna. „Það
er alveg fráleitt að verð skuli vera
leyndarmál í frjálsri samkeppni.
Hins vegar hefur endurgreiðslu-
gjaldskrá Tryggingastofnunar ekki
hækkað í takt við hækkað verð tann-
lækna,“ bendir Jón á.
Hjá TR fengust þær upplýsingar
að endurgreiðslugjaldskráin væri
frá 1. nóvember 2004.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Pilturinn sem lenti í slysi í Sundlaug Kópavogs er látinn
Minntust látins félaga
Pilturinn sem lenti í slysi í Sund-
laug Kópavogs 26. apríl síðastliðinn
lést á laugardaginn var af völdum
slyssins. Hann hét Þórður Ingi Guð-
mundsson, fæddur 29. apríl 1991, og
var 16 ára gamall.
Þórður Ingi var nemandi í Snæ-
landsskóla og var í skólasundi þegar
hann fannst meðvitundarlaus á
botni sundlaugarinnar. Hann komst
aldrei til meðvitundar eftir slysið.
Þórðar Inga var minnst áður en
knattspyrnuleikur HK og Breiða-
bliks hófst á Kópavogsvelli á sunnu-
dag. Hann æfði knattspyrnu með
HK frá unga aldri og var liðsmaður
á eldra ári í 3. flokki.
mbl.is
Látins félaga minnst Þórðar
Inga var minnst áður en leikur
HK og Breiðabliks hófst á
Kópavogsvelli á sunnudag.
Laugavegur
Eldur í sófa
Eldur kom upp í sófa á svölum
bakhúss milli Laugavegar og
Hverfisgötu 44 um hálffimm-
leytið í fyrrinótt. Mikill reykur
myndaðist en að sögn slökkvi-
liðs gengu slökkvistörf greið-
lega fyrir sig. Um 30 leiguliðar
búa í húsinu og var í fyrstu
óttast um öryggi þeirra en þeir
voru þó ekki í teljandi hættu.
Eldsupptök eru ókunn.